Listin að lifa - 01.03.2004, Blaðsíða 61
sjónmælinga og skima fyrir gláku í leiðinni. Flestir þurfa að
byrja að nota lestrargleraugu milli 40-50 ára aldurs og því
mætt í sjónmælingu og augnskoðun í tíma.
Meðferðin felst í því að gefa augndropa sem lækka augn-
þrýsting. Ef þeir duga ekki þá er bætt við leysigeislameðferð
og síðasti kosturinn er glákuaðgerð, en hún er ekki áhættu-
laus og því aðeins gripið til hennar í erfiðustu tilfellunum.
Aldursrýrnun í miðgróf sjónu
Aldursrýmun í miðgróf sjónu (stundum ranglega kölluð kölk-
un í augnbotni) er algengasta orsök sjóndepra og blindu á ís-
landi í dag. Sjúkdómurinn getur greinst niður undir fimmtugt,
en sést sjaldan í fólki undir sextugu. Tíðni hans vex hægt og
bítandi og um sjötugt eru u.þ.b. 5% með sjúkdóminn, 20%
um 75 ára aldur og um áttrætt er helmingur einstaklinga kom-
inn með aldursrýmun að einhverju marki. Skemmdin er yfir-
leitt á afmörkuðu, en viðkvæmu svæði sjónhimnu þar sem
sjónskerpan er mest. Sjúkdómurinn er flokkaður í tvo megin-
flokka, annarsvegar þurra og hins vegar vota aldursrýmun
sem skírskotar til bjúgmyndunar í sjónhimnu. Sú þurna er
rniklu algengari og veldur minni einkennum.
Það eina sem vitað er með vissu um orsakir aldursrým-
unar í miðgróf sjónu er að hún er aldurstengd. Sennilega
erfist sjúkdómurinn að einhverju marki og hefur því verið
haldið fram að í u.þ.b. 30% tilfella sé tilhneigingin arfgeng.
Einkenni sjúkdómsins er hægt vaxandi sjóndepra. Fólk
truflast fyrst og fremst við lestur texta hvort sem er í bók,
skjá eða sjónvarpi. Hliðarsjón er hins vegar góð. I votri
rýmun getur átt sér stað skyndilegt sjóntap, stundum með
verulegri bjögun, svokallaðri spésýni (svipað og horft sé í
spéspegil), stundum kölluð furðusjón. Ljósfælni getur
einnig verið vandamál.
Þess ber að geta að stundum hamlar þessi sjúkdómur
akstri. Reglugerð varðandi ökuleyfi gerir ráð fyrir að ein-
staklingur þurfi að hafa a.m.k. 50% sjón með bestu glerj-
um. Það reynist stundum erfítt að missa ökuleyfið vegna
þessa sjúkdóms. Mannsheilinn er þannig gerður að sjón-
depran er minna áberandi við akstur en við lestur. Við akst-
urinn fyllir heilinn inn í eyðurnar sem eru í miðju sjónsvið-
inu og einstaklingnum finnst hann sjá betur en hann í raun
gerir. Hann sér fjöllin, húsin og bflana en gæti misst af
barni á gangbraut. Þó að viðkomandi uppfylli lágmarks-
skilyrði til aksturs ber að minnast þess að augnsjúkdómar
geta minnkað fæmi við akstur, sérlega þegar slæmt skyggni
er eða þegar ekið er inn í göng.
Eitt sjaldgæft einkenni getur fylgt þessum sjúkdómi, en að-
eins ef um verulegar skemmdir er að ræða. Þetta em skýrar
ofskynjanir þar sem fólk greinir stundum eitthvað óraunvem-
legt í smáatriðum og stundum skæmm litum. Þær geta stund-
um verið ógnvekjandi, t.d. andlit af löngu látnu fólki, mynd-
brot úr bamæsku, þar sem fólk hleypur á sauðskinnsskóm,
eða hauslausar verur sem liggja við rúmstokkinn en reynast
svo ekki vera neitt nema loftið eitt. Ekki er ljóst hvað um er
að ræða, en þar sem ellirýmun er í raun skemmd á taugavef
má ímynda sér að einhver tmflun verði á starfsemi gagna-
banka heilans og löngu gleymdar myndir og bútar úr myndum
framkallist að nýju með þessum hætti. Þetta er sjaldgæft ein-
kenni, en mikilvægt fyrir þá sem það upplifa að vita að þeir
em hvorki skyggnir né geðveikir. Fólk með slæma gláku og
ský á augasteini getur upplifað svipaðar ofskynjanir.
Meðferð við þessum sjúkdómi er takmörkuð. í votri ald-
ursrýrnun hefur verið beitt leysigeisla meðferð með nokkuð
góðum árangri í sumum tilfellum nú hin seinni ár. Stór
bandarísk rannsókn bendir til þess að með því að nota
andoxunarefni í ríkum mæli í þurri aldursrýrnun megi
halda ástandinu í horfinu í 20-30% tilfella. Því mæla
a.m.k. sumir augnlæknar með því að sjúklingar með stað-
festa aldursrýmun í miðgróf taki C-vítamín, E-vítamín og
zink í nokkuð stórum skömmtum í þeirri von að hefta
framgöngu sjúkdómsins. Þess vegna getur verið ávinningur
að greina sjúkdóminn á byrjunarstigi í von um að forðast
sem mest verulegar skemmdir.
Þegar lestrarsjónin versnar þarf oft að gefa sterk lestrar-
gleraugu, en þá þarf fólk að halda lestrarefninu mjög nálægt
sér og hafa góða lesbirtu. Ef það dugar ekki þá geta stækkun-
argler og önnur hjálpartæki eins og hljóðbækur frá Sjónstöð
Islands hjálpað. Einnig geta sérstök lituð gler komið að gagni.
Sumir halda að mikill lestur eða rýni við t.d. handavinnu slíti
augunum. Þetta er bábilja og fólk má lesa og rýna eins mikið
og það hefur þrek til. Mikilvægt er þá að hafa góða lýsingu og
hvfla sig þegar þreyta segir til sín, því að úthaldið er stundum
minna ef um aldursrýmun er að ræða. Að lokum er mikilvægt
að sjúklingar með aldursrýmun í miðgróf sjónu viti að það
tapi aldrei allri sjón eins og glákan olli í gamla daga. Það
kemur alltaf til með að halda hliðarsjón eða ratsjón.
Lokaorð
A 20. öldinni hefur læknavísindunum fleygt mikið fram.
Ský á augasteini er auðlæknanlegt með aðgerð. Baráttan
við glákuna hefur gengið kraftaverki næst hér á íslandi og
tíðni glákublindu sennilega sú lægsta í heiminum þrátt fyrir
háa tíðni sjúkdómsins hér. Sú barátta heldur áfram. Aldurs-
rýmun í miðgróf sjónu er sá augnsjúkdómur sem við ráðum
verst við. Stundum hefur verið sagt að þegar lækning finnst
við henni þá hafi fundist lækning við elli. Hver veit hvað
gerist á 21. öldinni.
Sueinssotv og/ 'íPo'tAeií Siquwíssan/,
augnlœknar á Augnlœknastofunni í Mjódd
Láttu gæði og góða reynslu
ráða vali þínu á ofnhitastillum
Danfoss ofnhitastillar fyrir þig
Danfoss er leiðandi í framleiðslu ofnhitastilla
Danfoss hf
Skútuvogi 6 Sími 510 4100
www.danfoss.is
61