Frjáls verslun - 01.01.2014, Side 28
28 FRJÁLS VERSLUN 1. 2014
Við stöndum vörð
um fjármuni þína
Strandgata 3, 600 Akureyri I Sigtún 42, 105 Reykjavík I Sími: 460 4700 I iv iv.is @
www.iv.is
Leitar þú að traustum og óháðum aðila til að ávaxta fjármuni þína?
Kynntu þér málið á iv.is eða talaðu við sérfræðinga okkar í síma 460 4700
Íslensk verðbréf eru sjálfstætt, sérhæft eignastýringarfyrirtæki sem
hefur þjónað einstaklingum og fagfjárfestum í meira en tuttugu og
fimm ár og býr að mikilli reynslu og þekkingu á verðbréfamarkaði.
fréttir
Þ
etta verður í ellefta
sinn sem Nordic
e Mark eting stendur
fyrir ráðstefnunni
Reykjavík Internet Marketing
Conference, RIMC, og verður
hún haldin 28. mars á Grand
hóteli. Þemað að þessu sinni
er „Big Brands Online“ eða
hvernig stór vörumerki haga sér
á netinu í að miðla skilaboðum
til markhópa sinna.
„Tilgangur ráðstefnunnar er
einfaldur; hann er hreinlega að
upplýsa íslenska markaðinn um
hvað hægt er að gera á netinu,“
segir Hreggviður S. Magnús
son, framkvæmdastjóri Nordic
eMarketing.
„Netið er öflugur markaðs
miðill en Íslendingar hafa
verið örlítið eftir á í notkun
hans; hugsanlega út af smæð
mark aðarins. Það hefur þó
orðið mikil vakning á síðustu
árum á notkun netsins sem
markaðsmiðils og þá sérstak
lega fyrir ferðaþjónustufyrirtæki
sem sækja viðskipti á erlenda
mark aði, en þá nýtist vel sér
þekking fyrirtækja eins og
Nordic eMarketing. Við vekjum
athygli á vöru og/eða þjónustu
íslenskra fyrirtækja á erlendum
mörkuðum, t.d. í Þýskalandi,
Frakklandi, Bretlandi og Noregi.
Með notkun Googleauglýsinga
er hægt að ná til markhópa í
þessum löndum og það kunn
um við vel.“
Áhugaverðir fyrirlesarar
Nokkir erlendir fyrirlesarar
munu tala á ráðstefnunni og þar
má nefna Paul Daniel Tholen
frá Heineken. „Hann er fram
kvæmdastjóri fyrir samfélags
miðla Heineken en þetta
vörumerki er einstaklega sterkt
á netinu. Hann þarf í starfi sínu
að hugsa um hvernig best er að
nýta vörumerkið og koma því á
framfæri á jákvæðan hátt með
notkun samfélagsmiðla.“
Koen Spiers er yfirmaður
sam félagsmiðla hjá hollenska
flugfélaginu KLM og skýrir á
ráðstefnunni frá því hvernig
hann kemur skilaboðum þess á
framfæri í gegnum þá. „Þetta á
vel við á Íslandi þar sem hér eru
starfandi tvö flugfélög sem nýta
netið sem markaðsmiðil í sölu
og uppbyggingu vörumerkisins
á jákvæðan hátt.“
Jan Grönbech, framkvæmda
stjóri Google í Noregi, mun fjalla
um áhrif YouTuberásarinnar á
sjónvarp og hvernig auglýsend
ur geta nýtt þennan miðil á
markvissan hátt.
Þá mun Ajit Sivadasan, for
stjóri Lenovo, halda fyrirlestur
og segir Hreggviður að það
sé mikill heiður að fá hann á
ráðstefnuna. „Fyrirtækið er með
viðskipti í rúmlega sjötíu löndum
og er þekkt út um allan heim.
Hann mun fjalla um vegferð
þessa stóra vörumerkis á netinu
út frá sjónarmiði stjórnandans.“
Evrópsku leitarvélaverðlaunin
Að kvöldi sama dags
verða svo haldin Evrópsku
leitar véla verðlaunin 2014.
„Þá verða netmarkaðs setn
ingar stofur sérstaklega verð
launaðar fyrir árangursríkar her
ferðir fyrir vörumerki sín,“ segir
Hreggviður. „Þetta er í þriðja
sinn sem verðlaunin verða veitt,
en þau voru veitt í Amsterdam
fyrir tveimur árum og í Barce
lona í fyrra. Búist er við að um
þrjú hundruð manns frá öðrum
Evrópulöndum komi á hátíðina,
bæði frá auglýsingastofum sem
og fyrirtækjum.“
Nordic eMarketing er tilnefnt
til fimm verðlauna en fyrirtækið
markaðssetur vörur og þjónustu
í gegnum netið á mörgum
tungu málum.
„Fyrirtækið okkar er t.d. til
nefnt fyrir vel rekna Googleher
ferð á ellefu tungumálum fyrir
WOW Air og sem besta stofan
í Evrópu. Það er að sjálfsögðu
mikill heiður að fá svona tilnefn
ingar á alþjóðavísu. Keppinaut
ar okkar skipta hundruðum sem
sækjast eftir þessum verð laun
um. Það er ljóst að þjón usta
okkar í netmarkaðssetn ingu
skilar árangri.“
Ráðstefnan Reykjavík Internet Marketing Conference,
RIMC, verður haldin 28. mars á vegum Nordic eMar-
keting. Á meðal fyrirlesara verða m.a. starfsmenn frá
Heineken, KLM, Google í Noregi og lenovo.com.
Hreggviður S. Magn ússon.
„Tilgang ur ráðstefn unnar
er einfaldur; hann er hrein
lega að upplýsa íslenska
markaðinn um hvað hægt
er að gera á netinu.“
Hegðun stórra vörumerkja á netinu
TexTi: svava jónsdóTTir / Mynd: Geir ólafsson
ráðstefnan reykjavík Internet marketing Conference:
Hreggviður S. Magnússon, framkvæmdastjóri Nordic eMarketing.