Listin að lifa - 01.03.2004, Qupperneq 50
HÚSBÍLAFERÐIR
- eru hentugur ferðamáti fyrir fríska eldri borgara,
segir Hafsteinn Þorvaldsson
Hugurinn stefnir ósjaldan til aukinna ferðalaga þegar um
hægist og fólk fer á eftirlaun. Margir draumastaðir eru á
ferðalistanum, bæði innanlands sem utan, og tækifærin sem
aldrei fyrr.
Á undanförnum árum hafa félög eldri borgara staðið fyr-
ir fjölbreytilegri ferðaþjónustu fyrir félagsmenn sína, oftar
en ekki í stærri hópum, bæði hér innanlands sem og til út-
landa. Með tilkomu nýrra félaga í okkar raðir sem hafa
mikla reynslu af ferðalögum, hef ég nokkurt hugboð um að
skipulögðum hópferðum, þar sem tugir félagsmanna ferðist
saman, fari fækkandi, að fólk kjósi fremur að ferðast í fá-
mennum hópum, eða jafnvel hjón og sambýlisfólk eitt og
sér. Stærri hópferðir verða þó áfram til.
Þá hafa möguleikar til ferðalaga tekið miklum breyting-
um á síðustu árum, bæði er varðar framboð þjónustuaðila í
flutningum, gistingu, mat og afþreyingu. Tjaldvagna, felli-
og hjólhýsaferðir, og nú í auknum mæli húsbílaferðalög
innanlands sem utan. Húsbílaeign landsmanna hefur vaxið
mjög á síðustu árum, bæði hafa menn útbúið slík farartæki
sjálfir og með aðstoð annarra. Nú fer reyndar notuðum bíl-
um erlendis frá fjölgandi sem og nýjum.
Við hjónin keyptum okkur nýjan húsbíl síðastliðið vor,
eftir að hafa átt sumarbústað á fallegum stað uppi í Laugar-
dal í tíu ár, og þar áður ferðast talsvert innanlands með
tjaldvagn og hjólhýsi. Bfllinn okkar er frá Víkurverki hf,
Fiat Clipper 80, árgerð 2003.
Með aukinni húsbflavæðingu hafa áningarstaðir á ís-
landi sumir hverjir bætt þjónustu sína með tilliti til þessa,
en engan veginn allir. Nú verður líka sífellt greiðara að fara
með slíkan farkost til útlanda eftir að ferjan Norræna hóf
siglingar hingað. Á nýju ári fer ferðum hennar fjölgandi og
stefnt að því að sigla hingað allt árið. Gaman er að sjá hve
margir eldri borgarar hafa á síðustu árum tekið við sér í
húsbflavæðingunni og nýtt sér þennan ferðamáta, einir sér
eða í hópferðum fleiri eða fæm saman.
Eftir sumarið í fyrra þar sem við ferðuðumst enn einu
sinni um landið okkar dásamlega og ókum á nýja bflnum
yfir 5000 km, mælum við hjónin eindregið með slíkum
ferðamáta, þar sem maður er í öllu sjálfs síns herra og ræð-
ur án mikils fyrirvara sínum næturstað. Eldar sér mat og
hitar kaffísopa þegar hentar, hlustar á útvarp og sjónvarp -
getur farið í sturtu að vild, með heitt og kalt vatn og full-
komna snyrtingu innan dyra. Ágæt gaseldavél og upphitun
er í bílnum okkar og svefnpláss fyrir fjóra, án þess að prfla
nokkuð upp í hæðir.
Með þessari hugleiðingu læt ég fylgja mynd frá ferðum
okkar í húsbflnum í fyrrasumar. Með áramótakveðju.
c)(a£sU>mn. 'íPawalcLs&otv,
Selfossi
50