Frjáls verslun - 01.01.2013, Síða 73
FRJÁLS VERSLUN 1. 2013 73
Menntunin síðast
Hann var í björgunarsveit flug
hersins, meðal annars í Ví etn am,
og að lokinni herþjónustu tók
atvinnulífið við. Hann varð sölu
maður og stjórnandi hjá banda
rískum stálframleiðanda, stofn aði
síðan eigið fyrirtæki í „stálbrans
anum“ og græddist fé.
Þegar Rick var orðinn ríkur
seldi hann fyrirtækið. Það var
árið 1989 og hann ætlaði að
hætta vinnu en tók að sér tvö
verkefni við að endurskipu
leggja illa stödd fyrirtæki.
Árang urinn vakti athygli og Rick
var nauðugur viljugur kominn
inn á nýtt svið. Hann var orðinn
ráðgjafi í stjórnun og rekstri en
alveg ómenntaður í faginu.
„Ég stofnaði ráðgjafarfyrirtæki
með félaga mínum og fór um
leið að leita mér háskólamennt
unar. Það gekk í áföngum með
vinnu og áður en 15 ár voru
liðin var ég kominn með æðstu
háskólagráðu,“ segir Rick.
Rick lauk doktorsprófi í stjórn
un árið 2005 en er kominn á
eftirlaunaaldur eftir því sem oft
gerist í Bandaríkjunum. Hann
hafði ætlað að setjast í helgan
stein þegar fyrirtækið var selt
árið 1989. Hann byrjaði á því
að vinna og græða og fór svo í
nám og enn meiri vinnu.
Menntun er góð en
ekki allt
Rick byggir ráðgjöf sína bæði
á eigin reynslu og menntun.
„Menntun er mjög góð. Í skóla
lærir maður að hugsa hlutlægt,
lærir að nota kenningar og sjá
hlutina í stærra samhengi. En
kenningarnar passa ekki alltaf
við raunveruleikann. Þá er gott
að geta staðið báðum fótum á
jörðinni,“ segir Rick um viðhorf
sitt til menntunar.
Sem ráðgjafi fékk hann of
mikið að gera. Hann enda sent
ist út og suður við fyrirlestrahald
og vinnu við að endurskipu
leggja fyrirtæki. Sum voru stór,
önnur smá, og vandi fyrirtækj
anna lá oft hjá stjórn þeirra.
„Þegar ráðgjafi kemur í fyrir
tæki óttast allir um vinnu sína.
Ráðið er oft að segja upp fólki
og stundum er það óhjákvæmi
legt en vandinn byrj ar aldrei hjá
fólkinu á gólfinu. Hann byrjar á
toppnum,“ segir Rick.
Hann segist því oft hafa orðið
að leggja til uppsagnir til að
bjarga einhverjum störfum en
framtíðarlausnin felst í því að
skóla stjórnendur fyrirtækisins
að nýju.
Missa jarðsambandið
„Ég hef veitt því athygli að oft
myndast skil á milli stjórnenda
í fyrirtæki og þeirra sem eiga
að vinna vinnuna,“ segir Rick.
„Stjórnendurnir eru allir mjög
hæfir í stjórnun en það hefur
til dæmis gleymst að skóla þá
í sölumennsku. Ef varan eða
þjónustan selst ekki skiptir
engu hve mikið stjórnendurnir
vita um stjórnun.“
Þetta hefur sannfært Rick
um að besta ráðið í stjórnun
sé að halda sig á jörðinni.
„Ég byggi þetta bæði á minni
eigin reyn slu sem sölu og
markaðsmaður og menntun á
sviði stjórnunar,“ segir hann.
Núna er hann búinn að selja
upphaflegt ráðgjafarfyrirtæki
sitt en sinnir sex völdum við
skipta vinum í Bandaríkjunum
og Kanada.
„Ég sinni núna bara þeim
viðskiptavinum sem ég vil hafa
og bara ef mér finnst að ég
hafi eitthvað fram að færa. Ég
vil ekki halda í viðskiptavini
til þess eins að hafa af þeim
peninga. Þarf þess ekki,“ segir
Rick.
Golf með Kristmanni
í Pfaff
Milli þess sem Rick gefur ráð
skrifar hann bækur og greinar
um stjórnun og heldur nokkra
fyrirlestra á ári. Í hléum leikur
hann golf með Kristmanni í Pfaff
á Flórída.
„Ég tek mér alltaf góð frí og þá
erum við hér hópur sem njótum
lífsins í The Village á Flórída. Ég
kynntist Kristmanni í gegnum
golfið. Hann er afskap lega góður
félagi og hefur vit á viðskiptum
en við reynum að tala um allt
annað þegar við erum úti á
vellin um,“ segir Rick og hlær.
Hann lýsir starfsemi sinni
sem eins konar blöndu af
rekstrar ráðgjöf og markþjálfun.
„Markþjálfun er það sem allir
íþróttaþjálfarar hafa gert um
langan aldur: Það er að reyna
að laða fram það besta í hverj
um einstaklingi,“ segir Rick.
„Mínar hugmyndir ganga út á
að rekstrarráðgjöfin og mark
þjálfunin fari saman,“ segir Rick
og um þetta hefur hann skrifað
bækurnar, sem nú eru orðnar
þrettán.
Dekkið og malbikið
Rick notar gjarnan líkingamál
til að koma boðskap sínum á
framfæri. Hann segir að færir
stjórnendur breytist oft í ein
mana úlfa í stað þess að vera
forystuúlfar. Ein af bókum hans
heitir einmitt „Turning Lone
Wolves Into Lead Wolves“.
Hann líkir einnig fræðum
sínum við það þegar hjólbarði
snertir malbik: Markmiðið er
ekki að spóla með miklum lát
um og reyk heldur að komast
áfram! Stjórnun fjallar um „dekk
ið og malbikið“ að mati Ricks.
Rick hefur líka skrifað ung l
inga bók um rótleysi mótunar
áranna og nauðsyn þess að
taka réttar ákvarðanir til að
komast áfram í lífinu.
Í fyrirlestrum sínum og grein
um leggur hann áherslu á
mjúkan stjórnunarstíl. Hinn „al
valda stjórnandi“ heyrir sögunni
til að mati Ricks. Fyrirtækjum er
stjórnað af teymum sem vinna
saman.
lítil trú á Obama
Um leið segist Rick vera fremur
íhaldssamur maður. Hann hefur
ekki trú á að hægt sé að koma
fyrirtæki á réttan kjöl með því
að auka eyðsluna. Það sama á
við um ríkið. Það er ekki hægt
að „eyða sig út úr vandanum“,
segir Rick.
Um framtíð bandarísks efna
hagslífs á síðara kjörtímabili
Baracks Obama forseta segist
Rick ekki óttast kreppu en spáir
að það verði mjög hægur vöxt
ur eða jafnvel stöðnun.
„Það liggur núna mikið fjár
magn ónotað. Það fer að lokum
út í fjárfestingar og kemur í
veg fyrir kreppu. En eyðslu og
skattastefna Obama dregur úr
vextinum,“ segir Rick.
Rick er því engin launung á
að hann studdi Mitt Romney
í liðnum forsetakosningum.
„Með Romney hefði ríkið verið
skorið niður, dregið úr eyðslu
og skattar lækkað. Það hefði
leitt af sér myndarlegan vöxt
og mörg ný atvinnutækifæri. Ég
studdi Romney 100%,“ segir
Rick Johnson.
„Stjórnendur eru
allir mjög hæfir í
stjórnun en það hef
ur til dæmis gleymst
að skóla þá í sölu
mennsku. Ef varan
eða þjónustan selst
ekki skiptir engu hve
mikið stjórnendurnir
vita um stjórnun.“
„Ef varan eða þjón
ustan selst ekki
skipt ir engu hve
mik ið stjórnendurnir
vita um stjórnun.“
stjórnun