Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2013, Page 60

Frjáls verslun - 01.01.2013, Page 60
60 FRJÁLS VERSLUN 1. 2013 „Ég segi oft að Hag ar eru flott asta fyrir tæk ið sem ég hef nokk urn tím ­ ann kynnst. Skil ­ virkn in og töl­ fræðin er hreint ótrúleg …“ Stundum er sagt að lífið sé fremur hringrás en línuleg þróun. Náttúran stýrist í það minnsta af ákveðinni hringrás sem hefur í för með sér sköpun og endursköpun með eyðileggingu á milli. Eða ættum við að segja endurnýjun? Svo virðist sem fyrirtækjarekstur stýrist af líkum þáttum og þeir sem halda að hægt sé að halda öllu óbreyttu fara villir vegar. En stundum getur endurnýjunin haft á sér ófyrirséðar hliðar. Það sést best á því að nú hefur Erna Gísladóttir aftur tekið við sem forstjóri BL. Því til viðbótar situr hún í stól stjórnarformanns Sjóvár auk ýmissa annara verkefna sem hún hefur komið að á undanförnum árum. Óhætt er að fullyrða að Erna sé í framvarðarsveit þeirra kvenna sem hafa orðið meira áberandi í íslensku viðskiptalífi eftir hrun. En Erna er svo sem ekki óþekkt í íslensk­ um fyrirtækjarekstri. Hún var forstjóri Bifreiða & landbúnaðarvéla hf. 2003­2007 og einn af eigendum þess félags, en hún var framkvæmdastjóri B&L árin 1991­2003. Erna er menntuð MBA frá IESE Barcelona og B.Sc. í hagfræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur undanfarin ár starfað við eigin fjárfestingar en aðalfjárfestingarfélag hennar er EGG ehf. Erna er ræðismaður Suður­Kóreu á Íslandi. Hún er stjórnarfor­ maður Sjóvár og situr í stjórn Haga. Þá er Erna í varastjórn Viðskiptaráðs Íslands. Ljóst er að hér er ekki slegið slöku við enda er það ekki beinlínis það sem Ísland þarf á að halda í dag. Nú, fimm árum eftir að fjölskylda Ernu seldi B&L, hefur hún ákveðið að setjast aftur í bílstjórasætið hjá fyrirtækinu sem afi hennar stofnaði á sínum tíma. Arnar Bjarnason, forstjóri BL, lét um leið af störf um hjá félaginu en hann var ráðinn til fyrirtækisins fyrir rúmum þremur árum til að endurskipuleggja það eftir að fjármálalegir erfiðleikar höfðu knúið það í fang lánastofnana. En nú er BL semsagt aftur komið til afkomenda Guðmundar Gíslasonar, sem stofnaði félagið árið 1954 og rak það lengi með syni sínum Gísla. Guðmundur lést á síðasta ári, 92 ára að aldri, og lifði því að sjá fyrirtækið komast aftur í hendur fjölskyldunnar. Þriðja kynslóðin kom að félaginu á níunda áratugnum og Erna, sem heitir í höf uðið á ömmu sinni, Ernu Adolphsdótt­ ur, hóf störf hjá fyrirtækinu árið 1987 og var forstjóri þegar félagið var selt. Hún stóð upp úr stólnum í kjölfar eigendaskipta þeg ar dótturfélag fjárfestingarfélagsins Sunds keypti allt hlutafé bílaumboðsins árið 2007. Væntingar kaupenda gengu ekki eftir og Íslandsbanki, Landsbankinn og Lýsing tóku bæði bílaumboðin yfir eftir bankahrunið vegna skuldavanda þáver­ andi eigenda. Fyrirtækin voru sett saman í söluferli 2011 og átti félag í eigu Ernu Gísladóttur og Jóns Þórs Gunnarssonar, eig inmanns hennar, besta boðið. Endurskipulagningunni lokið Erna segir að það hafi ekki endilega verið ætlunin að setjast aftur í forstjórastólinn þegar fyrirtækið var keypt, hún hafi þó verið opin fyrir því að sú staða gæti komið upp. Að sögn Ernu er það vísbending um að endurskipulagningu fyrirtækisins sé lokið og nú sé horft meira fram á við. „Þetta er líklega tímapunktur til að gera breytingar,“ segir Erna við blaðamann þar sem við höfum hreiðrað um okkur á skrifstofu hennar – sem vel að merkja var í eina tíð skrifstofa Ingvars Helgasonar, stofnanda samnefnds fjölskyldufyrirtækis, en fyrirtækið sem Erna kaupir nú er heldur stærra en það sem hún seldi á sínum tíma. Það er því ekki hægt annað en að stoppa við þá óvenjulegu atburðarás sem hefur gert það að verkum að Erna er aftur orðin eigandi að félaginu sem selt var fyrir nokkrum misserum, að sumra mati ein best heppnaða salan fyrir bankahrunið, að minnsta kosti fyrir þann sem seldi! Erna aftekur þó aðspurð að salan hafi verið vegna þess að hún hafi séð bankahrunið fyrir. „Við ákváðum að selja 2007 því að það kom gott tilboð í félagið en það hafði ekki verið til sölu og við höfðum ekki áætlað að selja. Það væri ágætt að geta barið sér á brjóst og látið eins og ég hefði séð þetta fyrir en svo var ekki. Tilboð kom og við slógum til, flókn ara var það nú ekki.“ FjölskylduFélaginu slitið Og enn hefur Erna ákveðið að slá til en rétt er að hafa í huga að hún kemur nú á eigin forsendum inn í félagið. Í þetta sinn er fjölskyldan ekki með en faðir Ernu og bróðir, Gísli Guðmundsson og Guðmundur Gíslason, hafa snúið sér að öðrum verkefn­ um. Við söluna 2007 var ákveðið að slíta fjölskyldufyrirtækinu og þau höfðu áhuga á að fara hvert í sína áttina. „Við ákváðum að hætta að tala bara um bíla í öllum fjölskylduboðum. Við vildum fara og prófa að starfa hvert í sínu lagi og faðir minn og bróðir hafa ákveðið að hasla sér völl á öðrum vettvangi. Það er vitaskuld nokkur breyting en svona hefur þetta bara raðast.“ Erna segist ekki hafa ætlað sér beinlínis að fara aftur inn í bílgreinina en eftir að bankarnir hófu endurskipulagningu fyrir­ tækja var ljóst að bílaumboð yrðu þar á lista. Til að byrja með skoðaði hún kaup á Heklu en aðrir urðu þar hlutskarpari þó að Erna kæmist í lokaval þriggja aðila. Þegar hennar gömlu umboð komu í sölu ákvað Erna að láta slag standa, þá miklu frekar sem áhugavert viðskiptatækifæri fremur en að hún vildi fá sitt gamla fyrirtæki. Erna aftekur að eitthvað slíkt hafi vakað fyrir sér þótt vissulega sé ánægjulegt að hitta aftur gamla samstarfsmenn og viðskiptavini. Aðspurð segir Erna að hröð breyting hjá erlendum aðilum valdi því að flestir þeir sem hún áður átti viðskipti við séu horfnir á braut. Þá hafi henni ekki þótt við hæfi að halda við sambandi við erlenda viðskipta­ vini eftir að félagið var selt. „Það kemur sjálfsagt mörgum á óvart hve ör manna­ skipti eru þarna úti.“ risi á íslEnskum bílamarkaði Kaupin á BL eru því alfarið hennar og af­ drif verkefnisins ráðast af hennar forystu. Vitaskuld er eftir þessum breytingum tekið í bílgreininni. BL eins og það er í erna Hjá bL SPÓlað af stað Í landi Hafta
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.