Þjóðlíf - 01.06.1987, Síða 54

Þjóðlíf - 01.06.1987, Síða 54
F Ó L K Smithereens s til Islands Hljómleikar í Hard Rock Café UNDIR LOK SJÖUNDA áratugsins tóku að spretta upp rokkstaðir kallaðir Hard Rock Café í Bandaríkjunum. Nú er komin upp slík keðja rokkstaða undir þessu merki í * velflestum löndum í Vestur Evrópu. Þann 4. júlí opna Tómas Tómasson og félagar fyrsta rokkstaðinn, Hard Rock Café, hér á landi í Kringlunni. Á opnunina mæta góðir rokkar- ar og vinsælir hér, hljómsveitin Smithereens frá Bandaríkjunum. Smithereens héldu tvenna tónleika í óperuhúsinu í febrúar og fengu fulla aðsókn og miklar vinsældir. Að sögn Ásmundar Jónssonar í Gramminu, sem annast milli- ÞORVARÐUR ARNASON ■ Sprellaft vl& útvarpshúslft. Geðþekkir og skondnir Datnir og Kushiner í heimsókrv HÚBBLA HÚLLÝ HÚLL. . ! gelti krakkaskarinn við vesturálmu nýja útvarps- hússins í Efstaleiti klukkan hálf tólf að morgni 29. maí og sjá: Fram stigu þeir firna- vinsælu ísraelar Avi Kushiner og Nathan Datner og tóku að syngja Eurovisionslagar- ann Shir habatlanim með tilheyrandi látum. Frá því að þessir skondnu söngvarar og leikarar úr ferðaleikhúsi í fsrael gerðu fram- lag sitt til Eurovisionkeppninnar vfðfrægt hefur ekkert lát orðið á vinsældum þeirra hér á landi og ungir og aldnir hafa trallað lagið þeirra létta inn á fyrstu sæti vinsælda- lista útvarpsstöðvanna. Þeir Kushiner og Datner voru hér í boði Rásar-2 og veitingahússins Evrópa og héldu þá smáskemmtun við útvarpshúsið nýja í beinni útsendingu á rásinni. „Við komum ekki síst til að hitta góðvini okkar íslenska sem við kynntumst í Brussel," sögðu þeir félagar geðþekkir og hressir. Hér njóta þeir líka meiri vinsælda en meðal alvarlega þenkjandi dómnefnda Eurovisionkeppn- innar. . . göngu fyrir tónleika Smithereens nú eins og áður, spila þeir væntanlega tvö kvöld í Reykjavík. Smithereens spila einfalt og vandað rokk í anda áranna milli 1960 og 70 en eru þó engar afturgöngur fyrir týnda kynslóð í nostalgíuvanda, heldur framsækin og góð rokksveit í fullu gildi sumarið 1987- Aurora 2_______________________ Árni Páll og Eggert á Sveaborg í HERSKÁLANUM svokallaða á Svea- borg, eyju rétt fyrir utan Helsinki. hófst í byrjun maí samnorræn sýning á því sem mesta athygli vekur og því áhugaverðasta í listum á Norðurlöndunum um þessar mund- ir, nefnilega því sem á listamannamáli og ensku kallast installation eða uppröðunum verka með tilliti til rýmis. Sýningin ber yfir- skriftina Aurora 2 og þeir félagarnir Árni Páll og Eggert Pétursson taka þátt í henni fyrir íslands hönd. Þar sem Norræna lista- miðstöðin sem stendur fyrir sýningunni hafði boðið þeim báðum til Finnlands til að vera viðstaddir opnunina þótti tilvalið að grípa tækifærið og ræða við þá um þeirra hlut í sýningunni. Eftir að hafa fundið okkur stað í kaffikrók gallerísins til þess að ræða saman í friði og ró, segist Eggert vera með frekar gömul verk á sýningunni, aðallega olíumálverk en þó eitthvað frá því á sýningunni sem hanr hélt í Nýlistasafninu í vetur. Hann hefur þó bætt inn í tveimur glænýjum verkum fyrir þessa sýningu. Eggert vinnur eingöngu í tví- vídd, hann vinnur út frá rýminu jafnframt því sem hann tekur tillit til þess þegar hann setur verkin upp. Eftir því sem ný verk koma inn í myndina breytir hann svo upp- röðuninni. Hann kallar þetta málverk-in- stallation en það sé einmitt það sem hann hafi kennt í Myndlistaskólanum síðastliðin ár. Árni Páll er aftur á móti með nýleg verk á sýningunni, olíu á striga frá því í ár og í fyrra auk skúlptúrs sem hann vann á Húsavík en þangað er hann nýfluttur. Á Húsavík er hann með kytru heima hjá sér til að vinna í en fær einnig inni hjá kunningja sínum sem rekur Víkurbarðann, hjólbarðaþjónustu, þar í bæ. Eftir að hafa lokið námi í ljósmyndun kenndi Árni Páll við Myndlistaskólann > nokkur ár. Þar kenndi hann meðal annars filmuvinnu í tengslum við grafík og silki- þrykk. Hann segist hafa fengið áhuga á ljós- myndun í sambandi við „concept - bröltið' eins og hann orðar það; á meðan kunningj" arnir fóru í Myndlistaskólann fór hann og lærði ljósmyndun. Árni Páll og Eggert efast báðir um að nokkuð seljist á sýningunni þó að um sölu- sýningu sé að ræða. Þeir segja að reynslan hafi sýnt þeim að allflestir gestirnir kom> 3 opnunina en eftir það sé það aðeins einn og einn sem slæðist inn. Aurora 2-sýningin stendur fram til 26- júlí. Samtals tíu listamenn taka þátt í hennn tveir frá hverju Norðurlandanna. Það stóð til að sýningin færi svo á flakk um Norður- löndin í haust en það er allt óákveðið í þein1 efnum ennþá. ■ Guftrún Helga Sigur&ardóttir/Helsinki Árni Páll og Eggert. 54

x

Þjóðlíf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.