Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2013, Page 35

Frjáls verslun - 01.01.2013, Page 35
FRJÁLS VERSLUN 1. 2013 35 að auðvelda erfið samtöl Thomas Möller segir að ein af áhugaverðustu stjórnunarbókum í dag sé bókin „Difficult Conversations – How to discuss what matters most“. Í henni er fjallað um það hvernig má ná árangri og minnka streitu þegar kemur að erfiðum samtölum, flóknum samningum og deilu­ málum. Höfundar bókarinnar, Stone, Patton og Heen, starfa við „Harvard Negotiations Pro­ ject“ sem aðstoðar ríkisstjórnir, sveitarstjórnir, hagsmunasamtök og stórfyrirtæki um allan heim við að leysa erfið ágreinings­ og samningamál. Thomas segir að efni bókar­ innar eigi vel við á Íslandi og er hafin þýðing á henni sem kemur út hér á landi í haust. Í kjölfarið verða haldin námskeið og veitt ráðgjöf þar sem stuðst er við aðferðir og efni bókarinnar. „Erfið samtöl koma við sögu á hverjum degi, bæði í starfi og einkalífi. Margir forðast erfið samtöl, deilur eða kröfugerð af því að þeir óttast afleiðingarnar, sem geta verið ósætti, höfnun eða jafnvel vinslit. Hæfileikinn að höndla erfið samtöl er einn mikilvægasti þáttur breytinga­ stjórnunar, samningagerðar og lausnar deilumála.“ Að sögn Thomasar telja höf­ undar bókarinnar að best sé að undirbúa erfið samtöl með því að greina orsakir og undirrót málsins og svara fyrst spurning­ unni „hvað gerðist?“. „Algeng­ ustu mistökin hér eru að gera viðmælanda upp ásetning í stað þess að skoða betur hvað sé raunverulega í húfi hjá honum. Síðan þarf að huga vel að þeim tilfinningum sem standa að baki ágreiningnum. Í lokin þarf að eiga sér stað innra samtal þar sem viðkomandi greinir jafn­ óðum eigin stöðu og hagsmuni. Virk hlustun og skýr samskipti eru lykilatriði í öllu ferlinu segja höfundar bókarinnar.“ Thomas segir að í bókinni sé fjallað á einfaldan og aðgengi­ legan hátt um þetta málefni með skýringardæmum sem sýna hvað ber helst að forðast í erfiðum samtölum. Að lokum er bent á leiðir til að takast á við erfiðar stöður sem upp koma. tHomaS möllER – framkvæmdastjóri Rýmis STJÓRNUN Ég hlustaði nýlega á Guðbjörgu Eddu Egg ertsdóttur, framkvæmda stjóra Actavis á Íslandi, fara yfir sögu fyrirtækisins og hvernig tókst að byggja upp þetta stórveldi á Íslandi. Þarna var um að ræða frumkvöðla, fjárfesta, hugsjóna­ menn, duglegt og skapandi starfsfólk og stjórnvöld sem lögðu ekki viljandi stein í götu fyrirtækisins.“ Árni Þór segir að það væri gaman ef fleiri svona stórkost­ leg tækifæri væru í farvatninu á Íslandi og að svona verkefni séu atvinnu­, arðsemis­ og gjaldeyris­ skapandi. Hann segir að það væri til dæmis auðvelt að efla lyfja iðn­ aðinn enn frekar með því að gera Lyfjastofnun kleift að annast skráningarvinnu fyrir evrópska efnahagssvæðið. „Það strandar víst á því að stjórnvöld leyfa ekki auknar mannaráðningar á sama tíma og það er verið að setja í gang ýmis úrræði fyrir atvinnu­ lausa! Það fólk sem væri ráðið í skrán­ ingarvinnu þarna fengi ágætis laun, aflaði gjaldeyristekna og sjálfsagt nytu Actavis og fleiri aukins hagræðis af slíku átaki. En þetta er sennilega of auðvelt og borðleggjandi þegar markmið númer eitt er að leggja stein í götu alls heilbrigðs rekstrar sem fær þrifist á landinu. Því er best að gleyma þessu í bili en telja niður dagana þangað til við losn­ um við þessa afreksmenn sem skipa ríkisstjórnina í dag.“ Margret Flóvenz segir að í frum­varpi sem liggur fyrir Alþingi um breytingar á lögum um árs­ reikn inga og bókhald hafi verið fellt út ákvæði um að svo kallaðir skoðunarmenn geti endurskoðað ársreikninga minni fyrirtækja og að jafnframt hafi verið sett inn ákvæði sem undanþiggur fyrirtæki undir ákveðinni stærð endurskoð­ unarskyldunni. „Það er hið besta mál og kannski löngu kominn tími til að minnstu fyrirtækin verði undanþegin endurskoðun­ arskyldu. Það er hins vegar áhyggjuefni að í frumvarpinu er þessum litlu félögum gert að kjósa sér skoðunarmann. Hlutverk hans og ábyrgð eru vægast sagt óljós en honum er ætlað að yfirfara og undirrita ársreikningana. Þessi hugtök, yfirferð og undirritun, eru algjörlega óskýrð. Það eru engar reglur um það hvað felst í yfirferð skoðunarmanns, ólíkt því sem á við um endurskoðun þar sem er viðamikið safn staðla liggur til grundvallar. Það er heldur ekkert um það í frumvarpinu hvað undirritunin felur í sér og þar af leiðandi ekkert um það hver ábyrgð þessa aðila er. Maður veltir því fyrir sér hvort skoðunarmaður geti gefið álit á reikningsskilum eins og endur­ skoðandi og þannig villt um fyrir notandanum. Félag löggiltra endurskoð­ enda benti á þetta í umsögn sinni um frumvarpið en það eru engin merki þess að það hafi verið tekið tillit til þeirra athugasemda. Í mínum huga er ljóst að þessi ákvæði eru ekki til þess fallin að veita notendum reikningsskila neina vissu eða auka öryggi þeirra á neinn hátt eins og menn hafa ætlað sér heldur getur þetta þvert á móti leitt til falsks öryggis.“ Er atvinnu-, arðsemis- og gjaldeyrisskapandi ÁRni ÞÓR ÁRnaSon – stjórnarformaður oxymap ehf. maRGREt flÓVEnz – stjórnarformaður kPmGEndurskoðun FYRIRTÆKJA- REKSTUR óljóst hlutverk og ábyrgð skoðunarmanns fjarverusamtal liður í mannauðsstefnu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.