Fréttatíminn - 09.01.2015, Blaðsíða 72
heilsa Helgin 9.-11. janúar 201512
V ið gáfum út tvær metsölu-bækur, Heilsurétti f jöl-skyldunnar, sem við skrif-
uðum í kjölfar þess að fjölskyldan
breytti um mataræði vegna sjúk-
dóms sonar okkar,“ segir Berglind.
Meðlimir fjölskyldunnar eru sex
talsins og því fannst henni mikil-
vægt að bókin myndi henta fjöl-
skyldufólki. Í bókunum tveimur er
því að finna uppskriftir að hollum
og góðum mat sem börnin vilja líka
borða. Í seinni bókinni eru auk þess
reynslusögur um hvernig breytt
matarræði hefur haft jákvæð áhrif
á börn með ýmsa kvilla.
Þrenns konar heilsuréttir án
allra aukaefna
Heilsuréttir f jölskyldunnar eru
bragðgóðir og næringarríkir réttir
sem eru tilvaldir fyrir þá sem eru
stöðugt að en réttunum þarf aðeins
að stinga inn í ofn og hita og þá eru
þeir tilbúnir. „Eftir að bækurnar
okkar: Heilsuréttir fjölskyldunnar
og Nýir heilsuréttir komu út kom
í ljós að fólk hefur því miður ekki
alltaf tíma til þess að elda næring-
arríkan mat frá grunni eins og það
vildi gera, meðal annars til þess að
forðast aukaefni og mikinn sykur,“
segir Berglind. Þau hjónin tóku því
að sér að búa til heilsurétti án auka-
efna og viðbætts sykurs. Sigurður
var meðlimur í íslenska kokkalands-
liðinu og því er um að ræða heilsu-
rétti í hæsta gæðaflokki. „Við höfum
útbúið þrjá nýja heilsurétti, Græn-
metislasagna, Gulrótarbuff og Ind-
verskar grænmetisbollur. Heilsu-
réttir fjölskyldunnar eru hreinar og
næringaríkar vörur. Það er í raun
eins og ég og maðurinn minn hafi
komið í eldhúsið þitt og eldað ofan
í alla fjölskylduna,“ segir Berglind.
Fleiri heilsuréttir væntanlegir
Heilsuréttirnir voru lengi í þróun.
„Það er ekki mjög auðvelt að fjölda-
Hjónin Berglind Sigmarsdóttir
og Sigurður Gíslason eru frá-
bærar fyrirmyndir þegar kemur
að heilsu og hollu matarræði.
Þau hafa gefið út tvær mat-
reiðslubækur og hafa nú sent
frá sér þrjá girnilega rétti undir
merkinu Heilsuréttir fjölskyld-
unnar. Þar að auki reka þau
hollustuveitingastaðinn Gott í
Vestmannaeyjum.
framleiða mat sem er laus við öll
rotvarnarefni, litarefni og allt þetta
rusl sem maður vill ekkert hafa
í matnum sínum. Þetta tók svo-
lítið langan tíma en það er algjör-
lega þess virði,“ segir Berglind,
en þau hjónin vildu uppfylla þarfir
viðskiptavina sinna að fullu. „Við
viljum að fólk hafi ákveðið val og
því látum við til dæmis jógúrtsósu
fylgja með grænmetisbollunum í
sérpökkuðum umbúðum og slepp-
um að hafa ost með grænmetisla-
sagnanu svo að einstaklingar með
mjólkuróþol geti samt sem áður
neytt varanna.“ Berglind og Sig-
urður stefna á að auka úrvalið og
koma fleiri heilsuréttum á markað
á næstu misserum.
Heilsuréttir fjölskyldunnar fást í
flestum matvöruverslunum á höf-
uðborgarsvæðinu og á landsbyggð-
inni.
Unnið í samstarfi við
Heilsurétti fjölskyldunnar
Hjónin Berglind Sigmarsdóttir og Sigurður Gíslason eru búsett í Vestmannaeyjum
þar sem þau reka veitingastaðinn Gott. Þau hafa einnig sett á markað þrenns konar
ljúffenga heilsurétti sem eru fáanlegir í öllum helstu matvöruverslunum.
Heilsuréttir fjölskyldunnar
Hollur og
fljótlegur
valkostur
Fróðleiksmolar
úr bókinni
n Bananar eru góðir við brjóstsviða, þeir eru
í raun berjategund, eru lítillega geislavirkir,
þroskast hraðar ef þeir eru settir í pappírspoka
ásamt tómat eða epli og þeir innihalda vöðvap-
rótín sem hjálpa gegn risvandamálum.
n 50% af genamengi mannsins er sameiginlegt
með banönum.
n Epli virka betur gegn þreytu á morgnana
en koffín. Epli, ferskjur og hindber eru rósa-
tegundir og það eru 7.000 tegundir af eplum
ræktaðar í heiminum.
n Engifer er allra meina bót, afbragðsgott við
kvefi, ógleði og öðrum meltingarkvillum.
Ferskir djúsar
sem hressa fólk við
Djúsbók Lemon kom út á dögunum en í henni er
að finna fjörutíu uppskriftir forvitnilegra djúsa sem
smellpassa inn í fyrirheit fólks um breyttan lífsstíl
á nýju ári. Félagarnir Jón Arnar Guðbrandsson og
Jón Gunnar Geirdal reka tvo Lemon-staði og eiga
heiðurinn af uppskriftunum í bókinni. Við fengum
þá til að deila með okkur þremur skemmtilegum
djúsum. Rétt er að taka fram að þeir nota alltaf
bleik epli, til að mynda Pink Lady eða Honey Crisp. Jón Gunnar Geirdal og Jón Arnar Guðbrandsson hafa gefið út bók með 40 djúsupp-
skriftum af veitingastaðnum Lemon. Ljósmynd/Hari
Grænmetislasagnað inniheldur
fullt af hollu grænmeti, m.a.
sætum kartöflum, gulrótum, lauk
og hvítlauk. Enginn bindiefni eru
í honum og lasagnablöðin eru
unnin úr heilhveiti.