Fréttatíminn - 09.01.2015, Blaðsíða 44
44 ferðalög Helgin 9.-11. janúar 2015
Breskum ferðamönnum fjölgar hratt
Í vetur hafa fjögur flugfélög skipt á milli sín nærri sextíu
ferðum í viku frá Keflavík til Bretlands. Svo mikil gróska var
ekki í samgöngum milli landanna fyrir nokkrum árum síðan.
u m árabil var svo lítil eftirspurn eftir ferðum milli Íslands og Bretlands að
f lug til Manchester og Glasgow
voru sameinuð. Þeir sem ætluðu
til skosku borgarinnar urðu þá að
bíða í vélinni í Manchester á meðan
farþegar á leið þangað fóru frá borði
og aðrir komu inn. Icelandair hætti
þessu hringflugi milli Íslands, Eng
lands og Skotlands haustið 2011 og
síðan hefur framboð á flugi héðan
til Bretlandseyja margfaldast. Í dag
er til að mynda flogið beint héðan
til níu breskra flugvalla en þeir voru
fjórir fyrir fjórum árum.
Loftbrú til London
Flug til höfuðborgar Bretlands var
lengi vel í föstum skorðum. Vélar Ice
landair flugu þangað tvisvar á dag og
Iceland Express bauð upp á nokkrar
ferðir í viku. Fyrstu mánuði ársins
2012 voru til að mynda farnar nítján
ferðir í viku héðan til flugvallanna í
nágrenni við London. Núna eru þær
meira en tvöfalt fleiri og suma daga
geta farþegar valið úr sex áætlunar
ferðum milli Keflavíkurflugvallar og
Heathrow, Gatwick og Luton.
Gefið í hjá easyJet
Vorið 2012 hóf breska lágfargjalda
flugfélagið easyJet að fljúga til Ís
lands. Til að byrja með voru ferð
irnar aðeins þrjár í viku en þeim
hefur fjölgað hratt síðan. Í desem
ber síðastliðnum tóku vélar breska
félagsins til að mynda hundrað og
einu sinni á loft frá Keflavík, sam
kvæmt talningu Túrista. Skiptust
ferðirnar á milli sex breska flug
hafna.
Bretar fjölmennari en Íslend-
ingar
Eins og gefur að skilja er ferðagleði
Íslendinga ekki helsta ástæðan
fyrir þessum tíðum samgöngum
milli Íslands og Bretlands. Bresk
um ferðamönnum hefur nefnilega
fjölgað hratt hér á landi síðustu ár
og sérstaklega á veturna. Í janúar
á síðasta ári komu til að mynda tvö
falt fleiri Bretar hingað en í maí.
Þau tíðindi urðu svo í febrúar að þá
innrituðu fleiri Bretar sig í flug á
Keflavíkurflugvelli en Íslendingar.
Íslenskir farþegar höfðu þangað til
verið langstærsti farþegahópurinn
á Keflavíkurflugvelli, samkvæmt
mánaðarlegum talningum Ferða
málastofu. Eins ber að taka með í
reikninginn að stór hluti farþega
Icelandair í Bretlandi er á leið yfir
hafið.
Það verður áhugavert að sjá hvert
framhaldið verður í flugi milli Ís
lands og Bretlands og hvort ferð
unum og áfangastöðunum fjölgi eða
fækki. Það er ekki heldur útilokað að
fleiri flugfélög blandi sér í slaginn.
Norska lággjaldaflugfélagið Nor
wegian fékk til að mynda leyfi til
að fljúga hingað frá Gatwick í vetur
en nýtti það ekki. Flugfloti Ryanair
mun stækka í ár og í kjölfarið gætu
forsvarsmenn félagsins á ný kann
að flug til Íslands. British Airways
flaug eitt sinn hingað en hætti vegna
skorts á flugvélum. Kannski tekur
félagið upp þráðinn á ný.
Hvað sem þessum vangaveltum
líður er ljóst að íslenskir túristar
hafa úr mörgum kostum að velja
þegar þeir ætla að sækja Breta heim
eins og taflan sýnir.
Áætlunarflug til Bretlands
næstu mánuði:
Belfast: easyJet
tvisvar í viku.
Birmingham: Flybe
þrisvar í viku og Ice-
landair tvisvar frá 5.
febrúar.
Bristol: easyJet
þrisvar í viku
Edinborg: easyJet
þrisvar í viku
Glasgow: Icelandair
fimm ferðir í viku
London: easyJet 5 til
7 ferðir í viku til Luton
og þrisvar til Gatwick.
Icelandair tvisvar á
dag til Heathrow og
allt að sex sinnum í
viku til Gatwick. WOW
air allt að 10 ferðir í
viku til Gatwick.
Manchester: easyJet
og Icelandair þrisvar
í viku.
Margfalt
fleiri ferðir
til Bretlands
Í vetur hefur Flybe boðið upp á áætlunarflug hingað frá Birmingham og í byrjun febrúar fer Icelandair jómfrúarferð sína til
borgarinnar. Þar með fjölgar ferðunum til Bretlands enn frekar. Mynd Ferðamálaráð Birmingham
Kristján
Sigurjónsson
kristjan@turisti.is
Vantar þig gistingu í útlöndum?
Gerðu Verðsamanburð á hóteltilboðum út um allan
heim oG bókaðu haGstæðasta kostinn á túristi.is.
T Ú R I S T I
MÍL ANÓ flug f rá
F l júgðu með f rá maí t i l september
17.999 kr.
PARÍS flug f rá
Við verðum á ferð og flug i a l l t á r ið !
12.999 kr.
RÓM flug f rá
F l júgðu með f rá jún í t i l ágúst
18.999 kr.