Fréttatíminn - 09.01.2015, Blaðsíða 2
Ódýrari öpp
fyrir Íslendinga
Verð á öpp um í
App store í Apple
raf tækj um á Ís
landi lækkaði um 1,5
pró sent um ára mót in
vegna virðis auka skatts
breyt ing a. Fengu all ir sem
hafa for ritað fyr ir Apple til kynn ingu þess
efnið fyr ir rétt fyr ir ára mót.
Framlenging á fingrum
skurðlæknis
Í tilefni af 50 ára afmæli Oddfellow
stúkunnar Þorgeirs nr. 11 var ákveðið að
gefa 10 milljónir króna til söfnunar vegna
kaupa á aðgerðarþjarka fyrir Landspítala.
Gjöfin var afhent á afmælishátíð stúkunnar
22. nóvember 2014. Aðgerðarþjarki (róbót)
er í notkun á helstu sjúkrahúsum í
nágrannalöndunum og nýtist til marg
víslegra skurðaðgerða, sérstaklega við
þvagfæraskurðlækningar sem og aðgerðir
á grindarholslíffærum kvenna. Inngripið
verður minna en með hefðbundinni
aðferð, hægt að hlífa betur nærliggjandi
líffærum og viðkvæmri starfsemi og stuðla
þannig að skjótari bata. Í tilkynningu frá
Landspítalanum segir að þjarkurinn
sé nánast framlenging á fingrum
skurðlæknisins þannig að allar
hreyfingar hans verði nákvæmari
og sýn skurðlæknisins í aðgerðar
þjarkanum er auk þess framúrskar
andi góð.
Toyota á Íslandi 50 ára
Á nýbyrjuðu ári fagnar Toyota á Íslandi því
að 50 ár eru liðin frá því fyrsti Toyotabíll
inn var seldur hér á landi. Um 45.000
Toyotur eru nú í notkun á landinu, að því
er fram kemur í tilkynningu, en Toyota
hefur verið mest seldi bíllinn á Íslandi
á hverju ári frá 1991. Fyrstu Toyoturnar
sem komu til landsins árið 1965 voru
Crown, Corona og Land Cruiser. Corolla
bættist síðan við vörulínuna í kringum
1970. Fyrsta stórsýning Toyota á árinu
verður hjá viðurkenndum söluaðilum
Toyota í Kauptúni Garðabæ, Reykjanesbæ,
á Selfossi og á Akureyri á morgun,
laugardaginn 10. janúar frá klukkan
1216. Á sýningunni á laugardag verður
Land Cruiser 150 kynntur með sérstökum
afmælisbreytingapakka.
Þrettándabrennur í Reykjavík
Þrettándagleði Vesturbæjar verður
haldin í dag, föstudaginn 9. janúar,
og hefst við KRheimilið klukkan 18,
þar sem sungin verða nokkur lög.
Gengið verður að brennunni við Ægi
síðuna en það verður kveikt í henni
um klukkan 18.30 og flugeldasýning
mun hefjast stuttu síðar. Þrettán
dagleði Grafarvogsbúa verður
haldin á brennustæðinu við Gufunesbæinn laugardaginn 10. janúar. Gleðin hefst
þar klukkan 17.15 með kakó og kyndlasölu við Hlöðuna, þar sem Skólahljómsveit
Grafarvogs mun leika létt lög. Klukkan 17.50 leggur svo blysför af stað að brenn
unni og kveikt verður í henni klukkan 18. Hátíðarhöldunum lýkur svo klukkan 18.30
með skottertusýningu. Þrettándagleðin í Grafarholti verður haldin á morgun,
laugardaginn 10. janúar, og hefst við Guðríðarkirkju, milli klukkan 1818.30, þaðan
sem farin verður blysför í Leirdal þar sem brenna, söngur, jólasveinar, púkar, flug
eldasýning og skemmtiatriði taka við. Áætlað er að tendra í brennunni um klukkan
19.30 og gert er ráð fyrir að formlegri dagskrá ljúki um klukkustund síðar.
Heilbrigðismál sjúkraHúsið á akureyri þarfnast endurnýjunar
Legudeild geðdeildar Sjúkrahússins á Akureyri er í þannig ásigkomulagi að starfsmenn hennar
telja öryggi starfsmanna og sjúklinga vera ógnað. Umfang deildarinnar hefur þrefaldast frá því
að hún var stofnuð í bráðabirgðahúsnæði árið 1984. Athugun embættis landlæknis á starfsemi
geðdeildarinnar árið 2012 leiddi í ljós að aðstaðan væri óviðunandi og óforsvaranleg til lengri
tíma litið.
l egudeild geðdeildar Sjúkra-hússins á Akureyri, meðferð-arúrræði fyrir íbúa Norður-
og Austurlands, var stofnuð árið
1984 í bráðabirgðahúsnæði í aðal-
byggingu sjúkrahússins. Þar rúm-
ast í mesta lagi tíu sjúklingar í sólar-
hringsvist í senn, en meðallegutími
hefur síðustu ár verið um 12 dagar.
Athugun embættis landlæknis á
starfsemi geðdeildarinnar árið 2012
leiddi í ljós að aðstaðan á legudeild
hennar væri óviðunandi og óforsvar-
anleg til lengri tíma litið.
Verkefni deildarinnar
þrefaldast frá stofnun
Sigmundur Sigfússon, forstöðulækn-
ir geðlækninga sjúkrahússins, segir
verkefni deildarinnar hafa þrefaldast
frá því að hún var stofnuð, húsnæðið
sé óhentugt og allt of lítið fyrir þá
umfangsmiklu starfsemi sem þar
fari fram. „Meðalnýting plássa er
nálægt 100% og verður því oft erf-
itt að raða sjúklingum í viðeigandi
rými, t.d. með tilliti til kynferðis,
svefnerfiðleika, óróleika, sjúkdóms-
þyngdar og hættu á sjálfsskaða. Á
þjónustusvæði Sjúkrahússins á Ak-
ureyri búa aðeins um 45 þúsund
íbúar. Á fjölmennari þjónustusvæð-
um hafa sérgreinasjúkrahús fleiri
en eina geðdeild sem eru sérhæfðar
út frá þörfum notendanna, eins og á
geð sviði Landspítala. Þar sem hér
er aðeins ein geðdeild verður hún
að vera þannig útbúin að unnt sé að
meðhöndla þar samtímis sjúklinga
með mjög mismunandi þarfir.”
Ástand húsnæðisins
óásættanlegt
Auk þess að henta illa fyrir þá starf-
semi sem þar fari fram segir Sig-
mundur ástand húsnæðisins óvið-
unandi. „Það er farið að láta á sjá
og loftræsting og hreinlætisaðstaða
eru óásættanleg. Þótt dagsjúklingar
séu á deildinni er engin sérstök að-
staða fyrir þá þar. Aðstaða starfs-
fólksins til að sinna verkum sínum
er bágborin og ófullnægjandi, og
veldur þetta aukaálagi á fólkið. Út
frá öryggissjónarmiðum er deildin
illa hönnuð. T.d. getur öryggi sjúk-
lings og starfsmanna stundum ver-
ið teflt í tvísýnu þegar nauðsynlegt
reynist að loka órólegan sjúkling
af undir umsjá starfsfólks í innsta
enda deildarinnar, þar sem sam-
starfsfólkið á vaktinni hefur ekki
tök á að fylgjast með því jafnóðum
hvernig mál þróast þar.“
Vinna að tillögum til ráðherra
Sigmundur segir starfsfólk geð-
deildar og framkvæmdastjórn
sjúkrahússins vinna nú að því að
gera tillögur til ráðherra heilbrigð-
ismála um byggingu nýrrar bráða-
legudeildar fyrir geðsjúka, sem
uppfylli nútímalegar kröfur um
hönnun, mönnun og öryggi slíkra
deilda.
Bjarni Jónasson, forstjóri sjúkra-
hússins, segir innspýtinguna sem
spítalinn fékk eftir síðustu fjárlög
hafa hjálpað til við endurnýjun á
gömlum tækjabúnaði en nú sé
brýnt að endurnýja gamlar deild-
ir sem margar hverjar séu orðnar
sextíu ára gamlar. Brýnast sé þó
að endurnýja geðdeildina. „Marg-
ar legudeildirnar eru orðnar mjög
gamlar og uppfylla ekki þær kröfur
sem gerðar eru til nútímans. Það
kreppir helst að á legudeild geð-
deildar og þar er mjög brýnt að
leysa úr vandanum þó víða þurfi að
gera betur. En undirbúningur við
byggingu nýrrar deildarálmu er
kominn í farveg og ætti að hefjast
á næstu árum,“ segir Bjarni.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Öryggi starfsmanna og
sjúklinga ógnað á geðdeild
Legudeild geðdeildar Sjúkrahússins á Akureyri var stofnuð í bráðabirgðahúsnæði árið 1984. Sigmundur Sigfússon, forstöðu
læknir geðlækninga, segir öryggi sjúklinga og starfsmanna deildarinnar vera teflt í tvísýnu undir vissum kringumstæðum.
„Æfingabúðirnar í fyrra gengu
framar vonum og við höfum nú
ákveðið að halda aðrar æfingabúðir
í ár,“ segir María Helga Guðmunds-
dóttir, formaður félagsins „Gettu
betur stelpur“ sem var formlega
stofnað í desember. Tæplega 50
stelpur komu í æfingabúðir sem
haldnar voru í lok ágúst í fyrra.
Hugmyndin að þeim kom upp eft-
ir að tímabundinn kynjakvóti var
settur í Gettu betur, spurninga-
keppni framhaldsskólanna, þannig
að þau lið sem keppa árin 2015 og
2016 mega ekki innihalda fleiri en
tvo keppendur af sama kyni en þrír
keppendur eru í hverju liði.
Alla jafna hafa strákar verið í yfir-
gnæfandi meirihluta keppenda en
þetta verður fyrsta árið þar sem
minnst ein stelpa verður í hverju
liði. „Gettu betur er skemmtiþáttur
í sjónvarpi og hjá mörgum heimil-
um eini glugginn inn í framhalds-
skólana. Mér hefur því þótt það
skjóta skökku við að keppendur
séu aðallega strákar. Mér finnst já-
kvætt að stelpur heima í stofu sjái
kynsystur sínar taka þátt,“ segir
María Helga.
Að félaginu Gettu betur stelpur
standa fyrrverandi keppendur í Gettu
betur sem eiga það sameiginlegt að
vera kvenkyns. Gettu betur stelpur
fengu styrk frá Hlaðvarpanum –
menningarsjóði kvenna á Íslandi – á
síðasta ári upp á 400 þúsund krónur,
auk fleiri minni styrkja, og gerði það
þeim kleift að halda æfingabúðirnar.
Nú í janúar fengu þær að vita að fé-
lagið fengi aftur úthlutað frá Hlað-
varpanum og fjármögnun því tryggð
fyrir aðrar æfingabúðir í sumar. „Við
höfum reynt að höfða sérstaklega til
stelpna úti á landi því skólar þar eru
gjarnan síður virkir og þeir styrkir
sem við höfum fengið hafa gert okkur
kleift að bjóða stelpum utan af landi
ferðastyrki til að sækja æfingabúð-
irnar. Fjórðungur þeirra sem komu í
fyrra voru utan af landi.“ -eh
jafnrétti Í fyrsta sinn er minnst ein stelpa Í Hverju liði Í gettu betur
Gettu betur stelpur aftur með æfingabúðir
47 stelpur í 9. bekk, 10. bekk og í framhaldsskóla tóku þátt í æfingabúðunum Gettu
Betur stelpur í fyrra, þeim fyrstu sem voru haldnar.
2 fréttir Helgin 9.11. janúar 2015
advania.is/vinnufelagar
Hafðu samband í síma 440 9010
eða í tölvupósti á sala@advania.is
* Tilboð gilda til 31.01.2015 eða á meðan birgðir endast.
á nýju ári
Nýjar vélar
JANÚAR
TILBOÐ*