Þjóðlíf - 01.06.1987, Side 30
I N N L E N T
JÓHANNES SIGURJÖNSSON
■ Guftni Halldórsson: Reynum aft framreifta þaft stórkostlega „hráefni" sem lands-
mótift er á þann hátt sem höfftar tll sem flestra.
Miðpunktur íslands
í þrjá daga
Landsmót UMFÍ og Húsavíkurhátíö
í einum pakka
VIÐ STEFNUM AÐ því að Húsavík veröi,
ef ekki nafli alheimsins þá a.m.k. miðpúnkt-
ur íslands þessa þrjá daga í júlí“, segir
Guðni Halldórsson, framkvæmdastjóri 19.
landsmóts UMFÍ, sem haldið verður á
Húsavík dagana 10-12. júlí n.k.
En hverskyns fyrirbæri er þetta landsmót
sem gera á Húsavík að miðpúnkti landsins í
sumar, væntanlega í fyrsta sinn í sögunni?
Við skulum aðeins líta til sögunnar og reyna
að átta okkur á því.
Fyrsta landsmót Ungmennafélags fslands
hefur ýmist verið talið mótið á Akureyri
1909 eða mótið í Reykjavík árið 1911. Á
fyrstu mótunum var glíman að sjálfsögðu
aðalkeppnisgreinin, en að auki var keppt í
„hliðargreinum“ á borð við hástökk, lang-
stökk, stangarstökk, 100 metra hlaup, sund
og knattspyrnu. Næsta mót var haldið 1914.
Síðan hverfa landsmótin af sjónarsviðinu
um langt árabil og það er ekki fyrr en árið
1940 sem þau eru endurvakin og þá mest
fyrir tilstilli þess þjóðkunna íþróttafrömuð-
ar, Sigurðar Greipssonar í Haukadal. Frá
þeim tíma hafa landsmót verið haldin á
þriggja til fjögurra ára fresti og nú síðast í
Keflavík og Njarðvíkum.
Umfang landsmótanna hafa vaxið jafnt og
þétt. Þannig var síðast haldið landsmót í
Suður-Þingeyjarsýslu að Laugum árið 1961
og var þá keppt í þrem greinum íþrótta og
sjö greinum starfsíþrótta. Keppendur voru
343. Á landsmótinu í sumar verður keppt í
ellefu greinum íþrótta, auk starfsíþrótta og
fjölda sýningargreina og fjöldi þátttakenda
og fararstjóra losar 2000.
Undirbúningur landsmótsins hófst strax
sumarið 1985, en þá tók til starfa tíu manna
landsmótsnefnd, sem hefur starfað óslitið
síðan og notið aðstoðar fjölmargra í héraði.
Um áramótin síðustu hóf svo framkvæmda-
stjórinn Guðni Halldórsson störf og hefur
hann skipulagt og samræmt störf hinna
ýmsu starfshópa.
Mótsdagana er gert ráð fyrir að um 600
manns verði að störfum á vegum lands-
mótsnefndar, og raunar verða æ fleiri virkj-
aðir í starfi eftir því sem nær dregur lands-
móti.
Húsavíkurbær kemur að sjálfsögðu inn '
myndina og á vegum hans hefur verið unnið
að því að standsetja íþróttamannvirki.
íþróttahúsið, vellina, sundlaug, sem verður
sérstaklega byggð fyrir mótið og síðan tekin
niður aftur. Þá þarf að huga að tjaldstæðum
með tilheyrandi hreinlætisaðstöðu, aðkomu-
leiðum o.þ.h. Mikið verk og kostnaðarsamt-
og eins gott að ekkert stíflist ef tíu þúsund
manns verður mál á sömu mínútinni, seú>
reyndar er ekki tölfræðilega líklegt!
Bæjarbúar eru staðráðnir í því að gera
bæinn sem snyrtilegastan fyrir mótið, og
verður væntanlega meira unnið í görðum 1
sumar en oft áður, því flestir gera sér greu1
fyrir því að landsmótið er stærsta og rnestí*
kynning á Húsavík til þessa, og allir að
sjálfsögðu ákveðnir í að sú kynning verð'
jákvæð.
Verslunareigendur, hamborgaraframleið'
endur, íssöluaðilar o.fl. sem hugsa gott 1,1
glóðarinnar, sitja nú með sveitta skalla
kalkúlatora og reikna út, t.a.m. hve mikin11
ís þarf fyrir 10.000 manns í tíu stiga hita, °f
þá hve mikið dregur úr þörfinni í prósentvi*
með lækkun hitastigs.
Það er sem sagt skipulega unnið að undif'
búningi á öllum sviðum, og mikilvægustl
þáttur mótshaldsins hefur ekki gleymst, seu1
sé veðrið. „Við létum kanna veðurhorfur
30