Fréttatíminn - 09.01.2015, Blaðsíða 10
M aður sem telur sig föður barns sem hefur verið feðrað samkvæmt feðr-
unarreglum barnalaga getur ekki
stefnt í faðernismáli,“ segir Þórir
Björn Sigurðarson sem í meistara-
verkefni sínu í lögfræði við Háskóla
Íslands rannsakaði málshöfðunar-
aðild í faðernismálum og hvað barn-
inu væri fyrir bestu í slíkum málum.
„Með hliðsjón af ákvæðum barna-
laga sem segja að börn eigi rétt á að
þekkja uppruna sinn og 70. grein
stjórnarskrárinnar, þar sem fjallað
er um að öllum beri réttur til að fá
úrlausn um réttindi sín og skyldur,
væri eðlilegt að opnað yrði fyrir
þessa heimild manns til að fá úr því
skorið hvort hann sé faðir barns
sem er þegar feðrað,“ segir Þórir
sem valdi sér þetta rannsóknarefni
þar sem hann var einnig áhugasam-
ur um að skoða hvað það er að vera
foreldri og hvort líffræðilegir eða
félagslegir þættir vegi þar þyngra.
Tímamót í Hæstarétti
Í öðrum kafla Barnalaga þar sem
fjallað er um dómsmál til feðrunar
barns segir: „Stefnandi faðernis-
máls getur verið barnið sjálft, móðir
þess eða maður sem telur sig föður
barns, enda hafi barnið ekki verið
feðrað...“ og því skýrt að maður sem
telur sig vera föður barns sem þegar
hefur verið feðrað getur ekki höfðað
mál. Þórir vekur sérstaka athygli
á Hæstarréttardómi sem féll árið
2000 þar sem talið var að löggjöf
sem takmarkaði rétt manns til að fá
úrlausn mála sinna fyrir dómstólum
um málefni sem vörðuðu hagsmuni
hans brytu gegn 70. grein stjórn-
arskrárinnar, og þar með 6. grein
Mannréttindasáttmála Evrópu sem
fjallar um sömu réttindi til að fá
úrlausn sinna mála fyrir dómstól-
um. „Í dómnum var einnig vísað til
þeirra miklu hagsmuna sem barnið
hefur af því að vera réttilega feðrað
og hvort maðurinn gæti leitt líkur á
því að hann væri faðirinn vó þungt.
Ekki var talið að sú mismunun sem
birtist í reglum barnalaga um máls-
aðild væri byggð á nægilega mál-
efnalegum forsendum,“ segir Þórir.
Ótti við tilhæfulausar máls-
höfðanir
Hann bendir á að á undanförnum
árum hafi orðið miklar breytingar
á viðhorfum í barnarétti og í aukn-
um mæli verið litið til hagsmuna
barnsins af því að þekkja báða for-
eldra sína og njóta samvista við þá.
„Í ljósi þess fól dómsmálaráðherra
sifjalaganefnd að endurskoða gild-
andi barnalög árið 1999. Í sifjalaga-
nefnd áttu sér stað miklar umræður
um hvernig ætti að standa að því að
veita þennan rétt, hvaða takmark-
anir væri á honum og hvernig væri
best að sporna gegn tilhæfulausum
málshöfðunum. Lagði nefndin til
að ákvæðið eins og það var í frum-
varpinu: „stefnandi faðernismáls
getur verið barnið sjálft, móðir
þess eða maður sem telur sig vera
föður barna“ yrði lögfest óbreytt.
Með þessum breytingum er barn-
ið í forgangi og mikil áhersla á að
hagsmunir þess marki efni og form
reglunnar,“ segir Þórir. Allsherjar-
nefnd vildi þó takmarka þetta við
þau tilvik þegar barn er ófeðrað og
kom fram að megintilgangur breyt-
ingartillögunnar væri að koma í veg
fyrir tilhæfulausar málsóknir. Síðan
þá hefur Dögg Pálsdóttir, þáverandi
þingmaður Sjálfstæðisflokks, tvisv-
ar lagt fram frumvarp um að opnað
væri fyrir málshöfðun þó barn sé
feðrað og á síðasta ári lögðu fjórir
þingmenn Samfylkingar og Bjartrar
framtíðar fram frumvarp um sams
konar breytingar og í greinargerð
með frumvarpinu stóð: „Ætla verð-
ur að ótti við tilhæfulausar máls-
höfðanir sé ástæðulaus og að dóm-
stólum ætti að vera fullkomlega
treystandi til að stöðva tilhæfulaus
barnsfaðernismál..“ Þetta frumvarp
náði heldur ekki fram aðganga.
Stöðugleiki í lífi barns
Þórir segir mikilvægt að hafa í huga
aldur barns ef og þegar maður sem
telur sig vera föður feðraðs barns
höfðar faðernismál. „Það er mikil-
vægt að skoða vandlega hvaða
áhrif það hefur á líf barnsins og
gera ráð fyrir því að tilheyrandi
breyting á faðerni barnsins og þar
af leiðandi réttarstöðu barnsins
gæti haft afdrifarík áhrif á tengsl,
stöðugleika og tengslamyndun í lífi
barns. Eiginmaður eða sambúðar-
maður sem í mörgum tilfellum
væri skráður faðir barns yrði ekki
lengur lagalegur faðir barns. Við-
komandi hefur líklega verið álitinn
faðir að barni árum saman og myndi
barnið missa réttinn til forsjár og
umgengni og missa allt lagalegt
samband og einnig réttinn til fram-
færslu og erfðarétt. Í einhverjum til-
fellum gætu atvik verið með þeim
hætti að það væri gegn vilja móður-
innar, barnsins og skráðs föður og
erfitt að sjá hvernig annar og nýr
líffræðilegur og lagalegur faðir
myndi getað axlað skyldur sínar og
beitt rétti sínum þannig það sam-
ræmdist hagsmunum barnsins og
þörfum þess og nyti þannig góðs
af því,“ segir hann. Þórir bendir á
að faðernisreglur laga hafa ætið lit-
ast af sjónarmiðum um hagkvæmni
og aldrei tekið eingöngu mið af líf-
fræðilegum tengslum, en þó erfitt
sé að halda því fram að líffræðileg
tengsl séu það eina sem geri foreldri
að foreldri sé mikilvægt að tryggja
jafnræði í lögum.
Með hliðsjón af ákvæðum barna-
laga um að börn eigi rétt á að
þekkja uppruna sinn, sem og 70.
grein stjórnarskrárinnar telur Þór-
ir engu að síður eðlilegt að opnað
yrði fyrir þessa heimild manns til
að fá úr því skorið hvort hann sé
faðir barns sem hefur þegar verið
feðrað. „Hinsvegar er nokkuð óljóst
hvernig best væri að framkvæma
það með tilliti til þarfa barna til þess
að lifa við stöðugleika og öryggi og
þannig að friðhelgi einkalífs þeirra
yrði tryggð,“ segir hann en ein leið-
in sem hann bendir á er að skoða
þyrfti við lagasetningu hvort nauð-
synlegt væri að erfðafræðilegur
faðir yrði sjálfkrafa dæmdur faðir
í lagalegum skilningi með hliðsjón
af því hvað sé barninu fyrir bestu.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
DóMsMál Meinað að fara í faðernisMál vegna feðraðra barna
Ótti við tilhæfulausar
málshöfðanir í
faðernismálum
Maður sem telur sig föður
barns sem hefur þegar verið
feðrað getur ekki stefnt í
faðernismáli. Þórir Björn
Sigurðarson sem rannsakaði
málshöfðunaraðild í faðernis-
málum í meistaraverkefni sínu
í lögfræði segir þetta brjóta
gegn stjórnarskránni og
sömuleiðis Mannréttindasátt-
mála Evrópu. Á undanförnum
árum hafa þrisvar verið lögð
fram frumvörp á Alþingi til að
breyta þessu en þau hafa ekki
náð fram að ganga, meðal
annars af ótta við tilhæfu-
lausar málshöfðanir.
Þórir Björn Sigurðarson sem í meistaraverkefni sínu í lögfræði við Háskóla Íslands
rannsakaði málshöfðunaraðild í faðernismálum og hvað barninu væri fyrir bestu í
slíkum málum.
Ætla verður
að ótti við
tilhæfu-
lausar máls-
höfðanir sé
ástæðulaus.
AMSTERDAM flug f rá
F l júgðu með f rá jún í t i l október
14.999 kr.
BARCELONA flug f rá
F l júgðu með f rá maí t i l október
19.999 kr.
Sýningar eru
hafnar að nýju
10 fréttaviðtal Helgin 9.-11. janúar 2015