Þjóðlíf - 01.06.1987, Side 44
ÆTLAR ÞU
AÐ SÆKJA UM
HÚSNÆÐI SLÁTi ?
HÉR ERU NOKKUR GRUNDVALLARATRIÐI
FYRIR VÆNTANLEGA UMSÆKJENDUR
• Undirbúðu vel kaupin eða bygginguna. Gerðu
eins nákvæmar áætlanir fram í tímann og þú getur.
• Byrjaðu tímanlega að leggja fé til hliðar. Semdu
um reglubundinn sparnað í ákveðinn tíma við
banka eða sparisjóð, og lán í kjölfarið.
• Kynntu þér lán Húsnæðisstofnunar, lánsrétt
þinn, lánskjörin og afgreiðslumáta lánsins.
• Fáðu viðtal hjá ráðgjafastöð Húsnæðisstofnunar.
Leggðu fyrirætlanir þínar fyrir starfsfólk hennar,
leitaöu álits og fáðu ráðleggingar.
• Sendu stofnuninni umsókn um lán. Gættu þess
vandlega að öll tilskilin gögn og fylgiskjöl fylai með.
Ef þau vantar, getur það valdið umtalsveroum
töfum á afgreiðslu umsóknar þinnar.
• Hafir þú lánsrétt, berst þér lánsloforð frá okkur
þar sem tilgreind er hámarkslánsfjárhæð og
hvenær lánið kemur til útborgunar.
Hafðu hugfast, að lánsloforðið þitt er aðeins gilt
gagnvart þér, þ.e. þeim sem þao er stílað á, enda
byggist það alfarið á réttindum þínum hjá okkur.
Það er því ógilt gagnvart öllum öðrum og er ekki
framseljanlegt gagnvart þriðja aðila.
• EKKI aðhafast neitt á fasteignamarkaðnum fyrr
en þú hefur fengið skriflegt lánsloforð í hendur.
• Þú skalt HVORKI KAUPA NÉ SELJA fyrr en
lánsloforð liggur fyrir.
• í lánsloforðinu eru útborgunardagar lánsins
tilgreindir. Þess vegna getur þú auðveldlega miðað
innborganir í kaupsamningi við útborgunardaga
lánsins. Það er öruggast fyrir bæði kaupendur og
seljendur.
• 3 MÁNUÐUM FYRIR ÚTBORGUN LÁNSINS
þarftu helst að hafa sent okkur öll tilskilin gögn.
Gættu þess að kynna þér tímanlega hver þau eru.
Oftast er um að ræða kaupsamning, teikningu,
fokheldisvottorð og vottorð um vátryggingu.
HAFÐU ÞESSI GRUNDVALLARATRIÐI í HUGA
ÞEGAR ÞÚ UNDIRBÝRÐ STÓRA SKREFIÐ.
KAPP ER BEST MEÐ FORSJÁ!
Gangi þér vel!
P.S. Þú ættir að geyma auglýsinguna.
#> Húsnæðisstofnun ríkisins