Fréttatíminn - 09.01.2015, Blaðsíða 52
menning Sýning á mokka
Litabók um Grjóta-
þorpið endurútgefin
Litabók Gylfa Gíslasonar um Grjótaþorpið hefur verið endurútgefin en myndirnar úr henni voru
fyrst sýndar á Mokka árið 1980, þar sem höfundurinn var fastagestur. Gylfi var afkastamikill
listamaður og þekktur dagskrárgerðarmaður en auk þess myndskreytti hann fjölda bóka. Það
eru börnin hans fimm sem standa að endurútgáfu bókarinnar.
á rið 2008 gáfum við systkinin út bók um pabba sem Forlagið dreifðu fyrir okkur. Þar er farið
er yfir öll hans helstu verk og af því tilefni
var stór yfirlitssýning á myndlist hans
í Ásmundarsal. En auk þess að vinna í
myndlist gaf hann út barnabækur og þjóð-
sögur,“ segir Kristín Edda, dóttir Gylfa,
sem ásamt systkinum sínum fjórum hefur
nú gefið út litabókina um Grjótaþorpið
en allar bækur Gylfa eru fyrir löngu upp-
seldar.
Skapandi kennslubók
Gylfi titlaði sig sjálfur alltaf sem teikn-
ara og myndlistarmann en hann var líka
myndlistarkennari og rétt eins og Kristín
bendir á kemur það skýrt fram í bókinni
um Grjótaþorpið sem er sett upp eins og
kennslubók, en á mjög skapandi hátt.
„Það er miklu meiri vinna á bak við bók-
ina en fólk kannski gerir sér grein fyrir.
Pabbi var allt í allt um þrjú ár að vinna í
þessari bók, teiknaði allar myndirnar og
lá yfir alls konar textum til að geta sagt
sögu Grjótaþorpsins á skýran hátt,“ segir
Kristín en í bókinni rekur Gylfi sögu mið-
bæjar Reykjavíkur í máli og myndum
frá því að Ingólfur Arnarson settist að á
óbyggðu nesi og byggði bæ sinn í gróinni
kvos við tjörn. Gylfi segir söguna með
sérstakri áherslu á húsagerðarlist og allar
myndirnar eru einfaldar teikningar hugs-
aðar til þess að fylla inn í með lit og læra
um leið söguna.
Fastagestur á Mokka
„Pabbi fæddist á Laugavegi 4 og bjó lengst
af í miðbænum. Það var gengið inn í húsið
hans frá Skólavörðustíg, í gegnum lítið port
sem lá við hlið Mokka sem var alla tíð hans
kaffihús. Hann lærði upphaflega að verða
smiður, eins og pabbi hans, afi og langafi,“
segir Kristín, en bókina um Grjótaþorpið
tileinkar Gylfi einmitt handverksmann-
inum pabba sínum.
Gylfi var félagi í Torfusamtökunum og
má segja að litabókin um Grjótaþorpið sé
hans framlag til baráttunnar um friðun
húsanna í miðbænum. Í bókinni kemur vel
fram hversu vönduð mörg húsanna voru
sem nú eru horfin, hönnuð og smíðuð af
mikilli verkkunáttu og listfengi. En Gylfi
segir líka frá lífinu í húsunum og sýnir
fram á ógnina sem að þeim steðjar, stein-
steypuarkitektúr og bílaflota sem ryður
Grjótaþorpinu úr vegi til að fá meira pláss.
Eins og Kristín Edda, dóttir hans, bendir
á þá á þessi bók ekki síður við í dag, þar
sem enn er verið að ryðja gömlum húsum
úr vegi og enn rísa stórir turnar í gamal-
grónum hverfum. Bókina er hægt að nálg-
ast í öllum bókaverslunum og listasöfnum.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Kristín Edda, dóttir Gylfa Gíslasonar, á Mokka þar sem sýning á teikningum Gylfa stendur nú
yfir. Gylfi fæddist í húsinu við Laugaveg 4 og flutti aldrei úr miðbænum. Mokka opnaði árið 1958
við hlið æskuheimilis hans og Gylfi var fastagestur þar frá fyrsta degi. Ljósmynd/Hari
BorgarleikhúSið hundur í óSkilum kominn að norðan
21. öldin á hundavaði
Félagarnir í Hundi í óskilum stíga
á Nýja svið Borgarleikhússins og
sýna nýjasta verk sitt, Öldina okk-
ar, í kvöld, föstudaginn 9. janúar.
Leikritið var frumsýnt á Akureyri
30. október síðastliðinn. Félagarnir
Eiríkur Stephensen og Hjörleifur
Hjartarson í hljómsveitinni Hundur
í óskilum setja upp, í tilefni af 20 ára
afmæli sveitarinnar, glænýtt leik-
og tónverk sem kallast Öldin okkar.
„Hundinum er náttúrlega ekkert ís-
lenskt óviðkomandi; hann gefur sig í
tali og tónum að mannlífinu til sjávar
og sveita,“ segir meðal annars í til-
kynningu Borgarleikhússins.
„Öldin okkar er á ákveðinn hátt
framhald á Sögu þjóðar sem sýnt
var 80 sinnum fyrir fullu húsi á
Akureyri og í Borgarleikhúsinu
2012-2013, hlaut þrjár Grímutil-
nefningar og hlaut eina Grímu,“
segir enn fremur. „Saga þjóðar var
sýnd á RÚV nú á nýársdag. Þar fóru
þeir félagar, Eiríkur Stephensen og
Hjörleifur Hjartarson, á hundavaði
í gegnum Íslandssöguna en skildu
þó eftir smábút frá aldamótum 2000
fram á okkar dag. Í Öldinni okkar
ljúka þeir loks verkinu með því að
spóla sig í tali og tónum í gegnum
samtímasöguna, ris og fall fjármála-
kerfisins og ýmsa gjörninga sem
sett hafa svip á hina viðburðaríku
21. öld á Íslandi.“
Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir.
Hundur í óskilum, félagarnir Eiríkur
Stephensen og Hjörleifur Hjartarson.
Pabbi var
allt í allt
um þrjú ár
að vinna
í þessari
bók ... til
að geta
sagt sögu
Grjóta-
þorpsins
á skýran
hátt.
52 menning Helgin 9.-11. janúar 2015
Sími 551 5103 · kramhusid.is
Kramhúsið
ORKUSTÖÐ
Í MIÐBÆNUM
DANSNÁMSKEIÐ:
Afró
Contemporary
Magadans
Bollywood
Beyoncé dansar
Tangó
Balkan
Housedance
BARNANÁMSKEIÐ:
Skapandi dans
Tónlistarleikhús
Break
Popping
Afró börn + foreldri
ORKA:
Jane Fonda
Zumba
Yoga
Pilates
Músíkleikfimi
Tryggið
ykkur pláss!
Við gerum tilboð fyrir stærri þorrablót
Nánar á noatun.is
H a m r a b o r g – N ó a t ú n 1 7 – H r i n g b r a u t – A u s t u r v e r – G r a f a r h o l t
VARSJÁ flug f rá
F l júgðu með f rá mars t i l október
22.999 kr.