Þjóðlíf - 01.06.1987, Síða 29
E R L E N T
* Bob Hawke: Boftar kosningar 11. júlf.
Traust forskot
Verkamanna-
flokksins
Kosningar í Ástralíu
^eð stuttum fyrirvara
^STRALÍUBÚAR ganga að kjörborðinu
júlí. Bob Hawke forsætisráðherra
Verkamannaflokksins sem verið .hefur við
vö'd frá 1984 tilkynnti að haldnar skyldu
K°sningar allnokkru fyrr en búist hafði verið
y*.®> því enn eru um níu mánuðir eftir af
Nörtímabilinu, sem er þrjú ár skv. stjórnar-
skrá Ástralíu. í apríl hafði Hawke líka lýst
PV| yfir að kosningar yrðu ekki haldnar fyrr
á næsta ári. Þinglausnir í fulltrúadeild
P'ngsins fóru fram 5. apríl og er kosninga-
aráttan stutt og snörp eins og í Bretlandi
^rir nýafstaðnar kosningarnar þar í landi.
Endurreisn efnahagslífs Ástralíu er brýnt
andamál eins og stjórnin sýndi sjálf fram á í
J1131 er hún birti efnahagsskýrslu sem nokk-
rs konar fyrirboða fjárlaganna í ágúst. Par
r boðaður niðurskurður á ýmsum sviðum
I P’nberra útgjalda og þjónustu. Útgjöld til
lnna einstöku ríkja sambandsríkisins verða
regin saman um þrjú prósent, framlög
roa stórlega skorin til heilbrigðismála og
, arnarmála, svo nokkuð sé nefnt. Ástralir
áh-Orðið 'ba fyrir barðinu á lækkandi verði
neirnsmarkaði á hveiti, sykri og kolum að
^ndanförnu. Síðustu tvö ár hafa þjóðartekj-
Qr öregist mjög saman, viðskiptahalli aukist
8 erlendar skuldir nema nú 52 milljörðum
dollara. Áformin hafa miðað að því að auka
fjárfestingu í einkageiranum, efla útflutning
og ná aftur stærri hluta innanlandsmarkað-
arins undir innlenda framleiðslu.
Þegar Bob Hawke rauf þingið 5. júní
sagði hann að til kosninganna væri boðið
svo stjórnin gæti lokið við að endurreisa
efnahagslíf Ástralíu. Stjórnarandstaðan
hafði þá stöðvað frumvarp stjórnarinnar
sem fjallaði um innleiðingu nýrra nafnskírt-
eina, en það var liður í baráttu stjórnarinnar
gegn skattsvikum og óreiðu í velferðarþjón-
ustunni. Þótt Verkamannaflokkurinn hafi
meirihluta í fulltrúadeild þingsins getur
stjórnarandstaðan stöðvað mál í öldunga-
deildinni. „Með endurnýjuðu umboði kjós-
enda getur Verkamannaflokkurinn komið á
jafnvægi og bættum efnahag í Ástralíu,“
segir Bob Hawke.
Verkamannaflokkur Hawke stendur
sterkt að vígi. Eining hefur ríkt innan
flokksins allt frá því að hann fór frá völdum
árið 1975 og skoðanakannanir gefa flokkn-
um traust forskot á stjórnarandstöðuflokk-
ana. Innan stjórnarandstöðunnar er hins
vegar ríkjandi upplausn því áratugalangt
samstarf Frjálslyndra og Þjóðarflokksins
tók að riða til falls í byrjun ársins og endaði
með miklu ósamlyndi eftir þriggja daga ráð-
stefnu í apríl, sem átti þvert á móti að lægja
öldurnar innan flokkanna. Þá hrjáir forystu-
vandamál báða flokkana því bæði John
Howard, formaður Frjálslyndra, og Ian
Sinclair, formaður Þjóðarflokksins, hafa
verið gagnrýndir fyrir að geta ekki boðið
Bob Hawke byrginn. Andrew Peacock, fyrr-
verandi formaður Frjálslyndra, nýtur mik-
illa vinsælda og er talið að hann einn hefði
getað keppt við Hawke í kosningunum en
honum var vikið úr forystustólnum fyrir
tæpum tveimur árum.
Verkamannaflokkurinn og Frjálslyndi
flokkurinn hafa verið stærstu flokkar ástral-
ska stjórnkerfisins um áratuga skeið og
höfuðandstæðingar, en Þjóðarflokkurinn
hefur alla tíð átt töluvert fylgi í dreifbýlinu.
Aðrir flokkar leika lítið hlutverk í áströlsk-
um stjórnmálum. Ástralska kosningakerfið
er óvenjulegt fyrir þá sök að þar ríkir kosn-
ingaskylda. Kjósendur eru frekar flokks-
hollir miðað við önnur vestræn stjórnkerfi
og hafa kosningarannsóknir sýnt að u.þ.b.
85% kjósenda hreyfa sig lítt á milli flokka í
kosningum. Um 60% kjósenda úr verka-
lýðsstétt styðja Verkamannaflokkinn og um
70% millistéttarinnar styður Frjálslynda
reglulega sem á mest allt sitt fylgi í þéttbýl-
inu.
Bob Hawke forsætisráðherra hefur verið
sakaður um tækifærismennsku fyrir að nýta
sér stöðuna í áströlskum stjórnmálum nú og
boða til kosninga fyrir lok kjörtímabilsins og
áður en fjárlög fyrir næsta ár eru afgreidd úr
þinginu. En allar horfur eru á því að kosn-
ingaúrslitin skili Verkamannaflokknum
sterkari stöðu þó erfið verkefni í efna-
hagsmálum bíði úrlausnar fyrir endurnýjaða
Verkamannaflokksstjórn í Ástralíu næsta
kjörtímabil.
TheEvil
Empire
■The Explosíve Latin
Connection
íiColombia's Diug Lords
BU.S.Agents:
Taigets for Terror
Kókaín
á Wall Street
Eftirlit með starfsmönnum
og lyfjapróf
í APRÍL VORU níu starfsmenn verðbréfa-
viðskiptafyrirtækisins Brooks Weinger
Robbins & Leeds við Wall Street í New
York handteknir fyrir að möndla við kókaín
á vinnustaðnum. Kókaínnotkun og annað
eiturlyfjabrúk er að verða æ algengara í hópi
hvítflibba í viðskiptalífinu, rétt eins og innan
menningargeirans, svo ekki sé talað um
stjórnmálamenn.
Til að styrkja ímynd sína og traust út á við
sáu ráðamenn fjárfestingabankans Morgan
Stanley í Wall Street ekki annað ráð vænna
en láta alla starfsmenn bankans gangast
reglulega undir lyfjapróf. Hófust þær próf-
anir fyrsta júní. Bankinn hefur um árs skeið
látið alla umsækjendur um starf í bankanum
ganga í gegnum slíkan hreinsunareld en það
þykir tíðindum sæta þegar fastir starfsmenn
þurfa reglulega að gera hreint fyrir sínum
dyrum. Nokkur fleiri fyrirtæki í kauphallar-
hverfinu hafa tekið upp á því á síðustu mán-
uðum að láta umsækjendur um störf gangast
undir slík próf en fastir starfsmenn hafa þó
verið látnir í friði til þessa.
Þetta hefur þó ekki gengið mótmælalaust
yfir. Nokkrir hafa borið fyrir sig einkalífs-
vernd, einn bendir á að með þessu sé verið
að líta framhjá alvarlegasta málinu á Wall
Street um þessar mundir: Fjármálaskand-
alnum í kringum spákaupmanninn Ivan Bo-
esky. Þar komu eiturlyf hvergi við sögu.
Annar segir: Ef verðbréfamiðlunarfyrirtæki
treystir ekki starfsmönnum sínum vegna
eiturlyfjavandamála, hvernig getur það þá
treyst þeim til að ávaxta peninga fólks?
29