Frjáls verslun - 01.01.2013, Side 38
38 FRJÁLS VERSLUN 1. 2013
Valdimar Sigurðsson seg ir að vörumerkjasögur séu að baki vörumerkjavirði og almennri ánægju
neytenda með vörumerki svo
sem hversu mikið þeir geta
og vilja tala um vörumerki.
Markaðssetning í gegnum umtal
fjallar um viðleitni fyrirtækja og
annarra til að ná fram jákvæðu
umtali og þar á meðal skrifum.
Í stuttu máli má segja að
markaðssetning með umtali
snúist um að gefa fólki ástæðu
til að tala um vörur, þjónustu
eða hvað annað sem verið er að
markaðssetja. Valdimar segir að
þetta sé sérstaklega mikilvægt
fyrir ferðamannaiðnaðinn hér
á landi þar sem um 20% af
gjaldeyristekjunum koma frá
ferðamönnum.
Valdimar tekur viskí sem dæmi
um vörumerkjasögu. „Það mynd
ast sérstakur sjarmi og merking ef
maður veit að drykkurinn kemur
frá Skotlandi, er eimaður í vissum
bæ og geymdur í sérstök um
tunnum og að elsti sonurinn tekur
alltaf við fyrirtækinu.
Það vantar að leggja meiri
áherslu á vörumerkjasögur hér
á landi, m.a. til að skapa jákvætt
umtal. Allir góðir markaðsmenn
eru sögumenn þar sem saga
gerir neytandanum kleift að læra
mun auðveldar um fyrirtækið,
nær athygli og eykur endurheimt
minnis og skilning. Það hefur
sýnt sig að þegar sögur eru
byggðar upp eru neytendur
miklu spenntari fyrir vörunni, hún
verður miklu persónulegri fyrir
þá og þeir eru tilbúnir til að borga
meira fyrir hana: „Hafið þið heyrt
um litla velska hótelið sem er í
eigu hjónanna sem …“
vörumerkjasögur
mikilvægar
dR. ValdimaR SiGuRðSSon
– dósent við við skiptadeild HR
MARKAÐS-
HERFERÐIN
skoðun
Þau Hafa orðið
Sigurður B. Stefánsson segir að hlutabréf í flestum kauphöllum veraldar hafi rokið upp í
verði á gamlársdag 2012 og eftir
opnun á nýja árinu þegar fjárfest
ar töldu að deildir Bandaríkja
þings næðu samkomulagi um
lausn á svonefndu fjárlagahengi
flugi. Hann segir að sú hækkun
sem þannig fór af stað fyrst í
janúar hafi haldið áfram hér og
þar, t.d. í London og Mexíkó og
í sumum greinum á Wall Street.
Annars staðar, t.d. í Þýskalandi
og í tæknigreinum á Wall Street,
hafa hlutabréf lækkað aðeins
í verði eftir áramótarokuna.
Heimsvísitala hlutabréfa hækk
aði um 3,7% á fyrstu þremur
vikum janúar 2013.
„Fjárfestar eru víða um heim
hugsi eftir að hlutabréf hafa náð
fyrri hágildum eftir mikla hækkun
á síðari hluta ársins 2012. Helstu
vísitölur liggja rétt undir eða rétt
yfir hágildum frá 2012, 2011
eða 2007. Margur virðist þeirrar
skoðunar að lengra verði ekki
haldið á hækkunarbrautinni að
svo komnu máli, ekki fyrr en eftir
nokkra leiðréttingu í verði eða
meltingartíma. Spár alþjóðastofn
ana um hagvöxt áranna 2013 og
2014 hafa verið lækkaðar allt frá
haustinu 2011.“
Sigurður bendir á að skuldir
ríkissjóðs Bandaríkjamanna fari
sívaxandi. „Halli á ríkisrekstri
þeirra er 7% af VLF og ekki
eru horfur á lækkun á næstu
misserum. Skuldir munu því
hækka upp undir 90% af VLF á
næstu þremur árum og skulda
vanda Evrópuþjóða og Japana
mun taka mörg ár að leysa. Allt
þetta er til þess fallið að draga
móðinn úr fjárfestum á hluta
bréfamarkaði. Til viðbótar koma
efasemdir margra þeirra um að
vísitölur geri rofið hágildi ársins
2007 án lengri aðdraganda.“
mikil hækkun alþjóð-
legra hlutabréfa í janúar
SiGuRðuR B. StEfÁnSSon
– sjóðstjóri hjá Eignastýringu landsbankans
ERLEND
HLUTABRÉF
DOW JONES MEðALTAL SÍðUSTU TÓLF MÁNUðI.
Ingibjörg Þórðardóttir segir að árið hafi farið nokkuð vel af stað á fasteignamarkaðnum og umtalsverð eftirspurn
sé eftir eignum. Hún segir að
vitaskuld hafi ýmislegt áhrif á eftir
spurnina eins og t.d. staðsetn ing
eigna og verð. Þá hafi sala á
atvinnuhúsnæði tekið veru lega
við sér að undanförnu sem
hugsanlega sýni að viss bjartsýni
ríki í atvinnulífinu þrátt fyrir að
það eigi langt í land og því mæti
miklir erfiðleikar.
„Fasteignasalar eru almennt
bjartsýnir á árið og telja að
tals vert líf eigi eftir að vera á
fasteignamarkaði en það sem
helst geti farið að há markaðnum
sé skortur á góðum eignum. Ein
hverjar byggingarframkvæmdir
eru þó hafnar eftir að bygging
armarkaðurinn stöðvaðist nær
alfarið í kjölfar hrunsins og það
leiðir vonandi til þess að meira
jafnvægi komist á markaðinn.
Byggingarframkvæmdir eiga þó
enn mjög undir högg að sækja
og byggingarverktakar halda að
sér höndum vegna óvissu.“
Bjartsýni í atvinnulífinu
inGiBjöRG ÞÓRðaRdÓttiR,
– formaður félags fasteignasala
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN