Þjóðlíf - 01.01.1990, Side 55
Aeropolis (teikning af skýjakljúfnum).
Aeropolis í loftið
Flugmiðar í
sjálfsala
Á næstunni geta farþegar
meö Lufthansavélum sjálfir
valiö sér flug og flugmiða.
Búiö er aö hanna sjálfsala
sem eru ámóta einfaldir í
notkun og sjálfsalar í járn-
brautaferðir. Sjálfsalarnir
verða m.a. settir upp í flug-
stöðvum víða í Þýskalandi.
Notkun þeirra byggist á svo-
kallaðri snertitækni („Touch-
screen-technology“), þannig
að farþeginn snertir tölur og
myndir á skjánum þegar
hann er að panta far og til-
heyrandi. Skjárinn er í beinu
sambandi við móðurtölvu
fyrirtækisins. Sjálfsalanum er
greitt með greiðslukorti, sem
hann les af sjálfur, og spýtir út
úr sér farmiða og þess háttar,
-eftir að hann hefur fengið
greitt...
— Byggt á Spiegel — óg
Flugmiðasjálfsali.
Japanar eru stöðugt með
hugann við að skjóta Banda-
ríkjamönnum ref fyrir rass.
Hæsta bygging í heimi er nú í
Chicago, 110 hæða skýja-
kljúfur. Þessi bygging fölnar
hins vegar í samanburði við
nýjustu hugdettu Japana; þar
hafa arkitektar og verkfræð-
ingar dundað sér við að
hanna stærsta skýjakljúf
heims — 500 hæða — 2001
metra háan risakljúf sem á að
geta hýst í einu um 300 þús-
und manns undir sama þaki,
þ.e. ef hann verður einhvern
tíma byggður. Þessi hópur
sérfræðinga hefur ekki látið á
sig fá, að kljúfurinn yrði á ill-
ræmdu jarðskjálftasvæði.
Gert er ráð fyrir þríhyrnings-
laga byggingarformi, sem
eigi að draga úr áhrifum jarð-
skjálfta, og nokkrum turnum
sem draga eigi úr áhrifum
vinda í þessu ferlíki. Þessir
bjartsýnu tæknimenn gera
ráð fyrir að það taki 25 ár að
byggja þennan skýjakljúf og
kostnaðurinn nemi um það bil
20400.000.000.00 kr. ís-
lenskum. Það eru því eftir í
þessu dæmi nokkur ef...
Seðlabankinn
bjargar málum
Þýski seðlabankinn hefur
reynst ríkisstjórninni í Bonn
notadrjúg tekjulind. Á árinu
1988 skilaði hann 10 milljarða
marka hagnaði og fékk fjár-
málaráðherrann Theo Waig-
el helming þess fjár til að
lækka skuldir ríkissjóðs. Og á
árinu 1989 er nú gert ráð fyrir
helmingi meiri tekjum en
áformað hafði verið hjá bank-
anum, eða um 14 milljarða
marka(um 476 milljarðar ís-
lenskra króna) í stað þeirra
sjö sem menn höfðu reiknað
með. Þessir sjö milljarðar
verða brúkaðir til að lækka
skuldafjall v—þýska ríkis-
sjóðsins, þannig að skuldirn-
ar vaxa ekki um 27 milljarða á
árinu 1990 heldur um 20 millj-
arða. Auk þessa telja sér-
fræðingar, að árið 1989 hafi
einungis verið fyrsta árið af
mörgum fyrirsjáanlegum
góðærum seðlabankans.
Hann fitnar aðallega á innan-
landsviðskiptum og þjónustu;
verðbéfaviðskiptum og líf-
eyrisþegapappírum margs
konar. Talið er að hagnaður-
inn gæti aukist um 20 millj-
arða á ári næstu árin...
— Byggt á Spiegel — óg
Leigulímonsíur færast mjög í vöxt. í hinni sérstxðu leit eftir einhverju sérstöku í velferðarþjóðfélaginu er
alltaf verið að fínna upp á einhverju nýju. í V—Þýskalandi hafa verð sett á laggirnar lúxusbílaleigur til að
sinna fólkisem villafeinhverju tilefni, afmæli, brúðkaupi eða einhverjuþess háttar, ferðast um álúxusbilum
með þjónustuliprum bílstjóra. í Hamborg eru t.d. níu fyrirtæki í þessari þjónustu og í Munchen fímm
fyrirtæki eingöngu íþessum bísniss.
ÞJÓÐLÍF 55