Þjóðlíf - 01.06.1987, Síða 31
motsdagana í ljósi reynslunnar. Friðjón
Guðmundsson bóndi á Sandi hefur haldið
dagbók um veðurfar í marga áratugi, og
samkvæmt upplýsingum frá honum, sem
byggja á veðri s.l. 45 ár eru 77% líkur á
mJög skaplegu veðri mótsdagana, en aðeins
2% líkur á grenjandi norðanátt og regni.
Samkvæmt þessari spá má segja að við séum
27% bjartsýn á veðrið," segir Guðni Hall-
dórsson.
bað eru nokkuð skiptar skoðanir á því
bye margir landsmótsgestir verði, menn
nefna tölur á bilinu 8-25 þúsund. Einu sinni
áður hafa gestir á landsmóti verið 25 þús-
Ur|d, á Laugarvatni árið 1965, og það sker
S|g algjörlega úr hvað aðsókn á landsmót
Snertir. Hinsvegar gera flestir ráð fyrir tíu til
tólf þúsund manns og undirbúningur miðast
þá tölu. Landsmótsnefnd hefur þó vaðið
tyrir neðan sig og hefur gert ráðstafanir til
Pess að taka á móti mun fleira fólki, þannig
það ætti ekki að skapa vandamál, ef til
kæmi.
»»Það gefur auga leið að kostnaður við
Jandsmótið er mjög mikill, við gerum ráð
tynr að beinn kostnaður landsmótsnefndar
Verði níu til tíu miljónir og ætli beinn kostn-
aður bæjarins vegna mótsins verði ekki
PrJár til fjórar miljónir," segir Guðni. „Þess
utan er mikill kostnaður vegna framkvæmda
V|ð íþróttahús og íþróttamannvirki, en það
Ur auðvitað fjárfesting sem bærinn hefði
Purft að leggja í fyrr eða síðar. Og það má
ekki gleyma því að landsmótshaldið losar
Um fjárstreymi til bæjarins, og án þess hefðu
yiisar framkvæmdir sem nú er unnið að
Purft að sitja á hakanum um óákveðinn
tima.“
En hvað um tekjuhliðina? „Landsmóts-
Uefnd hefur einkum tekjur af sölustarfsemi
f ..tjaldstæðum og keppnisstöðum, og svo
°fum við eftir föngum reynt að markaðs-
Setja mótið á ýmsan hátt. Ýmsar athuga-
Sentdir hafa komið fram af því að við „selj-
Um mótið, eins og það er kallað, en ég held
t„ Þetta komi mótshöldurum í framtíðinni
góða. Félagsskapur á borð við ungmenna-
|e|ögin, verður að lúta leikreglum samfé-
I ^,ns hverju sinni, og það eru aðrar
vej_eglur í gildi nú en fyrir 50 árum. Og ég
. 1 þessu sambandi minna á Olympíu-
he!k.ana í Los Angeles, mest „seldu“ íþrótta-
d 'ð allra tíma, sem fyrir vikið varð jafn-
0amt meiri og betri auglýsing fyrir íþróttir
síð- '^bttaiðkun en flest annað fyrr og
m'í .bynningu á mótinu hefur verið lögð
0 11 áhersla á að auglýsa ýmsar uppákomur
jg atriði sem e.t.v. tengjast ekki beint lands-
°tinu sjálfu. þar ber hæst Víkingaleikana,
hefjast 9. júlí. Víkingaleikarnir eru
tit^Pfantakeppni í líkingu við keppnina um
end'nn .”^terkasti maður í heimi,“ og kepp-
pg,.Urmr eru ekki af verri endanum, Jón
g Sigmarsson og Hjalti Árnason, ásamt
ÞejtUnurn Geoff Capes og Mark Higgins.
aASf '. ePPni em °g sér mun efalaust draga
30 fJolda áhorfenda.
^ Hnfremur er landsmótsgestum gefinn
ur á að vera þáttakendur og er mikið
______________I N N L E N T________________
lagt upp úr því að höfða til barna og þá um
leið til fjölskyldufólks. Þannig geta börn
skráð sig til keppni í kassabílaspyrnu og
reiðhjólarallý og eldri mótsgestum er boðið
upp á morgungöngu um bæinn með leið-
sögn. Leiklist, sýningar, og lifandi tónlist
munu setja svip á bæinn mótsdagana, og
reynt verður að skapa „karnivalstemningu“.
Þá verður fjöldi sýningargreina meiri en á
nokkru landsmóti, og má nefna siglingar,
karate, kraftlyftingar, dans, íþróttir fatl-
aðra, golf og afmælishlaup UMFÍ.
Og síðast en ekki síst mætir hluti af 1.
deild poppsins til leiks, því hljómsveitirnar
MX 21, Skriðjöklar, Greifarnir og Hljóm-
sveit Geirmundar, munu skemmta móts-
gestum á tónleikum og dansleikjum. Og
ekki má gleyma því að Landsmótsnefnd gef-
ur út tveggja laga plötu með Skriðjöklum í
samstarfi við Samver á Akureyri. Lögin og
textarnir eru eftir Húsvíkinginn Bjarna Haf-
þór Helgason, þann hinn sama og sigraði í
keppninni um Reykjavíkurlag, og annað
lagið heitir að sjálfsögðu „Á Landsmót“.
Það má því segja að samhliða lands-
mótinu fari fram sérstök Húsavíkurhátíð.
Og spyrja má, hvað hefur þessi umgerð með
landsmótið að gera og hugsjónir ungmenna-
félaganna?
„Það hefur vonandi ekki farið framhjá
neinum að þjóðfélagið hefur breyst þó
nokkuð frá því fyrsta landsmótið var haldið
fyrir 80 árum“, segir Guðni Halldórsson.
„Ég hef áður minnst á gildi markaðssetning-
ar, eins og t.a.m. stjórnmálamenn hafa
greinilega áttað sig á og kom vel fram í
kosningunum í apríl s.l. Staðreyndin er sú
að fólki finnst „ímynd“ landsmótanna vera
orðin þreytt og jafnvel gamaldags. Þeir sem
ekki þekkja til hafa á tilfinningunni að á
þessum mótum séu einkum einhverjar af-
dalakeppnisgreinar og annars flokks
keppnismenn. Staðreyndin er allt önnur og
því þarf að koma á framfæri. Við erum með
albesta fólkið í sundi, frjálsum, körfubolta,
o.s.frv.
Við erum sem sagt að reyna að breyta
þessari ímynd, færa landsmótið meira í takt
við tímann. Landsmótin ein og sér geta ver-
ið magnaðar samkomur, en það þarf að
skapa þeim ákveðna umgjörð sem höfðar til
sem flestra.
Ný ýsa er stórkostlegt hráefni, en það er
ekki sama hvering hún er framreidd. Þú
getur skellt henni í pott og soðið og sett upp
á disk og kallað síðan: Ný ýsa! — en vísast
að fáir vilji éta. En ef þú sýður ýsuna í
hvítvíni og berð hana á borð með tómat- og
sítrónusneiðum, og e.t.v. steinselju á listi-
lega skreyttu fati og kallar: Ýsa de la Húsa-
vík, de la UMFÍ!, þá færðu alla til að fá sér
bita.
Við erum aðeins að reyna að framreiða
þetta stórkostlega „hráefni", sem landsmót-
ið er, á þann hátt sem höfðar til sem
flestra," segir Guðni Halldórsson að lokum.
■ Jóhannes Sigurjónsson/Húsavík
Hvað varð um
manntalið?
Mannekla tefur
ÞAÐ ER VON AÐ spurt sé því úrvinnsla
manntalsins hefur dregist mjög, en við erum
nú að fara að vinna úr því alveg á næstunni.
Tíminn hefur til þessa farið í undirbúning á
vinnslu og tölvuskráningu gagnanna sem er
að mestu lokið,“ segir Hallgrímur Snorra-
son hagstofustjóri þegar ÞJÓÐLÍF leitaði
fregna af manntalinu mikla sem gert var á
árinu 1981 en ekkert hefur spurst til síðan.
Hallgrímur segir að manntalið hafi verið í
þremur hlutum; einstaklingsskýrsla, húsa-
skýrsla og íbúðaskýrsla. Verið er að prufu-
keyra öll gögnin og síðan verður farið í að
vinna töflur úr gögnunum. „Við vonumst til
að geta birt fyrstu niðurstöður síðar á árinu
en vegna þess hve þessi úrvinnsla hefur
dregist ætlum við ekki að safna öllum upp-
lýsingunum saman og birta þær í heild sinni í
einu hefti, eins og gert var þegar fyrri
manntöl voru tekin, heldur birta einstakar
niðurstöður strax og þær verða tilbúnar í
sérheftum eða FIagtíðindum,“ segir hann.
Hvað merkast í manntalinu segir Hall-
grímur sennilega vera haldgóðar upplýsing-
ar um heimilin í landinu og einnig um at-
vinnuskiptingu, tekjuskiptingu o.fl. þó þær
upplýsingar séu að verða nokkuð úreltar.
En hann kvað þær upplýsingar þó góðar til
samanburðar og hefur nokkuð verið spurt
um hvenær þær niðurstöður muni liggja fyrir
af ýmsum aðilum í þjóðfélaginu.
„Annars vegar er manntalinu ætlað að
vera til viðmiðunar vegna þjóðskrárinnar,
því það er að mörgu leyti mun fullkomnari
upplýsingagrunnur, og hins vegar vegna
margskonar annarra upplýsinga s.s. hag-
skýrslna og skattaupplýsinga," segir Hall-
grímur.
Skýringar á því hversu seint hefur gengið
að vinna úr manntalinu eru ekki fjárskortur
heldur fyrst og fremst skortur á mannskap,
segir Hallgrímur Snorrason að lokum.
■ Ómar Frióriksson
31