Frjáls verslun - 01.01.2013, Qupperneq 32
32 FRJÁLS VERSLUN 1. 2013
ÞJÓNUSTUSÍMI
5 600 777
Í stuttu máLi
E
inu sinni bjó þjóð í landi fjarri
öll um öðrum löndum. Þó að
þjóð in væri ekki fjölmenn var hún
afskaplega hreykin af því að vera
sérstök þjóð. Þess vegna hafði
hún sitt eigið þing, eigin fána, eigin þjóðsöng
og eigin drottn ingu. Einn góðan veðurdag
uppgötvaði einhver að drottningin yrði fljót
lega sjötug og það væri sjálfsagt að þjóðin
gæfi henni viðeigandi gjöf á afmælinu. Einum
datt í hug að gefa henni góða bók, en í ljós
kom að hún átti bók. Loks mannaði einhver
sig upp í það að spyrja drottn inguna hvað
hana langaði mest í. Öllum á óvart svaraði
hún um hæl. Ekkert þætti henni jafn vænt um
frá þjóðinni og nýjan þjóðsöng.
Nú var úr vöndu að ráða. Mörgum fannst
gamli þjóðsöngurinn bara ágætur en sumir
bentu á að það væri erfitt að syngja hann,
sem óneitanlega væri ókostur við þjóðsöng.
Svo væri hann líka gamall, hefði verið saminn
árið 1874 og væri því alls ekki boðlegur nú
tímaþjóð. Allmargir risu til varnar gamla þjóð
söngn um og sögðu að hann væri kannski
ekki fullkominn og þess vegna mætti breyta
einhverju, en engin ástæða væri til þess að
semja alveg nýtt ljóð og lag.
Einhver vildi þá að leitað yrði til færustu
ljóð skálda og lagasmiða um hugmyndir, en
hann var hrópaður niður. Þjóðsöngur skyldi
saminn af þjóðinni sjálfri. Boðað var til sam
komu í höllinni og þangað boð ið þúsund
manns sem valdir voru af handahófi. Allir
máttu leggja eitthvað til. Niðurstaðan var að
fólk vildi fallegan, fjörlegan þjóðsöng sem
endurspegl aði menningu og yfirburði þjóð
arinnar en sýndi samt að hún tæki öllum opn
um örmum. Þrjátíu manna þjóðkjörinn hópur
trésmiða, lækna, presta, ræstitækna og fleiri
samdi svo lag og ljóð. Þegar einhver benti
á að lagið væri alls ekki taktvisst og í ljóðið
vantaði bæði rím, stuðla og höfuðstafi sagði
drottningin að það skipti engu, öllu skipti
einstakt ferlið. Tónlistarmenn sem settu út á
nýja þjóðsönginn væru öfundsjúkir níðingar
sem fyrirlitu þjóðina. Þess vegna fékk þjóðin
nýjan þjóðsöng. Á íþróttaviðburðum erlendis
brosti fólk þegar hann var spilaður og sagði:
Þetta er sérstök þjóð.“ bj
TímariTið vísbending
nýi ÞjóðSöngurinn
1 0 7. 0 6 1 . 9 5 8
Í öðrum sálmum tímaritsins Vísbendingar var nýlega pistill eftir Benedikt
Jóhannesson ritstjóra undir heitinu Nýi þjóðsöngurinn.
2 V Í S B E N D I N G • 4 4 T B L 2 0 1 2
Röð 12 Röð 11 Röð 10 Bæjarfélag Eink.12 Eink.11 Eink. 10 Meðaltal Staða
1 1 1 Garðabær 9,0 8,7 8,1 8,6 **
2 4 5 Akureyri 7,2 7,1 6,2 6,8 *
3 2 6 Snæfellsbær 6,8 7,4 5,5 6,6 *
4 6 4 Hornafjörður 6,7 6,8 6,2 6,6 *
5 5 14 Akranes 6,7 7,0 4,6 6,1 +
6 3 3 Dalvíkurbyggð 6,7 7,3 6,4 6,8 *
7 9 7 Eyjafjarðarsveit 6,3 5,9 5,5 5,9
8 7 18 Þingeyjarsveit 6,0 6,3 4,3 5,5
9 11 2 Seltjarnarnes 5,7 5,4 7,5 6,2 +
10 13 8 Vestmannaeyjar 5,4 5,1 5,4 5,3
11 16 20 Fjallabyggð 5,4 4,8 3,9 4,7
12 24 12 Ölfus 5,4 4,0 4,9 4,8
13 15 27 Fjarðabyggð 5,1 4,9 3,0 4,3
14 20 31 Borgarbyggð 5,1 4,2 2,8 4,0
15 10 11 Húnaþing vestra 5,1 5,5 4,9 5,2
16 18 26 Árborg 5,0 4,6 3,0 4,2
17 8 21 Reykjavík 5,0 5,9 3,8 4,9
18 26 19 Mosfellsbær 4,8 3,6 4,2 4,2
19 22 15 Hveragerði 4,6 4,1 4,6 4,4
20 17 33 Vogar 4,5 4,6 2,8 4,0
21 38 17 Vesturbyggð 4,4 2,0 4,3 3,6
22 23 32 Kópavogur 4,3 4,1 2,8 3,7
23 21 9 Rangárþing eystra 4,2 4,1 5,1 4,5
24 12 10 Bláskógabyggð 3,9 5,4 4,9 4,7
25 33 22 Garður 3,9 2,8 3,3 3,3
26 14 29 Norðurþing 3,9 5,0 2,9 3,9
27 19 16 Skagafjörður 3,8 4,3 4,5 4,2
28 29 35 Hafnarfjörður 3,7 3,0 2,3 3,0
29 25 23 Ísafjarðarbær 3,7 3,7 3,3 3,6
30 27 25 Grindavíkurbær 3,7 3,6 3,0 3,4
31 28 30 Stykkishólmur 3,6 3,5 2,9 3,3
32 30 34 Rangárþing ytra 3,4 3,0 2,7 3,0
33 34 28 Reykjanesbær 3,4 2,5 2,9 2,9
34 39 36 Álftanes 3,1 1,7 2,2 2,3
35 37 38 Fljótsdalshérað 2,7 2,1 1,0 1,9
36 36 24 Sandgerði 2,5 2,4 3,2 2,7
hægar en tekjurnar og staðan batnaði nærri
10% á þennan mælikvarða.
Lengi vel hefur mælikvarðinn skuldir
á íbúa verið talinn gefa góða vísbendingu
um fjárhagslega stöðu sveitarfélags. Í árslok
2011 var hún svipuð og á fyrra ári og nam
1,845 þúsundum króna en var um 1,840
þúsund krónur á mann að meðaltali yfir
landið allt árið 2010. Að raungildi er
þetta minnkun um 5%. Nettóskuldir, þ.e.
skuldir að frádregnum veltufjármunum,
voru 519 milljarðar króna í árslok.
Að þessu sinni er fyrst og fremst horft
á nettóskuldir á íbúa. Nokkur sveitarfélög,
einkum á Suðurnesjum, eiga talsverðar
peningaeignir og eðlilegt að tekið sé tillit til
þess þegar horft er á stöðuna.
Skuldugasta sveitarfélagið samkvæmt
þessum mælikvarða (sjá töflu 3) er
Reykjanesbær með 2,7 milljónir í skuld
á íbúa. Salan á skuldabréfinu fyrrnefnda
lækkar skuldirnar í 2,5 milljónir á íbúa
og Reykjanesbær er því enn skuldugasta
sveitarfélagið. Í höfuðborginni eru
nettóskuldir um 2,4 milljónir króna á
íbúa, en skuldir Orkuveitunnar eru afar
háar. Sandgerði, Fjarðabyggð, Álftanes og
Fljótsdalshérað eru öll með skuldir upp á
2,1 til 2,3 milljónir króna á mann. Þetta
hlutfall segir ekki allt. Sum sveitarfélög
hafa staðið í miklum framkvæmdum og
vænta þess að fá meiri tekjur til baka en
hin.
Einnig má horfa á hlutfall skulda af
tekjum ársins. Hlutfallið sýnir hversu
lengi sveitarfélögin væru að borga skuldir
sínar ef þau þyrftu ekkert að sinna rekstri
eða nýjum framkvæmdum. Hér er miðað
við að hlutfallið sé ekki hærra en 100%.
Eftirlitsnefndin hefur miðað við að
hlutfallið fari ekki yfir 150%. Hjá mörgum
sveitarfélögum er hlutfallið hærra en 200%
í árslok 2011 (sjá töflu 3) sem er mjög
alvarlegt veikleikamerki.
Fólksfjöldi
Sveiflur hafa verið í mannfjölda að
undanförnu. Fólki fjölgaði um 0,5% á
árinu 2010 og um 0,3% árið 2011. Þó
voru flutningar frá landinu meiri en til
þess. Fækkun ber það með sér að íbúarnir
telji að betra sé að búa annars staðar og
getur verið til vitnis um að ekki sé allt eins
og best verður á kosið í sveitarfélaginu sem
fækkar í.
Það er heppilegt að fólksfjöldi aukist
hóflega. Ef hann eykst of hratt er hætt við
að erfitt verði að veita öllum nýju íbúunum
þjónustu strax. Gatnagerð og aðrar
framkvæmdir vegna nýbygginga geta líka
komið niður á fyrri íbúum.
Tekjur og afkoma
Tekjur sveitarfélaganna á íbúa eru nokkuð
mismunandi. Mestar eru þær í Snæfellsbæ,
1.074 þúsund krónur á mann og litlu
minni í Fjarðabyggð eða 1.008 þús. kr. á
mann. Þessi tvö sveitarfélög voru einnig
tekjuhæst árið 2010. Tekjurnar eru innan
við 600 þúsund krónur á íbúa í Vogum,
Garði, Hafnarfirði og Kópavogi. Það er
að sjálfsögðu ekki markmið í sjálfu sér
að sveitarfélög afli mikilla skatttekna,
á næstunni er augljóst að sveitarfélög
verða mörg bæði að draga úr þjónustu og
fullnýta skattstofna.
Eðlilegt má telja að afgangur af rekstri
sé nálægt 10%. Allmörg sveitarfélög
voru með milli 10 og 15% af tekjum í
rekstrarafgang.
Útsvarsprósenta var víðast hækkuð úr
13,28% í 14,48%. Ekki er hægt að segja
að mikil fjölbreytni sé í útsvarsprósentunni
árið 2011. Lægst var hún hjá stærri
sveitarfélögum 13,66% í Garðabæ og
hæst 14,48%, en það er hún hjá flestum
sveitarfélögum á landinu.
Draumasveitarfélagið
Í umfjöllun sinni um sveitarfélög hefur
Vísbending útnefnt draumasveitarfélagið,
en það er það sveitarfélag sem er best
statt fjárhagslega samkvæmt nokkrum
mælikvörðum (sjá skilgreiningar um
einkunnir í kassa á bls. 4).
Einkunnagjöfin endurspeglar erfitt
árferði. Aðeins eitt sveitarfélag nær einkunn
yfir 8,0, en það er Garðabær með 9,0,
sem er ágætiseinkunn. Garðabær er því
draumasveitarfélagið þriðja árið í röð.
Tafla1: Einkunnir 36 stærstu
sveitarfélaganna
Útreikningar Vísbendingar
Samkvæmt Hafró drápust
30 þúsund tonn af síld í
Kolgrafafirði í desember
og 22 þúsund tonn aftur
í byrjun febrúar. Til að
setja þetta í samhengi er
síldveiðikvótinn á þessu
fiskveiðiári aðeins 10
þúsund tonnum meiri, eða
62.234 tonn, samkvæmt
Fiskistofu.
Útflutningsverðmæti tíu
þúsund ton a af íld er um
1,3 milljarðar svo á botni
Kolgrafafjarðar rotnar hvorki
meira né minna en sex og
hálfur milljarður. Það er
sama fjárhæð og kostar að
reka alla löggæslu í ríkinu,
Þjóðminjasafnið, utanríkis
ráðuneytið, Al i i og
skrifstofu forseta Íslands.
Og hve margar síldar
dóu í Kolgrafafirði? Ef
meðalþyngd hverrar er
um 480 grömm þá er fjöldi
sílda sem gáfu upp andann
í firðinum hvorki meira né
minna en 107.061.958
millj ónir. Þ ð var af nógu
að taka þegar menn byrj
uðu að tína í fjörunni.
Undarlegt náttúrufyrirbæri.
Alls 52 þúsund tonn af síld
syntu inn í Kolgrafafjörð og
gáfu upp andann.