Listin að lifa - 01.03.2004, Blaðsíða 12
FRÆÐSLUHORNIÐ
Ágætu lesendur!
Glebilegt ár og bestu þakkir fyrir bvatningu og góbar uppskriftir.
Ég boröa nú alltaf minn Gabríelsgraut, sagöi ötul heilsuræktarkona viö mig
á nýju ári. Grautinn þekkja eflaust margir. Viö nánari athugun þykir hann í
senn góöur í morgunverö og nesti t.d. fyrir þá sem stunda langar göngur
og þá sem taka meö sér nesti í feröalög. Ódýr, holl fæöa og góö fyrir melt-
inguna. Forsvarsmaöur „Móöir jörö", Vallanesi, sem sérhæfir sig í lífrænni
ræktun, veitti fúslega leyfi til aö birta uppskriftina:
Morgungrautur Gabríels
3 dl bankabygg
9 dl vatn
11/2 tsk salt
2 epli, skorin í litla teninga
1-2 dl rúsínur
1 msk kanill
2 msk muldar hnetur, sólblómafræ eða graskersfræ og ann-
að góðgæti eftir smekk, t.d. aðrar tegundir af þurrkuðum
ávöxtum, svo sem brytjuðum sveskjum, döðlum eða
aprikósum.
Hráefnið er sett í pott, t.d. að kvöldi. Suðan látin koma vel
upp eða soðið í nokkrar mínútur. Slökkt undir pottinum,
lokið sett á og grauturinn er tilbúinn að morgni. Borðaður
heitur eða kaldur með mjólk, sýrðum mjólkurvörum, epla-
safa eða berjasaft. Geymist vel í lokuðu íláti í kæli.
Áhugavert að aðlaga uppskriftina að eigin þörfum og ósk-
um.
Fljótlegar, hollar veitingar frá Jónu á Hellu
Brauðsneiðar, salatblöð, melóna, agúrka, paprika (2 litir)
Hreinsið grænmetið. Flysjið melónu og gúrku (takið fræin
úr gúrkunni). Skerið melónuna í stóra, flanga bita, en gúrku
og papriku í lengjur. Ristið brauðsneiðarnar. Leggið salat-
blöð á hverja brauðsneið og grænmetið þar yfir. Berið fram
með grænmetissósu (t.d. E. Finnsson) ef vill og ávaxtatei.
Verði ykkur að góðu.
Athugið! Salatblöð og annað blaðgrænmeti verður frískara,
ef það er lagt í kalt vatn og látið í plastpoka í kæliskáp í
nokkra tíma áður en það er notað. Setjið lítil göt á pokann.
Kartöflustappa með beikonbragði
Burstið kartöflumar (rauðar, íslenskar) vel úr köldu vatni
og sjóðið. Hellið vatninu af og hrærið kartöflurnar (með
hýði ef vill) í pottinum með sleif. Bætið smjöri og mjólk í
hræruna. Bragðbætið með „Bac’n Pieces” frá MCormick.
Verðlaunakleinur Jakobínu á Hvanneyri
4 bollar hveiti
1 bolli strásykur
2 dl rjómi
2 dl súrmjólk
2egg
2 tsk lyftiduft
2 tsk þurrger
1/2 tsk natron
1/2 tsk hjartasalt
2 tsk kardimommudropar
2 tsk vanillusykur
Deigið á að vera frekar lint. Kleinur eru góðar (misgóðar
þó), en sé þeim dýft ofan í rabbabarasultu þá eru þessar
ómótstæðilegar. Jakobína Jónasdóttir.
Ástarkrans Ólu frænku
200 g smjör
200 g sykur (2 dl)
3egg
200 g hveiti (31/4 dl)
11/2 tsk lyftiduft
Hrærið smjör, sykur og egg vel saman. Blandið hveiti og
lyftidufti saman við. Setjið deigið í tvö smurð tertumót í
botn og upp með börmum mótsins.
Fylling:
1-2 epli
1-2 bananar
100-200 g döðlur
50-100 g suðusúkkulaði
20-30 g kókosmjöl (1 dl)
60 g púðursykur, ljós (3/4 -1 dl)
Flysjið eplin og afhýðið bananana. Skerið epli, banana og
döðlur í litla bita og saxið súkkulaðið. Blandið púðursykri
og kókosmjöli saman við. Setjið fyllinguna jafnt yfir deigið
í mótunum. Bakið við 180 gráðu hita í 35^40 mínútur.
Kakan er góð volg eða köld með þeyttum rjóma ef vill.
Frysta má kökuna og velgja hana í örbylgjuofni áður en
hún er borin fram.
12