Þjóðlíf - 01.06.1987, Síða 33

Þjóðlíf - 01.06.1987, Síða 33
I N N L E N T ELlSABET ÞORGEIHSDÖTTIR Þiskvinnslukonur í Vestmannaeyjum: Bogya, Svana og Heiöa Fiskur og fólk Á ferð í Vestmannaeyjum þEGAR eldgosid í Vestmannaeyjum Var í rénum og hugað að möguleikum á uPPbyggingu staðarins sagði Ólafur Jóhann- ^sson, þáverandi forsætisráðherra, með anerslu: „Eyjarnar skulu byggjast aftur.“ Og eyjarnar byggðust upp og urðu brátt a'tur stærsta verstöð landsins með fjöl- ttennri stétt fiskvinnslufólks, auk vertíð- arfólks sem sótti þangað á hverju ári. En n.ndanfarin misseri hefur orðið breyting á. tflutningur á ferskum, óunnum fiski hefur aukist mikið, um leið og fiskvinnslufólkinu ®kkar. Sama þróun hefur átt sér stað víða Urn *ar|d og eru afleiðingarnar þær að skort- r er á frystum fiski á Bandaríkjamarkaði en ?! á tíðum offramboð á ferskum fiski í Vskalandi og Bretlandi. . Oskverkafólki hefur fækkað og skýringin lr°tst einföld: Léleg laun og erfið vinnuað- s(ar>a valda því að fólk sækir ekki lengur í arfið. Endurnýjun er sáralítil í stéttinni og ttrfsaldur takmarkaður í slítandi bónus. ^ Nú vinna hátt í tvö hundruð útlendingar ‘ fiskvinnslu á landinu og hefur eftirspurn ar lr er*endu verkafólki aukist að sögn Ósk- Hallgrímssonar í félagsmálaráðuneytinu. ýmsum minni stöðum; á Snæfellsnesi, nnanverðum Vestfjörðum og á Austfjörð- um, ber erlent verkafólk atvinnuna uppi. Fjárfest hefur verið í góðum frystihúsum og togara, en flóttinn á þéttbýlisstaðina og í önnur störf, hefur leitt til þessarar mann- eklu í frystihúsunum. Margir Vestmannaey- ingar töldu ástæðuna einnig vera neikvæð viðhorf til starfsins í almennri umræðu. í Vestmannaeyjum eru gerðir út 34 bátar yfir 20 lestir, sjö togarar, níu loðnuskip, auk fjölda smábáta. Þar eru rekin fimm frysti- hús, auk minni fiskverkunaratöðva. Samkvæmt bráðabirgðatölum Fiskifélags- ins komu alls 153.943 tonn af afla á land í Vestmannaeyjum á síðasta ári, sem er mesta magn á eina verstöð. Stór hluti af aflanum var loðna og síld, en botnfiskaflinn var 48.677 tonn. Innifalið í þeirri tölu er afli sem sendur var út í gámum, en það voru alls 11.377 tonn, eða um 23%. Þetta hlutfall hefur aukist mjög á þessu ári. í mars komu t.d. 4.233 tonn til vinnslu í Eyjum, en 2.340 fóru í gáma. Til samanburðar komu 5.561 tonn til vinnslu í mars 1986, en 1.660 fóru í gáma. Fiskvinnslufólk í Eyjum hefur löngum verið milli sex og sjöhundruð, en fastráðið starfsfólk sem lauk starfsgreinanámskeiði er nú aðeins 290 manns. Frystihúsin auglýstu í vertíðarbyrjun ítrekað eftir starfsfólki, en auglýsingarnar báru lítinn árangur. Þegar tíðindakonur ÞJÓÐLÍFS voru í Vestmannaeyjum var loðnufrysting á loka- stigi og hrognafrysting að hefjast. Unnið var á vöktum mest allan sólarhringinn og gripu konurnar það fegins hendi því vinna hafði verið stopul og aðeins greidd kauptrygging í janúar vegna sjómannaverkfalls. „Loðnan og síldin bjarga mér fjárhagslega," sagði Ólöf Hauksdóttir, 31 árs verkakona og ein- stæð móðir, en hún hefur unnið í Vinnslu- stöðinni í 16 ár. Á loðnuvertíðinni vann hún frá 4 eða 6 á morgnana til 12 eða 1 á nóttunni, oftast sjö daga vikunnar. „Auðvit- að er ég dauðþreytt og þyrfti að taka mér frí einn dag í viku, en ég verð að vinna svona meðan ég fæ vaktirnar." GÁMAÚTFLUTNINGUR. Við inntum Guðmund Karlsson, forstjóra Fiskiðjunnar, álits á hinum aukna útflutningi á ferskum fiski á Evrópumarkað. Taldi hann þann út- flutning eðlilegan, þar sem hráefni hefði vantað og nýr flutningsmáti auðveldaði út- flutninginn. „Við erum smáir og getum ekki tekið við öllum afla sem berst á land,“ sagði hann. „Við megum samt ekki brjóta niður okkar eigin fiskvinnslu. Veiði í Norðursjó getur aukist aftur og gengi dollarans færst í eðlilegt horf. Útgerðarmenn reyna auðvitað að selja fiskinn þar sem hæst verð fæst fyrir hann.“ „Gámaútgerðin er best rekna útgerðin í 33

x

Þjóðlíf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.