Listin að lifa - 01.03.2004, Side 52
Auglýsing um fasteignagjöld
i Reykjavík áríð 2004
Álagningarseðlar fasteignagjalda í Reykjavík 2004 verða sendir út næstu
daga sem og greiðsluseðlar fyrstu greiðslu. Hægt verður að greiða með
boðgreiðslum, og fylgir umsóknareyðublað vegna þess. Toilstjórinn í
Reykjavík sér um innheimtu gjaldanna.
Fasteignagjöldin skiptast í fasteignaskatt, lóðarleigu, holræsagjald,
vatnsgjald og sorphirðugjald.
Framtalsnefnd úrskurðar um breytingar á fasteignaskatti og holræsagjaldi
eftir yfirferö skattframtala elli- og örorkulífeyrisþega. Þarf þvi ekki að sækja
sérstaklega um lækkun eða niðurfellingu þessara gjalda. Þeirsem fengu
lækkun á fasteignaskatti og holræsagjaldi á liðnu ári, fá að óbreyttum
aðstæðum einnig lækkun á árinu 2004, að teknu tilliti til tekju- og
eignaviðmiðunar.
Borgarráð hefur ákveðið að tekjumörk vegna lækkunar fasteignaskatts og
holræsagjalds á árinu 2004 hækki um 8°/o á milli ára og verði eftirfarandi
miðað við tekjur liðins árs:
100% Lækkun:
Einstaklingar meó tekjur allt að
Hjón með tekjur aLlt aó
80% Lækkun:
Einstaklingar með tekjur á biLinu
Hjón meó tekjur á biLinu
50% Lækkun:
kr. 1.405.000-
kr. 1.955.000-
kr. 1.405.000- tiL kr. 1.610.000-
kr. 1.955.000- tiL kr. 2.190.000-
kr. 1.610.000- til kr. 1.845.000-
kr. 2.190.000- til kr. 2.600.000-
Einstaklingar meó tekjur á biLinu
Hjón meó tekjur á biLinu
Vinnslu þessari verður lokið í september 2004 og verða þá allar breytingar
tilkynntar bréflega.
Fulltrúar framtalsnefndar eru til viðtals alla þriðjudaga milli kl. 16.00 og 17.00 í
Ráðhúsi Reykjavikur, frá 6. apríl til og með 27. apríl n.k. Á sama tímabili verða
upplýsingar veittar í síma 896-4300, alla þriðjudaga milli kl. 10.00 og 12.00.
Umhverfis- og heilbrigðisstofa Reykjavíkur, Skúlagötu 19, veitir upplýsingar
varðandi álagningu og breytingar á sorphirðugjaldi í síma 563-2700, og í
bréfasíma 563-2710.
Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, veitir upplýsingar sem snerta álagningu og
breytingar á vatnsgjaldi í síma 516-6000, og bréfasíma 516-6609.
Fjármáladeild, Ráðhúsi Reykjavíkur, veitir upplýsingar um álagningu annarra
fasteignagjalda og breytingará þeim ísíma 563-2062, og bréfasíma 563-2033.
Gjalddagar ofangreindra gjalda umfram kr. 20.000- fyrir árið 2004 eru:
1. febrúar, 1. mars, 1. apríl, 1. maí, 1. júní og 1. ágúst. Gjalddagi gjalda undir
kr. 20.000-, og gjalda þeirra gjaldenda er völdu eingreiðslu fasteignagjaldanna
i maí, er 1. maí.
Jafnframt er hægt að leita upplýsinga um ofangreind atriöi á heimasíðu
Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is
Reykjavik, 18. janúar 2004
Borgarstjórinn i Reykjavik