Listin að lifa - 01.03.2004, Qupperneq 30
KYNNING:
Stjórn Markarholts og arkitektar á lóð félagsins daginn sem
formlega var skrifað undir hönnunarsamning milli Yrkis
arkitektastofu og Markarholts.
Sérstaða Markarholts felst í nýrri framtíðar-
sýn. Markarholt leggur áherslu á samhæfða,
heildstæða þjónustu sem eflir fólk til sjálf-
stæðrar búsetu - þjónustu sem svarar vænt-
ingum og óskum um lífsgæði - að bygging-
ar endurspegli hugmyndafræði félagsins og
leggi grundvöll að lifandi samfélagi sem við-
haldi og örvi fólk til sjálfstæðrar búsetu.
Árið 1999 fékk Markarholt fyrirheit um lóð í Mörkinni
með aðkomu frá Suðurlandsbraut, en í Voga-, Heima- og
Sundahverfi er hæsta hlutfall eldri borgara í Reykjavík en
þar eru hvorki þjónustubyggingar né sérhannaðar íbúðir.
í ársbyrjun 2002 sendi Markarholt erindi til Skipulags-
og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar vegna breyttra for-
senda af hálfu heilbrigðisráðuneytis. Nú var stefnt m.a. að
einbýlum á hjúkrunarheimilum. Félagið þurfti því að sækja
um aukið byggingarmagn á lóðinni.
í ágúst 2003 samþykktu borgaryfirvöld aukið byggingar-
magn. Stjórn félagsins ákvað þá að efna til arkitektasam-
keppni og gekk til samstarfs við Arkitektafélag íslands um
boðskeppni. Af 35 áhugasömum arkitektastofum voru 7
valdar til þátttöku. Úrslitin voru kynnt í maí sl. Tillaga
Yrkis arkitekta var valin til frekari úrvinnslu, en samstarfs-
aðilar Yrkis eru Verkfræðistofan Hönnun og Verkfræði-
stofa Jóhanns Indriðasonar.
Á lóð félagsins verða byggðar íbúðir, þjónustukringla,
(fjölþjónustukjami) og umönnunar/hjúkmnarrými. Kröft-
ugur hópur kemur að formlegri hönnun bygginganna. Verk-
efnið er stórt, framkvæmdir upp á u.þ.b. 3 milljarða króna.
í boði eru íbúðir sem eru um 65, 85, 95 og 115 fermetrar.
Markarholt
sjálfstætt félag opib öllu áhugafólki
meb nýja framtíbarsýn í
þjónustu vib eldri borgara
Mjög stór áfangi var í hönnunarferlinu 28. janúar s.l. á
fundi skipulags- og byggingamefndar Reykjavíkur, þegar
tillaga um breytingu á deiliskipulagi í Sogamýri var sam-
þykkt til auglýsingar. Samþykktunum var vísað til borgar-
ráðs, en á fundi þar 10. febrúar var auglýsing um breytt
deiliskipulag samþykkt. Nú fer í gang undirbúningur að
grenndarkynningu sem stendur í 6 vikur. Útboðsgögn
íbúða verða tilbúin í ágúst. í september er ráðgert að jarð-
vegsframkvæmdir hefjist. Fyrstu íbúðir verða afhentar í
desember 2005 og aðrar íbúðir eftir áramót.
Landsbanki íslands hefur verið fjármögnunaraðili fé-
lagsins og hefur það samstarf gengið mjög vel. Þegar kem-
ur að aðkomu félagsmanna að íbúðum, m.a. fjármögnun,
munu starfsmenn bankans veita persónulega ráðgjöf. Þegar
allir þættir er snúa að félagsmönnum liggja fyrir geta þeir
tekið sínar ákvarðanir varðandi íbúðir.
Markarholt boðar nýja framtíðarsýn í þjónustu og hefur
kynnt hana Reykjavíkurborg og heilbrigðisyfirvöldum. Frá
upphafi hefur félagið óskað eftir samstarfi og samningi við
heilbrigðisráðuneytið um fjölgun hjúkrunarrýma og þjón-
ustu sem fellur undir þátttöku ríkisins. Valdið er í höndum
ríkisins varðandi samstarf og þátttöku í heilbrigðisþjónust-
unni. Vonast er til að samkomulag sé að nást.
Fjöldi einstaklinga er skráður í félagið, en hugmynda-
fræði Markarholts höfðar til eldra fólks, eins og sjálfstæð
búseta með heildstæða þjónustu heima og heiman, heima-
hjúkrun, dagvistir, göngudeildarþjónusta og umönnun-
ar/hjúkrunaríbúðir, þegar önnur úrræði eru fullreynd.
Reykjavíkurborg hefur ætíð sýnt félaginu mikið traust,
eins og sjá má í lóðarmálum og þátttöku í byggingarkostn-
aði hjúkrunarrýma. Þjónustukringlan mun standa öllum
opin óháð búsetu. íbúar Markarholts munu hafa ekki for-
gang umfram aðra.
HEIMA ER BEST er kjörorð félagsins. Framtíðarsýn
Markarholts er að fyrirbyggja eða seinka langtíma sólar-
hringsvistun í hjúkrunarrýmum með öflugri þjónustu fyrir
fólk sem býr heima.
símar: 568-0522 og 864-6059
30