Fréttatíminn - 09.01.2015, Blaðsíða 70
heilsa Helgin 9.-11. janúar 201510
S moothie, eða þeytingur, er f ljótleg, holl og bragðgóð lausn þegar þig langar í eitt-
hvað fljótlegt og gott í gogginn.
Jafnvel þó að drykkurinn sé grænn
þarf hann alls ekki að vera bragð-
vondur. Ef hann er búinn til á réttan
hátt getur hann verið uppfullur af
vítamínum, steinefnum, andoxun-
arefni, próteini, hollri fitu og svo
miklu meira. Hér má finna hollan
og góðan leiðarvísi að því hvernig
er hægt að búa til smoothie og fá
sem mest út úr honum.
Smoothie
– Máltíð í glasi
Skref 1: Ávextir. Veldu að minnsta kosti
tvær tegundir af ávöxtum, ferska eða
frosna. Þó það geti verið ógnvekjandi
að henda einhverju grænu út í hann, þá
eykur það hollustuna. Grænkál, spínat og
klettasalat eru góðir kostir.
Skref 2: Grunnur. Gott er að miða við um
það bil tvo bolla af vökva. Því meiri vökva
sem ávextirnir sem þú velur innihalda,
því minni vökvi er nauðsynlegur. Góðir
valkostir: Mjólk (soja-, möndlu- eða hrís-
mjólk), ferskur ávaxtasafi, ískaffi, kælt
grænt te, kókosvatn eða kókosmjólk að
ógleymdu íslenska vatninu.
Skref 3: Áferð. Til að ná þeirri áferð sem
þér þykir best er tilvalið að nota eftir-
farandi fæðutegundir:
Hnetusmjör
Hreina jógúrt
Ís (svona spari)
Klaka
Ferska kókoshnetu eða kókösflögur
Chia fræ
Haframjöl
Skref 4: Bragð. Alls kyns náttúruleg
sætuefni, krydd, ávextir og jurtir eru
tilvalin til bragðbætingar. Stevia, hunang,
kanill, hlynsýróp, múskat, fíkjur, mynta,
basil og döðlur eru dæmi um fæðu-
tegundir sem gefa gott bragð.
Skref 5: Orkuskot. Gefðu þér smá orku-
búst með því að bæta við próteini, omega-
sýrum, goji berjum, spirulina, vítamínum
eða öðrum orkugjöfum í þinn smoothie.
É g hef æft í Reebok Fitness frá því að stöðin var opn-uð, bæði líkamsrækt og í
CrossFit. Einnig hef ég starfað
sem einkaþjálfari í Reebok Fit-
ness Holtagörðum en ég er mennt-
aður þjálfari frá Íþróttaakademíu
Keilis.“ Stöðin er 1.500 fermetrar
að stærð og hefur öll þau tæki og
tól sem og aðstöðu sem fullbúin
líkamsræktarstöð þarfnast. Boð-
ið verður upp á alla vinsælustu
tímana til dæmis Zumba, Hot
Yoga, BikeFit, hjólatíma, leikfimi,
mömmutíma og fleira. Allir ættu
því að geta fundið sér eitthvað við
sitt hæfi.
Líkamsrækt í þægilegu and-
rúmslofti
„Við höfum fundið mikinn meðbyr
með stöðinni okkar í Holtagörðum,
við erum fersk og andrúmsloftið er
þægilegt, aðsókn hefur aukist og
nú finnst okkur kjörið tækifæri til
þess að stækka, opna nýja stöð og
bjóða fleirum að njóta þess að æfa
með okkur í Reebok Fitness,“ segir
Erlendur.
Opnunarhátíð á morgun,
laugardag
Nýja stöðin verður opnuð með
pompi og pragt klukkan 10 þann
10. janúar. „Við munum bjóða öllum
sem vilja upp á fríar mælingar og
æfingakerfi með þjálfara. Við ætlum
einnig að gefa 300 pláss í einkaþjálf-
un út janúar og þá virkar einfaldlega
fyrstur kemur fyrstur fær. Þetta er
frábært tækifæri fyrir alla byrjend-
ur sem vilja fá hjálp og góðar leið-
beiningar til að koma sér í gang,“
segir Erlendur. Um opnunarhelg-
ina mun 10.000 kr. gjafabréf í GÁP
fylgja með öllum ársáskriftum. Það
verður klárlega eitthvað á boðstól-
um fyrir alla, íþróttaálfurinn mun
til dæmis kíkja í heimsókn, auk þess
sem fyrsti þátturinn í nýrri þáttaröð
af Biggest Loser Ísland verður for-
sýndur.
En við hverju mega nýir og nú-
verandi meðlimir búast í Urðar-
hvarfi? „Stemningin verður svipuð
og í Holtagörðum. Viðmótið verður
vingjarnlegt og mikið lagt upp úr
því að öllum líði vel í stöðinni. Urð-
arhvarfið er þó minna húsnæði svo
andrúmsloftið verður heimilislegt
en stöðin auðvitað opin og björt.
Við munum samt bjóða upp á nýja
og spennandi tíma svo ég legg til
að allir fylgist vel með,“ segir Er-
lendur.
Engin binding
„Viðskiptavinir okkar kunna að
meta að skrá sig í áskrift og greiða
mánaðarlega og ef þeir sjá fram á
að geta ekki notað einhverja
mánuði þá er nóg að segja
upp tveimur dögum fyr-
ir mánaðamót. Eins
geta þeir sem vilja
gera betri kaup
keypt lengr i
áskriftir eins
og 12 mán-
uði og þá er
verðið hag-
stæðara,“
segir Er-
lendur,
sem
hvet-
ur
alla til að kíkja í Urð-
arhvarfið á morgun og
skoða glænýja, bjarta
og flotta stöð og taka
þátt í fjörinu.
Unnið í samstarfi við
Reebok Fitness
Líkamsræktarstöðin Ree-
bok Fitness opnar nýja stöð
við Urðarhvarf í Kópavogi á
morgun, 10. janúar. Erlendur
Jóhann Guðmundsson mun
gegna starfi stöðvarstjóra á
nýju stöðinni og er hann mjög
spenntur fyrir komandi verk-
efni.
Reebok Fitness
opnar nýja stöð
við Urðarhvarf
Inner Cleanse
15 daga hreinsun
Inner Cleanse hefur góð áhrif á heilsuna og hjálpar líkamanum
að losa sig við aukaefni á náttúrulegan og áhrifaríkan hátt.
Vatnslosandi, bætir meltingu, stútfullt af vítamínum.
Kemur í staðinn fyrir fjölvítamín.
Fæst í apótekum
Nánar á vitamin.is
facebook.com/vitamin.is