Listin að lifa - 01.03.2004, Síða 27
Brennistaðir: Líkur benda til að nafnið sé komið af því
að birkikjarr hafi verið brennt til að fá bæjarstæði og land
til slægna. Mannsnafnið Brennir er víst aðeins til á skáld-
aðri persónu.
Hríssund: Nafn á mýrasvæði rétt neðan þjóðvegar,
lagður 1953-’55. I Flókadal voru mýrar víða vaxnar fjall-
drapa sem gat orðið meira en hnéhár, en var að mestu horf-
inn fyrir 1940. A þessu svæði gæti hafa verið birkikjarr og
örnefnið því mjög gamalt.
Kirkjusund: Gamla hestagatan lá yfir hálsinn og var
jafnframt leiðin í Reykholt, sóknarkirkjuna. „Kirkjuvegur
langur og strangur,“ segir í Jarðabók Arna Magnússonar og
Páls Vídalín. Leiðin lá um Vegahrygg, varðaða leið, en
hluti af henni voru Þrívörður.
Þrívörður: standa á klapparholtum niður undan Kirkju-
sundi. Þarna voru þrjár vörður með örlitlu millibili fast við
götuna. Fróður maður í jarðfræði telur þetta vera leifar af
ævafomri eldstöð. Nokkrar ísaldir gætu verið síðan hún var
virk.
Gvendarbyrgi: Ofurlítið byrgi í litlum urðarfláka.
Byrgið var smalakofi, kennt við Gvend nokkum sem var
smali á fyrstu árum aldarinnar.
Já, smalakofarnir veittu skjól, hrísið hita í húsin og hest-
arnir skeiðuðu eftir kirkjusundinu með fólkið í andlega og
félagslega upplyftingu. Stórum fróðari yfirgefum við Edda
Brennistaði.
Bílaleigan AKA
Vagnhöfða 25
567 4455
0afíarameisíarimu
Cler í gegn
Dalshrauni 11- Hafnarfir&i
sími 555 6599
Árbæjarapótek
Sirai: 553 1099 - Fax: 56« 4499
Vib veitum eldri
borgurum afslátt
ATLAVÍK
Fögruhlíb 17
Eskifirhi
sími 476 1600
HITAVEITA SUÐURNESJA
sœlkeraverslun
osta
búðin
Skólavörðustig
Blönduósbær
Lyf]AVAl
A P Ó T E K
Microsoft
Business
Solutions
VÍSA
27