Fréttatíminn - 09.01.2015, Blaðsíða 22
Verðlaunahönnun frá Oticon
Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Þjónusta á landsbyggðinni | Sími 568 6880
| www.heyrnartækni.is |
Framúrskarandi tækni í Oticon heyrnartækjum skilar
þér bestu mögulegu hljómgæðum í ólíkum aðstæðum.
Nýju designRITE tækin eru einstaklega nett og hafa
hlotið alþjóðleg hönnunarverðlaun. Njóttu þess að
heyra skýrt og áreynslulaust með heyrnartæki sem
hentar þínum persónulegu þörfum.
Fáðu þetta heyrnartæki
lánað í 7 daga
- án skuldbindinga
Fullkomin þráðlaus tækni
Engir hnappar
Auðvelt að handleika
Vatnshelt
Bókaðu tíma í fría heyrnarmælingu
og fáðu heyrnartæki til prufu í vikutíma
Sími 568 6880
É
g bý í Danmörku, er
sálfræðingur og starfa
sem slíkur í Kaup-
mannahöfn,“ segir
Ragga, Ragnhildur
Þórðardóttir, sem er í heimsókn
á Íslandi til þess að kynna nýút-
komna bók sína, Heilsubók Röggu
nagla. „Ég og maðurinn minn
fórum í janúar 2009. Hann er arki-
tekt og það var annað hvort að vera
heima og vinna í Bónus eða bara
fara, sem við gerðum. Mér leist
ekkert á þetta en ég var sannfærð
eftir viku í Kaupmannahöfn,“ segir
Ragga.
„Ragga nagli hefur verið til síðan
2005 þegar ég byrjaði að blogga,“
segir Ragga þegar hún er spurð
hver þessi nagli sé. „Ég var í mast-
ersnámi í heilsusálfræði í Edinborg
og þessi bloggheimur á Íslandi
var að opnast og ég ákvað að prófa
þetta. Aðallega til þess að leyfa
vinum og vandamönnum að fylgjast
með, en svo varð bloggið bara alltaf
eins. Alltaf sömu færslurnar og
mér fannst þetta mjög leiðinlegt.
Ég ákvað að byrja að skrifa um
þá ástríðu mína fyrir hreyfingu
og hollu mataræði,“ segir Ragga.
„Þetta vatt upp á sig og fleiri fóru
að fylgja mér og þannig varð Ragga
nagli til. Naglanafnið kemur þó frá
manninum mínum, einn morguninn
þegar ég var að draga hann í rækt-
ina með mér. Hann sagði „þú ert svo
mikill nagli, aldrei neinar afsakanir
í boði,“ svo það var hann sem festi
þetta við mig,“ segir Ragga.
Fann sig í lóðunum
Ragga var vel í holdum á sínum
menntaskólaárum og hreyfði sig
ekkert, nema þá til þess að fara
út að reykja en áhug-
inn kviknaði þegar hún
prófaði frekar að lyfta
lóðum en að fara í ein-
hverja leikfimi. „Ég fann
mig í lyftingunum þegar
ég var um tvítugt og það
vatt bara upp á sig og
hægfara varð þetta að
brjálæðislegum lífsstíl,“
segir Ragga sem í dag
er 35 ára. „Það var samt
ógeðslega erfitt því ég
var í svo lélegu ástandi.
Ég þurfti hvíldarinnlögn
á spítala og fékk næst-
um bronkítis eftir fyrstu
æfinguna.
Í dag er þetta mín
atvinna og gerir mig
að þeirri manneskju
sem ég er núna, en þetta er fíkn,“
segir Ragga og brosir. „Þetta er
klárlega fíkn. Vellíðanin sem fylgir
því að sigra sjálfan sig er svo góð,
sigrast á eigin hindrunum. Vellíð-
unarhormónarnir eru svo sterkir
og ólýsanlegir og tilfinningin er
svo góð. Maður sigrar heiminn á
hverjum degi.“
14 þúsund fylgjendur
Í dag er Ragga með um 14 þúsund
fylgjendur á Facebook
og miðlar þar reynslu
sinni og deilir áhuga-
verðum greinum og
uppskriftum. Hún er
þó ekki í því að svara
persónulegum spurn-
ingum fólks sem leitar
að ráðleggingum. Hún
vill bara miðla áhuga-
verðu efni.
„Ég var með Mogga-
blogg og færði mig svo
yfir á Eyjuna og þaðan
fór ég á Heilsupress-
una þar sem ég var
ritstjóri,“ segir Ragga.
„Svo tók ég mér pásu
frá þessu þar sem ég
var á kandidatsári í
klínískri sálfræði í
Kaupmannahöfn og hafði engan
tíma í þetta. Svo í janúar 2013 opn-
aði ég Facebook síðuna og var kom-
in með yfir 2000 fylgjendur á fyrsta
sólarhringnum, sem hefur svo
vaxið jafnt og þétt,“ segir Ragga.
„Ég er með þá reglu að ég er
ekki með neina leiki eða deilingar.
Allir þeir sem fylgja mér á síðunni
er fólk sem vill gera það til þess
að lesa það sem ég skrifa, ekki
vinna eitthvað eða deila eða hoppa
á öðrum fætinum,“ segir Ragga.
„Ég á yndislega fylgjendur og allt
svo jákvætt. Ég tala eingöngu um
það sem tengist heilsu, ekkert um
mig persónulega. Bara allt sem
tengist hreyfingu, mataræði og svo
auðvitað sálfræðinni á bak við það,
sem er það sem sker mig frá öðrum
þjálfurum sem er bakgrunnur
minn í sálfræðinni.“
Er ekkert erfitt að halda þetta út?
Koma ekki einhverjir dagar sem þig
langar bara að fá þér Ritz-kex og
rækjusalat?
„Herra Skíttmeðða kemur oft í
heimsókn,“ segir Ragga. „Það er
bara partur af því að vera mannleg-
ur. Við ráðum samt hvað við segj-
um þegar hann kemur í heimsókn.
Ég fæ mér alveg kökusneið, enda
hleypur maður ekkert í spik, eins
og aligæs, af einni kökusneið, en ef
maður fer í einhvern refsingargír
eftir eina sneið sem kallar á aðra
þá er fjandinn laus,“ segir Ragga.
„Herra Skíttmeðða kom kannski í
heimsókn í dag en maður hleypir
honum ekkert inn á morgun í
staðinn.“
Rétti tíminn fyrir bók
Ragga byrjaði að vinna í bókinni
fyrir sléttu ári og segir hún vinn-
una hafa verið frábæra og er strax
komin með hugann að annarri.
„Það voru margir búnir að nefna
þetta við mig í gegnum tíðina og
ég var búin að skrifa milli 7 og
800 pistla sem mig langaði að gera
eitthvað meira með,“ segir Ragga.
„Ég hafði samt aldrei tíma í þetta
vegna náms og vinnu í gegnum
tíðina. Svo í janúar 2014 var ég með
fyrirlestur í Jónshúsi í Kaupmanna-
höfn og þar hitti ég Önnu Margréti
Marínósdóttur frá Sögum útgáfu
sem spurði mig hvernig mér litist
á að skrifa bók. Ég sagði henni að
ég væri klár í slaginn því ég var
nýbúin að skila mínu síðasta verk-
efni,“ segir Ragga. „Ég hélt að þetta
yrði ekkert mál og bókin kæmi út
fyrir jól. Svo var þetta aðeins meira
en að segja það og við ákváðum
að janúar væri rétti tíminn, sem er
rétt. Heilsurækt er ofarlega á blaði
hjá öllum í janúar. Bókin er blanda
af léttum pistlum í bland við þyngri
texta tengda sálfræðinni,“ segir
Ragga. „Ég tala mikið um innri og
ytri hvatningu. Ég er á móti því að
fólk sé alltaf að láta spegilinn ráða,
hlusti frekar á sína innri hvatningu
og tilfinningar.“
Heldur áfram að tuða
„Þetta verður að vera lífsstíll, ekki
áhugamál,“ segir Ragga. „Ef maður
er alltaf að detta inn og út þá er
maður alltaf að byrja frá grunni
sem er svo letjandi. Fyrstu skrefin
eru þung og niðurrifið er svo mik-
ið. Mikilvægast er að halda dampi
og halda áfram. Ég æfi allsstaðar,
líka þegar ég er í fríi erlendis,“
segir Ragga. „Mismikið, en einhver
hreyfing er partur af mínum degi.
Þetta er bara partur af líkamlegri
hirðu.“
Ertu ánægð með bókina?
„Ég er í skýjunum og líka ánægð
að vera búin með hana,“ segir
Ragga. „Nú get ég farið heim til
Kaupmannahafnar til þess að sinna
mínum skjólstæðingum af meiri
krafti en ég hef getað að undan-
förnu. Ætli maður geri svo ekki
bara aðra bók, það er nóg til af
efni en þangað til held ég áfram að
tuða á samfélagsmiðlunum,“ segir
Ragga nagli.
Ragga verður með útgáfuhóf
í Eymundsson Skólavörðustíg á
morgun, laugardag, frá klukkan
14 til 16 og hægt er að fylgjast með
henni á Facebook síðunni hennar
www.facebook.com/RaggaNagli
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Ragga var vel í holdum á sínum menntaskólaárum og hreyfði sig ekkert, nema þá til þess
að fara út að reykja ... „Það var samt ógeðslega erfitt því ég var í svo lélegu ástandi. Ég
þurfti hvíldarinnlögn á spítala og fékk næstum bronkítis eftir fyrstu æfinguna.“
Maður
hleypur
ekkert í
spik, eins
og aligæs,
af einni
kökusneið.
20 viðtal Helgin 9.-11. janúar 2015