Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2013, Side 47

Frjáls verslun - 01.01.2013, Side 47
FRJÁLS VERSLUN 1. 2013 47 óna Valgerður Kristjánsdóttir, for maður Landssambands eldri borgara, segir að núverandi kerfi sé fátæktargildra og mikil reiði sé á meðal félagsmanna sinna yfir því að aldraðir með lífeyrisrétt fái stór skertan ellilífeyri frá Tryggingastofnun. Hún segir ennfremur mikla óánægju með að tekjuháir ellilífeyrisþegar með lífeyrisréttindi greiði meira til dvalar­ eða hjúkrunarheimila og „greiði niður“ vistina fyrir þá sem ekkert hafa greitt í lífeyrissjóði. „Þessi tekjutenging er fátækargildra sem aldraðir eru lentir í og það er ekki mögulegt að komast út úr henni nema hætta að skerða lífeyri umfram lágmarkið. En það kostar ríkið peninga,“ segir Jóna Valgerður. „Það er ekki fyrr en lífeyrisréttindin eru orðin verulega mikil að lífeyrisþeginn nýtur sparnaðarins í lífeyrissjóði sínum í einhverjum mæli.“ Jóna Valgerður segir að starfshópur um endurskoðun almannatrygginga, sem Lands samband eldri borgara á aðild að, hafi lagt fram tillögur um að draga úr skerð­ ingunni í áföngum á næstu fjórum árum en sú áætlun hafi ekki enn komist inn á fjárlög. Núna hafi ríkisstjórnin afgreitt frumvarp um þessi mál og segir Jóna Valgerður afar litlar líkur á að það verði afgreitt á Alþingi þar sem um svo stórt mál er að ræða. Bent hefur verið á að í raun sé ekkert frá öldruðum tekið þótt ellilífeyrir Trygg­ ingastofnunar skerðist með aukn um lífeyrissparnaði aldraðra. Jóna Val gerð ur segir að ekki fari á milli mála að elli líf eyris ­ þegar hafi misst tekjur frá Trygg inga stofnun vegna tekjutenginga og að þær hafi raunar verið hertar í tíð núverandi ríkisstjórnar. „Lífeyrissparnaðurinn skilar sér ekki auka­ lega við ellilífeyrinn þegar á að taka hann út. Munurinn á milli þeirra sem hafa lagt í lífeyrissjóði og þeirra sem það hafa ekki gert er of lítill upp að 300 þúsund krónum á mánuði í lífeyristekjur. Þess vegna segja margir ellilífeyrisþegar að lífeyris sparn að ur­ inn þeirra sé í reynd orðinn sparn aður fyrir ríkissjóð.“ Jóna Valgerður spáir því að minnst tuttugu ár líði áður en hægt verður að tala um heildstætt lífeyriskerfi í landinu. „Það sitja ekki allir ellilífeyrisþegar við sama borð og tilraunir til að koma öllum að borðinu hafa vakið óánægju – og jafnvel leitt til dóms­ mála.“ Hún segir að eftir áratuga greiðslur í lífeyris sjóð fái eigandi lífeyrissparnaðar aðeins 20 þúsund krónum meira í vasa pen­ inga á mánuði þegar hann fer á hjúkr­ unar­ eða dvalarheimili en sá sem á engan lífeyrissparnað. Sá fyrrnefndi fær að halda eftir 70 þús. kr. á mánuði af lífeyristekjum sínum í ráðstöfunarfé en sá sem ekkert hefur sparað fær 50 þús. kr. á mánuði í vasapening frá Tryggingastofnun. Kerfið er tvöfalt og á meðan svo er kemur upp togstreita. Annars vegar er grunnlífeyrir og bætur frá Tryggingastofnun ríkisins. Hins vegar eru svo lífeyrisréttindin sem fólk öðlast með því að borga í lífeyrissjóð á langri starfsævi. Eðlilega eru þessi réttindi mjög breytileg eftir lífeyrissjóðum, starfsstéttum og þátttöku á vinnumarkaði. Grunnlífeyrir Tryggingastofnunar ríkisins getur núna mestur orðið 210.992 kr. á mán­ uði, 180.691 kr. í ráðstöfunartekjur eftir skatta, og þá fyrir fólk sem býr eitt. Hæstur getur ellilífeyririnn með lyfja­ og lækniskostnaði og uppbót vegna rekstrar bifreiðar hjá hreyfihömluðum orðið 231.453 kr. á mánuði hjá þeim sem búa einir og nam hann 271.625 kr. í desember sl. með desemberuppbót. Hjá þeim sem búa ekki einir er hámarksupphæð fyrir utan upp­ bætur um 175 þúsund kr. á mánuði. Heimavinnandi safnar til dæmis ekki í opinbera lífeyrissjóði og sjálfstæðir vinnu­ veitendur hafa stundum „sparað“ sér líf­ eyrisgreiðslurnar. Lífeyriseign á Íslandi er raunar með því mesta sem gerist í heiminum – en réttindin breytileg. fátæKtargiLdra jÓna ValGERðuR kRiStjÁnSdÓttiR, foRmaðuR landSSamBandS EldRi BoRGaRa Það er ekki mögulegt að komast út úr þessari fátæktargildru nema hætta að skerða lífeyri umfram lág- markið en það kostar peninga. Lífeyrissparnaður er núna fyrst og fremst orðinn sparnaður fyrir ríkið. Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, formaður Landssambands eldri borgara. „Þessi skarpa tekju tenging er fá­ tæktargildra sem aldraðir eru lentir í og það er ekki mögu legt að komast út úr henni nema hætta að skerða líf eyri umfram lág­ markið.“ Grunnlífeyrir Trygg ­ ingastofnunar rík­ i s ins getur núna mestur orðið 210. 992 kr. á mán uði, eða 180.691 kr. í ráðstöf unartekjur eftir skatta.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.