Þjóðlíf - 01.01.1990, Síða 59
SJÓNVARPSSTÖÐVAR
SKRIFAR FRÁ LUNDÚNUM
Akvæði stjórnarfrumvarpsins um
gæðakröfur sem nýju sjónvarps-
stöðvunum eru settar eru lauslega orðað-
ar. Sagt er að„ nægilegum tíma“ skuli var-
ið í „vandaðar fréttir og fréttaskýringa-
þætti, er fáist bæði við innanlandsmál og
alþjóðamál." Aðrir vandaðir þættir eiga
einnig að fá „nægilegan tíma“ og er sjálf-
stæðum framleiðendum ætluð 25% af allri
þáttagerð, þar af á „viðunandi hlutfall" að
verða framleitt í Evrópu. Stöðvarnar eiga
hér eftir sem hingað til að veita ýmsa sér-
hæfðari þjónustu s.s. texta fyrir heyrnar-
lausa, stutta áróðursþætti frá stjórnmála-
flokkunum og ennfremur á ITC að gera„
allt sem í þess valdi stendur“ til að tryggja
hæfilega framleiðslu á fræðsluefni fyrir
skóla. Uppfylli stöðvarnar ekki þessi skil-
yrði tekur ríkið í refsingarskyni 3% af
tekjum þeirra fyrsta starfsárið og 5% ann-
að árið.
Rás 4 sem nú er í eigu IBA mun verða
stjórnað beint af ITC í framtíðinni, en
stjórnarskipan verður að fá samþykki inn-
anríkisráðherra. Núverandi forráðamenn
rásarinnar hafa harðlega mótmælt því að
ríkisstjórnin fái svo mikil völd. Rás 4 á að
bjóða fram öðruvísi efni en Rás 3 að jafn-
aði, leggja áherslu á nýjungar og tilraunir
og fræðsluefni á að skipa háan sess. Hing-
að til hefur Rás 4 treyst á auglýsingar sem
Rás 3 hefur aflað, en henni er ætlað að afla
þeirra sjálf framvegis.
Mörg fleiri nýmæli eru í frumvarpinu,
ekki síst þau að útlendingum er settur
stóllinn fyrir dyrnar í bresku sjónvarpi og
eigendum annarra fjölmiðla er óheimilt að
eiga meira en 20% í sjónvarpsstöð.
Hvað vakir fyrir stjórninni með þessum
breytingum? Yfirlýst markmið hennar er
að afnema einokun þá sem ITV nú hefur á
einkastöðvunum og gefa almenningi kost
á meira valfrelsi með því að bjóða stöðva-
leyfrn út. En fáir hafa orðið til þess að taka
upp hanskann fyrir ríkisstjórnina í opin-
berri umræðu. Það er einkum ákvæðið um
uppboð sem hefur farið mest fyrir brjóstið
á mönnum og nær óánægjan langt inn í
raðir íhaldsflokksins. Gagnrýnendur
segja að þarna sé fórnað gæðum fyrir
markaðssjónarmið og telja að óljósar
gæðakröfur frumvarpsins styrki enn frek-
ar grun sinn í því efni.
Gamalkunnar röksemdir með og á móti
sjónvarpi sem hverri annarri söluvöru eru
viðraðar í allri þessari umræðu, enda þótt
ekki sé ætlun stjórnarinnar að láta mark-
aðsöflin leika lausum hala. Og enn og aft-
ur skýtur þeirri spurningu upp, hverskon-
ar valfrelsi það sé að fjölga rásum ef þær
verða hver annarri lík undir þrýstingi
samkeppninnar. „Sannleikurinn er sá“,
segir David Elstein, framkvæmdastjóri
Thames Television, „að markaðurinn
tryggir ekki af sjálfsdáðum fjölbreytni og
tilraunastarf í sjónvarpi. Ef mönnum er
ekki skylt að hafa barnaefni klukkan
fimm, þá verður ekkert úr því. Og þeir
munu bara sýna teiknimyndir nema skýrt
sé tekið fram að þeir verði að gera betur en
það. Hvorki þjóðmál, álitaefni né heim-
ildaþættir fá rúm á vinsælustu útsending-
artímum, nema ákvæði séu um það. Og
tilraunaefni mun ekki sjást.“
Andstæðingar frumvarpsins benda á
þróun sjónvarpsmála í Ástralíu á
undanförnum árum sem víti til varnaðar.
Þar var einkastöðvum geflð aukið frjáls-
ræði, sem leiddi af sér harkalega sam-
keppni. Afleiðingarnar urðu þær að sjón-
varpsefni hefur stórversnað, margir fram-
leiðendur eru farnir á hausinn og
einkastöðvarnar eiga í gríðarlegum fjár-
hagserflðleikum.
Þá finnst mörgum það slæmt að ríkis-
stjórnin sé að reyna að auka tekjur sínar af
sjónvarpi í stað þess að veita fénu aftur til
stöðvanna til að bæta efni þeirra. Stjórnar-
frumvarpið getur þess ekki hve miklar
tekjur ríkið fái með uppboðsfyrirkomu-
laginu, en gerir ráð fyrir að þær verði meiri
en áætluð leyfisgjöld árið 1992, 210 millj-
ónir sterlingspunda.
David Mellor, aðstoðarinnanríkisráð-
herra, telur gagnrýnendur taka alltof stórt
upp í sig, og tekur fram að frumvarpið sé
ekki endanlegt plagg; það eigi vafalaust
eftir að taka ýmsum breytingum í meðferð
þingsins. En stefna sú sem fram komi í
frumvarpinu sé rétt, vegna þess að hún
miðar að því að afnema forréttindastöðu
núverandi leyflshafa og gefa áhorfendum
kost á að velja um fleiri stöðvar.
0
ÞJÓÐLÍF 59