Listin að lifa - 01.03.2004, Blaðsíða 37
Greiðslur frá T.R. og skattamál
frá 1. janúar 2004
Upphæð greiðsluflokka almannatrygginga,
skattleysismörk og persónuafsláttur
Elli/örorkulífeyrir (grunnlífeyrir) 21.249
1/2 hjónalífeyrir 21.249
Full tekjutrygging ellilífeyrisþega 41.655
Full tekjutrygging örorkulífeyrisþega 42.678
Heimilisuppbót, óskert 17.469
Sérstök heimilisuppbót, óskert 0
Tekjutryggingarauki einstaklings 20.540
Tekjutryggingarauki sambýlings 16.488
Örorkustyrkur 15.937
Vasapeningar 21.249
Bensínstyrkur 7.968
Allar tryggingagreiðslur hækkuðu um 3% frá 1. janúar 2004.
Til viðbótar því hækkuðu tekjutrygging og tekjutryggingarauki
um 2.000 kr. á mánuði samkvæmt samkomulagi frá 19.
nóvember 2002.
Frítekjumörk og fleira
frá 1. janúar 2004
Óskertur grunnlífeyrir með tekjum að................143.002
Niðurfelling grunnlífeyris við......................213.832
Tekjutrygging byrjar að skerðast við tekjur..........45.888
Niðurfelling tekjutryggingar við tekjur.............138.455
Niðurfelling tekjutr. ef maki er ekki á lífeyri við.170.042
Óskert heimilisuppbót v/tekna að.....................45.888
Niðurfelling heimilisuppbótar við tekjur............138.455
Vasapeningar skerðast um 65% við tekjur ..............6.843
Vasapeningar falla niður við tekjur..................39.534
Persónuafsláttur á mán...............................27.496
Skattleysismörk á mán................................71.270
Skattprósenta....................................... 38,58%
Frítekjumörk hækkuðu frá 1. janúar 2004 um 14,7% nema frí-
tekjumark vasapeninga, sem hækkaði um 50%.
Gleymið ekki afsláttarkortinu!
Þjónustubókin á heima í innkaupatöskunni.
Til athugunar varðandi tekjuáætlun
frá T.R. sem var send út til
ellilífeyrisþega í nóvember 2003
Tekjur úr almennum lífeyrissjóðum voru í áætlun
T.R. hækkaðar um 10% frá tekjuárinu 2002, en
samkvæmt upplýsingum frá Landssamtökum líf-
eyrissjóða ætti hækkunin að vera um 5%. T.R.
hefur ekki ákveðið, þrátt fyrir ábendingu frá fé-
laginu, að leiðrétta þetta, nema til komi skrifleg
beiðni frá ykkur. Við hvetjum því alla, sem fá
greiðslur úr almennu lífeyrissjóðunum, til að
senda inn beiðni um slíka leiðréttingu. Hægt er
að taka síðasta ársyfírlit frá lífeyrissjóðnum
og margfalda með 1,025 og þá kemur út sú
upphæð sem miða á við.
Upplýsingar frá Tryggingastofnun
ríkisins:
Tekjutryggingarauki skerðist ekki vegna
búsetu erlendis
Þann 17. desember sl. kvað úrskurðamefnd al-
mannatrygginga upp tvo úrskurði sem varða
skerðingu bóta vegna búsetu erlendis. Athyglivert
í þessum úrskurðum er það sem snýr að greiðslu
tekjutryggingarauka, en í úrskurðarorði segir m.a.:
„Réttur til tekjutryggingarauka skal ekki skerðast
vegna búsetu erlendis."
í úrskurðinum kemur fram að mat úrskurðar-
nefndar sé, að ekki sé heimilt að skerða tekju-
tryggingarauka vegna búsetu erlendis nema með
skýrri lagaheimild. Þá lagaheimild sé ekki að
finna í almannatryggingalögunum og því skuli
greiða tekjutryggingarauka án tillits til búsetu-
tíma hér á landi. í kjölfar þessa úrskurðar hófst
Tryggingastofnun handa við að leiðrétta greiðsl-
ur til þeirra lífeyrisþega sem fengið hafa skertan
tekjutryggingarauka. Inneignin (eingreiðsla) var
greidd út með febrúargreiðslu Tryggingastofnun-
ar og hlutaðeigandi sent bréf með tilkynningu
þess efnis.
Upplýsingar frá Reykjavíkurfélaginu:
Heilsa og hamingja
á laugardögum í Asgarði, kl. 13.30.
Neysla og hreyfing, 27. mars.
Aftur kemur vor í dal, 15. maí.
Silfurlínan
opin mánudaga og miðvikudaga kl. 10-12.
Ókeypis ráðgjöf fyrir félagsfólk í lögfræðimál-
um, fjármálum og almannatryggingum.
Aðstoð við skattframtal þriðjudaginn 16. mars.
Pantið tíma á skrifstofunni í síma 588-2111.
Munið að minningarkort fást á skrifstofunni.
37