Fréttatíminn - 09.01.2015, Blaðsíða 8
ALICANTE flug f rá
F l júgðu með f rá mars t i l óktóber
17.999 kr.
20%
afsláttur
Lyfjaauglýsing
Allar stærðir og styrkleikar
Gildir til 31. Janúar
Viðhorf gagnvart íslam
Hlutfall þeirra sem finnst íslam ekki samræmast vestrænni menningu. (dökkgrænt)
Hlutfall múslima í landinu, % af heildinni. (ljósgrænt)
Spánn
Ísrael
Sviss
Þýskaland (austur)
Frakkland
Þýskaland (vestur)
Svíþjóð
Bretland
Bandaríkin
0 10 20 30 40 50 60
2
18
6
6
6
5
5
8
2
Íslam í Evrópu
H eimurinn sameinast nú í sorg yfir árásinni á höfuð-stöðvar Charlie Hebdo
skopmyndablaðsins í París á mið-
vikudag þar sem 12 manns létust.
Lögreglan hefur tvo menn
grunaða um morðin en hafði enn
ekki haft hendur í hári þeirra
þegar Fréttatíminn fór í prentun
svo ekki er hægt að gefa neitt
upp um ástæðu verknaðarins
að svo stöddu. Vitni náðu þó að
taka það upp á myndband þegar
einn árasarmannanna hrópaði á
leið sinni frá vettvangi „Allahu
akbar“, sem þýðir „guð er góður” á
arabísku. Þetta hefur gefið sögum
um að ofstækistrúarmenn standi á
bak við verknaðinn byr undir báða
vængi. Auk þess hefur blaðið legið
undir árásum manna í nafni íslam
til fjölda ára og var meðal annars
sprengju hent inn í höfuðstöðvar
þess árið 2011 eftir að einu tölu-
blaðinu með-ritstýrt af Múhameð
spámanni. Skopmyndir teiknar-
anna sem létust voru beitt ádeila á
fáránleika hverskyns ofstækis og
voru þeir þekktir fyrir að gera grín
að öllu og öllum, sama hvort það
Samstaða gegn aðför að tjáningarfrelsi
væri Múhameð spámaður, Jesús,
Jósep eða María.
Þúsundir manna hafa safnast
saman, ekki bara í Frakklandi
heldur víðsvegar um heiminn, til
að votta minningu fórnarlambanna
virðingu sína. Teiknarar alls staðar
að úr heiminum keppast við að tjá
hug sinn í myndum sem dreifast
á ljóshraða um internetið og fjöl-
miðlar víðsvegar um heiminn sýna
samstöðu með starfsfólki Charlie
Hebdo með því að birta myndir
þeirra. Því rétt eins og myndin
sem listakonan Lucille Clerc birti
á Instagram síðu sinni í kjölfar
árásarinnar lýsir svo vel, þá mun
þessi aðför að tjáningarfrelsinu
ekki verða til þess að raddir gagn-
rýnnar hugsunar þagni heldur til
þess að þær sameinist og tvíeflist
gegn hverskyns aðför að tjáningar-
frelsinu.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Teiknarar víðsvegar um heiminn hafa vottað minningu fórnarlamb-
anna virðingu sína með myndum sem ferðast hratt um netið.
Forsíða Charlie Hebdo hér til hliðar var sú fyrsta til að birtast eftir
árásina á skopmyndablaðið árið 2011. Teikning að ofan: Lucille Clerc
Hversu hátt
hlutfall
þjóðin telur
vera mús-
lima.
Hversu hátt
hlutfall
þjóðarinnar
er múslimar.
Hlutfall múslima í nokkrum löndum Evrópu
Frakkland
8
31
Ítalía
4
20
Spánn
2
16
Pólland
0,1 5
Ungverjaland
0,1 7
Svíþjóð
5
17
Brétland
5
21
Belgía
6
29
Þýskaland
6
19
Heimild: Economist
8 úttekt Helgin 9.-11. janúar 2015