Frjáls verslun - 01.01.2013, Qupperneq 69
FRJÁLS VERSLUN 1. 2013 69
TexTi: svava jÓnsdÓTTir Myndir: Geir Ólafsson
FKA – verðlaunin 2013 afhent í Ráðhúsinu:
fKaviðurkenningin 2013 til
margrétar guðmundsdóttur:
Gaman að setja
saman GÓð tEymi
M
argrét Guðmundsdóttir, for
stjóri Icepharma, hlaut FKA
viðurkenninguna 2013. „Fyrir
suma er það töluvert álag að
vera stjórnandi, sérstaklega
þegar kemur að starfsmannamálum. En
mér finnst gaman að vinna með fólki og
setja saman góð teymi.“
Auk forstjórastarfsins er Margrét stjórnar for
maður N1, fráfarandi formaður Félags atvinnu
rekenda og forseti ESTA (European Surgical
Trade Association) sem eru evrópsk samtök
dreifingarfyrirtækja á sviði hjúkrunarvara.
Framkvæmdastjórn Icepharma er skipuð
fjórum konum og tveimur körlum.
„Það er ánægjulegt að sjá þær breytingar
sem eru að verða á viðskiptaumhverfinu í
dag,“ segir Margrét.
„Við sjáum sífellt fleiri konur hasla sér völl
í stjórnunarstöðum og ég held að löggjöfin
– það er sú breyting sem á að eiga sér
stað 1. september um kynjakvóta í stjórnum
fyrirtækja – hafi ýtt við mörgum þannig að
flest fyrirtæki eru þegar farin að haga sér í
samræmi við þá löggjöf. Ég tel að sú þróun
sé af hinu góða og breyti viðskiptalífinu
vegna þess að konur hafa oft aðrar áherslur
en karlmenn.“
Margrét segir að viðurkenning FKA sé
jákvæð og hvetjandi. „Stór hluti af starfsemi
Icepharma felst í samskiptum erlendra birgja
og við störfum á markaði þar sem heiðar
leiki og gott siðferði skiptir verulega miklu
máli. Svona viðurkenning er staðfesting á
því að við erum að gera rétta hluti eða öllu
heldur að við erum að gera hlutina á rétt an
hátt. Fyrir sjálfa mig var þetta náttúrlega
mjög ánægjulegt og ég fyllist ákveðinni
auðmýkt yfir því að fá svona viðurkenningu
eftir þessi ár á vinnumarkaðnum. Það er
ekki hægt að segja annað.“
vann erLendis í mÖrg ár
Margrét á langan og farsælan feril að baki
sem stjórnandi, bæði í Danmörku og á
Ís landi. Eftir að hún lauk framhaldsnámi
frá Copenhagen Business School starfaði
hún um árabil í Kaupmannahöfn. Fyrst hjá
Dansk Esso og sat síðan í níu ár í fram
kvæmdastjórn Q8 og bar ábyrgð á ólíkum
sviðum eins og starfsmannamálum, upp
lý s ingatækni og sölu og markaðsmálum.
Eftir að hún flutti aftur til Íslands starfaði
hún sem framkvæmdastjóri hjá Skeljungi
og Austurbakka þar til henni var falið að
sameina þrjú fyrirtæki – Austurbakka, Ice
pharma og Ísmed – undir nafni Icepharma
árið 2005.
„Ég var búin að vinna erlendis í mörg ár,
koma að stórum fyrirtækjasamruna, sinna
lykilhlutverki í að byggja upp nýtt fyrirtæki
og nýja vinnustaðamenningu auk þess að
koma að ýmsum stórum og smáum um
breyt ingarverkefnum í gegnum fyrri störf.
Ég held að það nýtist okkur hjá Icepharma
vel, ekki síst í því rekstrarumhverfi sem við
búum við núna.“
fLeiri viðurKenningar
Þegar Margrét er spurð á hvað hún leggi
áherslu sem forstjóri Icepharma segir hún
að það hljómi klisjukennt en það skipti máli
að vera með gott fólk með sér. „Mér hefur
alltaf fundist gaman að vera stjórnandi, sem
er ekki endilega gefið mál.
Fyrir suma er það töluvert álag að vera
stjórnandi, sérstaklega þegar kemur að
starfsmannamálum. Mér finnst gaman að
vinna með fólki, að setja saman góð teymi.
Ég er frekar lausnamiðuð og óttast ekki
að takast á við erfiðleika. Þar fyrir utan
er auðvitað mikilvægt að hafa skilning á
starfs umhverfi fyrirtækisins, geta séð fram
í tímann og lagt áherslu á heildarmyndina
frekar en að festast í smáatriðum.“
„Það á ekki að fara fram úr
sjálfum sér“
Margrét Guðmundsdóttir, forstjóri Icepharma,
fékk FKAviðurkenninguna.
Guðrún Lárusdóttir, forstjóri Stálskips,
fékk þakkarviðurkenninguna.
Samtök verslunar og þjónustu fengu gæfusporið.
Signý Kolbeinsdóttir og Helga Árnadóttir,
eigendur Tulipop, fengu hvatningarviðurkenninguna.
„Ég er frekar lausnamiðuð
og óttast ekki að takast á við
erfiðleika. Þar er mikilvægt
að hafa skilning á starfsum
hverfi fyrirtækisins, geta séð
fram í tímann og lagt áherslu
á heildarmyndina frekar en
að festast í smáatriðum.“
Margrét Guðmundsdóttir.