Listin að lifa - 01.03.2004, Page 60

Listin að lifa - 01.03.2004, Page 60
Augnsjúkdómar ALDRAÐRA Örn Sveinsson. Þorkell Sigurðss. Um sjötugt fer sjóninni oft að hraka og fólk þarf oftar að leita til augnlækna. Stundum er nóg að breyta um styrk í gleraugum, en oft hefur það litla þýðingu. Þeir augnsjúkdómar í eldra fólki sem tíðast valda sjóntapi og truflun í daglegri færni eru, ský á augasteini, gláka og aldursrýrnun í miðgróf sjónu (gula blettinum). Ský á augasteini Það er eðlilegt að augasteinninn verði skýjaður um og eftir sjötugt. Þessar hrömunarbreytingar byrja í raun miklu fyrr. I fyrstu harðnar augasteinninn og breytingamar em hægfara, en um sjötugt er talið að um 70% allra finni fyrir einhverju sjón- tapi af völdum skýmyndunar á augasteini. I stöku tilfellum geta orsakimar líka verið áunnar t.d. eftir áverka, lithimnu- bólgur, sykursýki og eftir langtímanotkun bólgueyðandi stera- lyfja.Vegna harðnandi augasteins er algengt að menn þurfi að byija að nota lestrargleraugu milli fertugs og fimmtugs.Við ákveðið form af skýi (kjamaskýi) getur sú breyting snúist við eftir sjötugt og sumir geta farið að lesa aftur gleraugnalaust, en þuifa þá í staðinn að nota göngugleraugu. Með vaxandi gráma í augasteini tvístrast ljós sem horft er á. Þess vegna getur verið óþægilegt að mæta bílljósum í myrkri. Tvísýni á öðru auga getur komið fyrir. Að lokum versnar sjónin bæði nær og fjær. Fólk hættir að geta lesið blöð og bækur og texta á sjónvarpi og uppfyllir ekki lengur skilyrði til aksturs. I einstaka tilfellum getur augasteinninn einnig stækkað með tímanum og ýtt lithimnunni fram og þrengt að síuvef augans og gláka myndast. Ef ekkert er að gert getur augasteinninn með tímanum orðið algjörlega ógagnsær og viðkomandi verður blindur. En sjúkdómurinn er auðlæknanlegur með aðgerð, ef engir undir- liggjandi sjúkdómar em til staðar eins og glákuskemmd sjón- taug eða aldursrýrnun í miðgróf sjónu. Þessar aðgerðir felast í því að augasteinninn er fjarlægður og settur inn gerviauga- steinn. Tæknilega er þetta mjög fullkomin aðgerð og áhættu- lítil. Hún er gerð í gegnum smásjá og er verkjalaus þótt ein- ungis sé notuð dropadeyfing. Skurðsárið er aðeins rúmlega 3 mm að lengd á mörkum homhiinnu og hvítu og þarf ekki að loka með saumum. Oftast er gerð aðgerð á öðm auga í einu og fær þá sjúklingurinn að fara heim strax að lokinni aðgerð. Eftirmeðferðin er augndropar í 'i-A vikur til að halda bólgu niðri og síðan er hægt að mæla endanlega sjón og athuga fyr- ir gleraugum u.þ.b. 2 mánuðum eftir aðgerð. Gláka Gláku má skilgreina sem vaxandi sjóntaugarskemmd, sjón- taugin þynnist og hliðarsjón minnkar og að lokum verður augað steinblint ef ekkert er að gert. Aðalorsökin er hækk- aður augnþrýstingur, en blóðflæðið til sjóntaugarinnar skiptir líka máli og geta þar fjölmargir sjúkdómar komið til. Gláka er sjaldgæf fyrir fertugt en upp úr því fer tíðnin vaxandi. Um 2% fertugra og eldri eru með sjúkdóminn og tíðnin vex síðan með vaxandi aldri, þannig að yfir 10% átt- ræðra og eldri eru með gláku. Glákan er oftast í báðum augum, en byrjar ekki alltaf á sama tíma og sjúkdómsgang- ur getur verið breytilegur. Hún hefur tilhneigingu til að ganga í ættum en sleppir oft ættliðum. Einstaka sinnum getur glákan verið orsökuð af sjúkdómum í augasteini, lit- himnu, æðasjúkdómum (blóðtappa í augnbotni), áverkum og lyfjum (t.d. bólgueyðandi sterum). Glákan er lúmskur sjúkdómur og gefur sjúklingnum eng- in einkenni fyrr en alltof seint. Augnþrýstingurinn hækkar hægt og rólega án þess að valda verk. Smám saman hverfur hliðarsjón á því auga sem hefur hæni þrýsting. Það síðasta sem hverfur er skarpa sjónin. Þá fyrst verður sjúklingurinn var við einkennin þegar hann, kannski fyrir tilviljun, fer að nudda góða augað eða lokar því og tekur þá eftir sjóntapi. Bráðagláka er mun sjaldgæfari. Augnþrýstingur hækkar þá mjög snögglega og sjúklingurinn leitar til augnlæknis vegna roða í auganu, þokusjónar, verkja og jafnvel ógleði. Lágþrýstingsgláka er fremur sjaldgæft form gláku og sú allra erfiðasta bæði í greiningu og meðferð. Þá er augn- þrýstingur innan eðlilegra marka en sjóntaugin eyðist trú- lega vegna lélegs blóðflæðis og viðkvæmni fyrir þrýstingi. Mjög mikilvægt er að greina glákuna á byrjunarstigi og fyrirbyggja frekari glákuskemmdir á sjóntaugum. Ef gláka er í ættinni er ráðlagt að fara til augnlæknis í skoðun á tveggja ára fresti eftir fertugt. Mikið forvamarstarf hefur verið unnið á íslandi síðustu áratugina sem er í raun öðrum löndum til fyrirmyndar. Samkvæmt rannsóknum Guðmund- ar heitins Bjömssonar augnlæknis, um og upp úr 1960, var gláka algengasta blinduástæða á Islandi. Þá vom milli 250-300 einstaklingar skráðir blindir af völdum gláku, en þeir em nú 50. Ef við miðum við tíðnina í rannsókn Guð- mundar og fjölda aldraðra nú ætti fjöldi glákublindra á ís- landi í dag að vera nálægt 500-600 einstaklingar. Þökk sé fjölgun augnlækna og augnlæknaferða út á land, bættri greiningu og meðferð og ekki síst þeim lögum sem hingað til hafa gilt á Islandi, að augnlæknar einir hafa haft leyfi til 60

x

Listin að lifa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.