Fréttatíminn - 09.01.2015, Blaðsíða 78
heilsa Helgin 9.-11. janúar 201518
H já okkur er áhersla lögð á persónulega og góða þjón-ustu sem fullnægir þörfum
þeirra sem gera kröfur um það besta
þegar kemur að líkamsrækt og vel-
líðan,“ segir Agnes Þóra Árnadóttir
næringarfræðingur en hún starfar
einnig sem þjálfari í sal hjá stöðinni.
Persónuleg þjónusta
Á Hilton Reykjavík Spa fá allir við-
skiptavinir handklæði við komu,
aðstoð frá þjálfara í sal sex daga
vikunnar og herðanudd í heitum
pottum eftir æfingu. Eftir æfingu
setjast viðskiptavinir okkar oft nið-
ur og spjalla saman og fá sér kaffi
sem er innifalið fyrir meðlimi.
Hilton Reykjavík Spa býður upp
á fjölbreytta stundaskrá sem inni-
heldur tíma líkt og yoga, hot yoga,
box, foam flex, þrek, body pump,
styrkur & afl og margt fleira. „Tím-
arnir okkar henta bæði konum og
körlum og oft myndast skemmti-
legur og hvetjandi hópandi meðal
þeirra sem mæta alltaf í sömu tím-
ana,“ segir Agnes Þóra.
Fjölbreytt námskeið fyrir alla
aldurshópa
Næstkomandi mánudag, 12. janúar,
hefjast ný lokuð námskeið. „Hægt
er að taka þátt í hvort sem maður
er meðlimur eða ekki,“ segir Ag-
nes Þóra. Í boði eru tvenns konar
námskeið.
Á svökölluðu átaksnámskeiði
fara fram fjölbreyttir og fjörugir
tímar sem henta öllum aldurshóp-
um. Einnig er boðið upp á fyrir-
lestur um næringarfræði, fróðleik
á tölvupósti, uppskriftir, mæling-
ar og lokahóf. „Á þessu námskeiði
viljum við hjálpa fólki að öðlast nýj-
an og betri lífsstíl með reglulegri
hreyfingu og hollu mataræði. Á
námskeiðinu er einnig boðið upp á
matarpakka sem geta hjálpað fólki
að læra á skammtastærðir og að
hollur matur getur líka verið góð-
ur,“ segir Agnes Þóra.
Hitt námskeiðið sem boðið er
upp á nefnist Hot jógateygjur og
öndunaræfingar. Á námskeiðinu
eru jógateygjur í bland við öndun-
aræfingar gerðar í 38-40° hita til
að öðlast sveigjanleika og til þess
að komast dýpra inn í stöðurnar.
„Þessar æfingar eru sérstaklega
góðar til þess að takast á við kvíða,
astma og þyngdartapi meðal ann-
ars,“ segir Agnes Þóra.
Viku seinna, mánudaginn 19.
janúar, hefst síðan námskeiðið
60 plús sem er fyrir einstaklinga
60 ára og eldri. Áhersla er lögð á
styrk, þol, samhæfingu og jafn-
vægi sem stuðla að auknum lífs-
gæðum.
Fyrsta flokks heilsulind
„Á Hilton Reykjavík Spa erum
við einnig með nudd- og snyrti-
stofu sem býður upp á fjölmargar
meðferðir fyrir konur og karla. Í
heilsulindinni eru tveir nuddpott-
ar þar sem boðið er upp á herða-
nudd, tvær ilmgufur og slökunar-
laug. Úti á veröndinni er einnig
heitur pottur og sauna ásamt sól-
baðsaðstöðu,“ segir Agnes Þóra.
Meðlimir fá 10% afslátt af þessari
þjónustu.
Næringarráðgjöf
Hilton Reykjavík Spa býður einnig
upp á næringarráðgjöf hjá Agnesi
Þóru fyrir meðlimi sem og utanað-
komandi gesti. Næringarráðgjöfin
er fyrir fólk sem vill ná betri tök-
um á mataræði hvort sem það vill
léttast, þyngjast, bæta á sig vöðva-
massa eða einfaldlega vera viss um
að allar næringarþarfir séu upp-
fylltar.
Matarpakkar
Frá og með 12. janúar verður boð-
ið upp á matarpakka sem hægt
er að nálgast á Hilton Reykjavík
Spa. Agnes vinnur matarpakkana
í samstarfi við yfirkokk Hilton hót-
elsins og eldhús Vox. Í matarpakk-
anum er matur fyrir allan daginn
og hægt er að velja milli 1500 kcal,
1800 kcal, 600 kcal (5:2 föstu fyrir
konur) og 800 kcal (5:2 föstu fyrir
karla).
Allar nánari upplýsingar um
starfsemi Hilton Reykjavík Spa má
finna á heimasíðunni www.hilton-
reykjavikspa.is
Unnið í samstarfi við
Hilton Reykjavík Spa
Hilton Reykjavík Spa er persónuleg heilsulind og líkamsrækt sem
staðsett er á Hilton Reykjavík Nordica. Megináhersla er lögð á
fyrsta flokks þjónustu í rólegu og þægilegu andrúmslofti.
Heilsulind og
líkamsrækt í rólegu
og þægilegu umhverfi
Agnes Þóra Árnadóttir og Guðbjartur Ólafsson, þjálfarar í sal hjá Hilton Reykjavík Spa
Göngugreining
Pantaðu
tíma
í síma
5173900
Orkhúsinu / Suðurlandsbraut 34 / 517 3900
Vandamál sem göngugreining Flexor getur
hjálpað til við að leysa eru til dæmis:
• þreytuverkir og pirringur í fótum
• verkir í hnjám
• sársauki eða eymsli í hælum
(hælspori, „plantar fasciitis“ o.fl.)
• beinhimnubólga
• óþægindi eða verkir í baki
og/eða mjöðmum
• verkir í tábergi og/eða iljum
• hásinavandamál
• óþægindi í ökklum
• þreytu- og álagsverkir
hjá börnum og unglingum
Margnota augnhitapoki
Augnhvílan er auðveld í notkun og vermir í 10 mínútur í hvert sinn.
Hún er einfaldlega hituð í 30 sekúndur í örbylgjuofni og lögð yfir augun.
Fæst í apótekum Lyfju og Eyesland Gleraugnaverslun, Glæsibæ
Ef augnhvílan er notuð tvisvar á dag
með reglulegu millibili hefur hún
jafnan jákvæð áhrif á eftirfarandi:
• Hvarmabólgu (Blepharitis)
• Vanstarfsemi í fitukirtlum
• Augnþurrk
• Vogris
• Augnhvarmablöðrur
• Rósroða í hvörmum/augnlokum
Önnur einkenni sem augnhvílan getur
dregið úr og eru tengd augnþurrki:
• Útferð í augum
• Þreyta í augum
• Rauð augu
• Óskýr sjón
• Brunatilfinning í augum
• Aðskotahlutstilfinning
• Erting í augum
Augnhvilan