Þjóðlíf - 01.01.1990, Síða 60
VISINDI OG TÆKNI
FALSANIRIJARÐFRÆÐI
Falsanir í jarðfrœði: Jarðsaga Himalaya, lygasteinar og Piltdownmaðurinn
EFTIR ÓLAF INGÓLFSSON
Er hægt að blekkja fjölda vísindamanna í
áraraðir án þess að upp komist? Nú spyrja
jarðfræðingar hvort hinn heimsþekkti
indverski steingerfingafræðingur, pró-
fessor Viswa Jir Gupta, sé ómerkilegur
falsari eða hvort hann hafi gert uppgötv-
anir sem séu afgerandi fyrir túlkanir á
jarðsögu Himalayafjalla? Það veltur á
svarinu hvort jarðvísindin standi frammi
fyrir nýju hneyksli á borð við „lygasteina“
Behringers og Piltdownmanninn — týnda
hlekkinn í þróun mannsins sem reyndist
vera fölsun.
argt bendir til þess að Gupta, sem
fram til þessa hefur verið talinn
einn fremsti jarðvísindamaður Indlands,
hafi falsað gögn sín og blekkt samstarfs-
menn sína og vísindamenn um allan heim.
Það heyrir ekki til tíðinda að vísindamenn
séu ósammála og jafnvel deili opinberlega
um gögn og niðurstöður. En í máli Gupta
er ekki verið að deila um sýn innan vísind-
anna: Flest bendir til þess að Gupta, sem
er prófessor við háskólann í Punjab, hafi
kerfisbundið falsað gögn sín í a.m.k. ald-
arfjóðung. Markmið hans hafi verið að
sýnast mestur samtímamanna á sviði jarð-
sögu Himalayafjalla.
Blaðran sprakk í apríl síðastliðinn. Þá
birti ástralski steingervingafræðingurinn
John Talent harðorða
grein í tímaritinu Nature,
þar sem hann dró í efa gögn
Gupta frá afskekktum
svæðum Himalayafjall-
garðsins. Talent, sem sjálf-
ur hefur unnið að rann-
sóknum í Himalaya, full-
yrti að Gupta hefði gert sig
sekan um stórfellt svindl.
Steingervingar sem Gupta
hefði lýst og dregið af mik-
ilvægar niðurstöður hefðu í
raun alls ekki fundist í
Himalaya, heldur væru
komnir frá öðrum löndum.
Talent leiddi sannfærandi
rök að því að Gupta hefði
útvegað sér steingervinga
frá fundarstöðum í Amer-
íku og Afríku, auk Asíu, og
benti á að jarðfræðilegt
fornumhverfi steinger-
vinganna á hinum réttu fundarstöðum
þeirra væri framandi í Himalayafjöllum.
Talent sýndi fram á að mörg sýni Gupta
væru komin frá þekktum jarðmyndunum
utan Himalayafjalla, m.a. frá New York,
Oklahóma og frá Marocco.
Þá sýndi Talent fram á að Gupta hefði
notað sömu gögn í mismunandi vísindarit-
gerðum, en breytt fundarstöðum og túlk-
unum eftir hentugleika. Öðrum stein-
gervingafræðingum hefði verið gert erfitt
fyrir með að kanna sannleiksgildi gagna
Gupta með því að hann hefði meðvitað lýst
fundarstöðum steingervinga óljóst og illa.
í einu tilviki hefði lýsing fundarstaðar
verið svo óljós að fínkemba hefði þurft
fjallshlíðar á 130 kílómetra svæði til að
staðsetja hann. Þegar um er að ræða veg-
laus svæði í óravíðáttum Himalayafjalla,
þar sem skiptast á fjallstindar, djúp gil,
jöklar og beljandi fallvötn er óljós lýsing
fundarstaðar trygging þess að enginn
heimsæki hann. í öðru tilfelli var mikil-
vægur fundarstaður í fjallaskarði við
landamærin mót Tíbet sem lokað var allri
umferð annarra en landamæravarða og
hermanna.
upta virðist hafa útvegað sér sýni úr
söfnum eða keypt þau erlendis. Að-
fengna steingervinga, sem hann sagði
komna frá Himalayafjöllum, hefur hann
sent til sérfræðinga víða um heim til grein-
ingar. Greiningar samstarfsmanna sinna
hefur hann síðan notað til að draga álykt-
anir um tímatal í jarðsögu Himalayafjalla.
Þannig hafa viðkomandi fræðimenn í raun
að hluta til verið gerðir ábyrgir fyrir áreið-
anleika „steingervingafundarins". Á þann
hátt hefur hann kerfisbundið byggt upp
mynd af jarðsögu Himalayafjalla, sem
byggir á fölsun grunngagna. Gupta hefur
birt um 300 vísindagreinar síðustu 25 ár-
in, og orðstír hans hefur verið slíkur að
niðurstöður hans hafa komist inní fjölda
verka um jarðsögu svæðisins. Að mati Ta-
lent er illmögulegt að greina fölsuð gögn
frá réttum í steingerfmgafánu Himalaya,
og það er ómögulegt að meta áhrif tímatals
Gupta á rannsóknir annarra vísinda-
manna. í versta falli þyrfti að taka upp
þráðinn þar sem menn stóðu áður en
Gupta fór að birta niðurstöður sínar. Ta-
lent var ekki að skafa utanaf hlutunum
þegar hann sagði í niðurlagi greinar sinnar
að sumir steingervingafundir Gupta væru
álíka trúlegir og tilvist nashyrninga í Ríó
eða kengúra í Khasmir.
Grein Talent í Nature olli miklu fjaðra-
foki meðal indverskra vísindamanna. Dr.
A.K. Prasad, forstöðumaður Jarðvísinda-
stofnunar Punjabháskóla
(Centre or Advanced Stu-
dies in Geology), lýsti ásök-
unum Talents sem „sam-
særi til að hafa mannorðið
af framúrskarandi ind-
verskum vísindamanni",
og Vísindafélagið (Society
for Scientific Values) ákvað
að setja á stofn sérfræð-
inganefnd til að meta verk
Gupta. Margir hafa orðið
til að taka undir grunsemd-
irnar gegn Gupta. í sept-
emberhefti Nature birtast
yfirlýsingar þriggja sam-
starfsmanna hans, þar sem
slegið er föstu að því miður
séu ásakanir Talents á
hendur Gupta á rökum
reistar. Þeir segjast lengi
hafa haft Gupta grunaðan
um græsku, en ekki haft þá
Einfölduð mynd af „Lygasteini“ frá nágrenni Wiirzburg í Þýskalandi.
60 ÞJÓÐLÍF