Listin að lifa - 01.03.2004, Blaðsíða 65

Listin að lifa - 01.03.2004, Blaðsíða 65
Dundhúsið hans Páls er fullt af trékubbum, hálfgerðum mun- um og fínslípuðum tréskálum. Hvílík paradís fyrir afabörnin! húsasmíðameistari og þar sem ég var búinn að taka frá honum elstu dótturina, varð hann að taka mig sem lærling. Magnús var einstakt ljúfmenni og aldrei varð okkur sund- urorða. Sveitin heillar: Að loknu sveinsprófi fluttum við í Reykholt og byggðum okkur íbúðarhús og smíðaverkstæði, Smiðjuholt var fyrsta iðnaðarbýlið í sveitinni. Vinnuflokk- ur vaskra drengja myndaðist fljótlega. Saman byggðum við víða um héraðið og bjuggu þeir hjá okkur meira og minna öll árin. Þetta var samhentur, skemmtilegur hópur, bæði í vinnu og frístundum, og setti svip á félagslífið í sveitinni og laðaði marga að svo oft var fjör í kotinu. Allt gekk vel þar til annar vinnuflokkur yfírtók staðinn og hóf byggingu á nýjum skóla. í ágúst 1964 yfirgáfum við Smiðjuholt og fluttum á mölina. Allur vinnuflokkurinn fylgdi okkur og hafa þeir og fjölskyldur þeirra verið okkar fólk alla tíð. Úr þorskbeinum skapar Edda fugla og margskonar myndir. Þarna eru ömmubörn á handverkssýningu sumarsins. Reykjavíkurárin voru Fóstbræðraárin mín: Fljótlega eftir komuna suður gekk ég og tveir lærlingamir mínir í Karlakórinn Fóstbræður. Við tókum drjúgan þátt í kórstarf- inu, ekki síst innréttingu Fóstbræðraheimilisins, ég var reyndar byggingarstjóri. Mér er sagt að heimilisfang mitt hafi verið við Langholtsveginn meðan á framkvæmdum Skálarnar hans Páls eru skemmtilegar fyrir kökur og snakk. Prjónastokkurinn þjónar líka sínu hlutverki. stóð. Við Fóstbræður sungum bæði hér heima, í Rússlandi, Ameríku og víðar. Allar ferðimir eru ógleymanlegar, ekki síst vegna góðs félagsanda. Fóstbræðrafélagarnir og konur þeirra eru okkur afar kærir eftir nær tveggja áratuga sam- veru. Nám og störf í höfuðborginni: Við vorum ákveðin í að gera eins gott úr malardvölinni og við gátum. Eg fór í meistaraskólann og Edda lærði tækniteiknun. Seinna sótt- um við réttindanám í Kennaraháskólann. I tuttugu ár var ég byggingameistari í Reykjavík, sá m. a. um byggingar og breytingar á Landsbanka og Seðlabanka, Laugalækjarskóla og víðar. Síðast vann ég sem ráðningastjóri hjá Breiðholti h.f. en fékk fljótt nóg af þeim rekstri. Þá kom að því að í fyrsta skipti á æfinni stóð ég uppi atvinnulaus. Eitt af þessu óskiljanlega í lífinu: Fjölbrautarskólinn í Breiðholti var þá nýtekinn til starfa og ég rak augun í aug- lýsingu eftir kennara á tréiðnaðarbraut, sótti um og var ráð- inn. Kennsla hafði aldrei komið upp í hugann, en þama kenndi ég í átján ár og barðist fyrir jafnræði á milli bók- náms og verknáms. Ekki veit ég hvort sú barátta hefur haft áhrif, en mikil þörf er á að opna augu ráðamanna fyrir því að allt nám sé jafn mikils metið. Um sjötugt hætti ég kennslu, veiktist og varð blindur á öðru auga. Þá ákváðum við að flytja í sveitina okkar. 65
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Listin að lifa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.