Fréttatíminn - 09.01.2015, Blaðsíða 32
námskeið Helgin 9.-11. janúar 201532
M argt hefur átt sér stað í tölvu- og viðskiptaheim-inum á þessum tæpu 20
árum sem skólinn hefur starfað.
Þróunin hefur orðið sú að nú býður
skólinn nær eingöngu upp á starfs-
nám, það er eins eða tveggja anna
nám. Tveggja anna forritunarbraut
er til dæmis orðin mjög vinsæl
námsleið. Kerfisstjóranám er líka
meðal vinsælustu námsleiðanna og
er tengt alþjóðlegum staðli og er því
góður stökkpallur út á hinn alþjóð-
lega atvinnumarkað.
Nám sem metið er til stúdents-
prófs
NTV er viðurkenndur af mennta-
málaráðuneytinu sem einkaskóli á
framhaldsskólastigi og gefur nám
hjá NTV einingar til stúdentsprófs.
NTV hefur ætíð haft það orðspor á
sér að vera vinalegur og heimilis-
legur skóli og nemendur hafa oft
orð á að þeim líði vel í skólanum. Öll
aðstaða skólans er til fyrirmyndar.
Öflugar tölvur, 27” flatskjáir og skjá-
varpar eru í öllum kennslustofum,
gott loftræstikerfi er í öllum skól-
anum og þægileg og heimilisleg að-
staða fyrir nemendur.
Námskeið í grafískri hönnun
Fjöldinn allur af námskeiðum er
að hefjast á næstu vikum og meðal
þeirra er námskeiðið Grafísk hönn-
un. Kennslan á því námskeiði er í
höndum Þorsteins Aðalsteinsson-
ar en hann er meðal reynslumestu
kennara skólans. „Síðan í haust get
ég sagt með réttu, eins og leigubíl-
stjórinn í Spaugstofunni, að ég sé
búinn að vera í þessum bransa í 25
ár, það er grafíska geiranum,“ segir
Steini, eins og hann er ávallt kall-
aður. Eins og nafnið á námskeiðinu
gefur til kynna snýst það um graf-
íska hönnun í víðu samhengi, en öll
áhersla og verkefnavinnsla miðast
eingöngu við það sem fer í prentun.
„Fyrir utan verkfærin og tækni-
legu hlutina er auðvitað líka fjallað
um aðra hluti sem óhjákvæmilega
tengjast eða eru hluti af konsept-
inu eins og til dæmis markaðsmál,
liti, letur, pappír, skipulag og sam-
skipti,“ segir Steini.
Námskeiðið er opið öllum, en
nauðsynlegt er að nemendur hafi
góða undirstöðu í almennri tölvu-
notkun. Steini segir einnig að þó
kennslan fari fram á „pésum“ í
windows umhverfi þurfi makka-
fólk ekkert að óttast. „Ég er sjálfur
makkamaður fram í fingurgóma.“
Aðspurður hverjum námskeiðið
henti einna helst segir Steini: „Það
má kannski segja að í gegnum tíð-
ina hafi nemendur mínir skiptst í
þrjá hópa: Fólk sem er á leið í list-
nám hér heima eða erlendis og nýtir
þetta námskeið sem grunn, skrif-
stofufólk hjá minni eða meðalstór-
um fyrirtækjum sem er að víkka
hjá sér starfssviðið og að lokum alls
konar fólk sem á það sameiginlegt
að hafa mikinn áhuga á grafískri
hönnun.“
Skemmtilegt og lærdómsríkt
ferli
Næsta námskeið í grafískri hönnun
hefst 12. febrúar og stendur fram í
lok maí. Kennt er á þriðjudögum og
fimmtudögum og hægt er að velja
á milli dagskóla (frá kl. 13-17) og
kvöldskóla (frá kl. 18-22). Kennslan
fer fram í formi fyrirlestra, spjalls
og fyrirspurna. Mikið er um verk-
efni í tímum og námskeiðinu lýkur
síðan með stóru lokaverkefni. „Ég
legg mikið upp úr því að námskeið-
ið sé lifandi og skemmtilegt, ekki
síður en uppbyggilegt og lærdóms-
ríkt,“ segir Steini.
Skráning fer fram á heimasíðu
skólans: www.ntv.is. Þar má einnig
finna nánari upplýsingar um nám-
skeiðið í grafískri hönnun og önnur
námskeið sem eru í boði.
Unnið í samstarfi við
NTV
Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn
(NTV) hóf starfsemi sína í
október 1996. Stofnendur
voru bræðurnir Jón Vignir og
Sigurður Karlssynir. Skólinn
er staðsettur í Hlíðasmára í
Kópavogi og þar er að finna sjö
kennslustofur auk aðstöðu fyrir
nemendur og starfsfólk.
Lifandi og skemmtilegt
nám í Nýja tölvu- og
viðskiptaskólanum
Steini Aðalsteins kennir námskeiðið Grafísk hönnun hjá NTV. Mynd / Stefán Karlsson.
NáMskeið skrif og sköpuN – ritsMiðja í jaNúar
Soffía og Halla Margrét með námskeið í skapandi skrifum
Þær Halla Margrét Jóhannesdótt-
ir, leikari og rithöfundur, og Soffía
Bjarnadóttir rithöfundur standa
fyrir kröftugu námskeiði í skap-
andi skrifum nú í janúar. Nám-
skeiðið kalla þær Skrif og sköpun
– ritsmiðja og er kennt á þremur
kvöldum.
Á námskeiðinu fá þátttakendur
að kynnast vinnulagi hins skap-
andi skrifara, læra að fylgja inn-
blæstri sínum og þroska vinnu-
aðferðir. „Hugrekki og sjálfstæð
vinnubrögð verða höfð að leiðar-
ljósi við að þróa eigin rödd í skrif-
um. Þá vinna nemendur fjölbreytt
verkefni til að efla sköpunarkraft,“
segja þær Halla Margrét og Soffía.
Námskeiðið er ætlað jafnt byrj-
endum sem lengra komnum.
Fjöldi þátttakenda er takmark-
aður við fjórtán manns.
Halla Margrét er leikari og rit-
höfundur sem hefur leikið, skrifað
og kennt um árabil. Hún lék meðal
annars í og skrifaði, ásamt fleir-
um, leikritið Dauðasyndirnar sem
sýnt var í Borgarleikhúsinu 2008
til 2009. Ljóðabók hennar 48 kom
út á sumarsólstöðum 2013.
Soffía er bókmenntafræðingur
og rithöfundur sem hefur skrifað
margvíslega texta um bókmenntir
og leikhúslist. Hún hefur meðal
annars kennt námskeið í ritlist við
Háskóla Íslands. Skáldsaga henn-
ar Segulskekkja kom út haustið
2014.
Skrif og sköpun – ritsmiðja
verður haldin að Suðurgötu 35,
Reykjavík miðvikudagskvöldin
14., 21. og 28. janúar 2015 klukk-
an 19.30 til 22. Skráning fer fram
með því að senda tölvupóst á skri-
fogskopun@gmail.com og nánari
upplýsingar er að finna á Facebo-
ok síðunni Skrif og sköpun – rit-
smiðja. Þátttökugjald er 24.000
krónur.
Halla Margrét og Soffía standa fyrir rit-
smiðju sem þær kalla Skrif og sköpun.
Glerbræðsla
Leirmótun
Keramikmálun
Tiany´s
Glerskurður
Skartgripagerð o..
Námskeiðin okkar eru
að heast
Höfum allt efni til glervinnslu, leirvinnslu,
keramikmálunar og skartgripagerðar.
Sjá nánar á www.glit.is
Vinsælu hljómborðsnámskeiðin
að hefjast
• Börn, unglingar og fullorðnir.
• Krakkatímar
• Byrjendur velkomnir sem og lengra komnir.
• Einkatímar.
Ármúli 38 • 108 Reykjavík • Sími 691 6980 og 551 6751
pianoskoli@gmail.com • pianoskolinn.is
Munið
frístundakortið!
Þetta er mitt líf
Uppbyggjandi og áhugvert
námskeið fyrir alla.
Á námskeiðinu verður allað um forsendur lífshamingju, eingu sjálfsmyndar,
undirstöðuatriði hugrænnar atferlismeðferðar og viðtalstækni. Þá verða kenndar leiðir
til að losna undan stjórn annarra. og hvernig veita megi stuðning án stjórnunar og
íhlutunar. Einnig verður m.a. allað um andlegt ofbeldi í daglegu lí, „ættarfylgjur“,
fullkomnunaráráttu, „ertt fólk“ og andlegan þroska.
Námskeiðið tekur átta klukkustundir, tvær klukkustundir í senn, tvisvar í viku og fer
fram í Fjölskylduhúsi, Grensásvegi 16 a. Að námskeiði loknu geta þátttakendur skráð
sig í vinnuhópa sem hittast einu sinni í viku í átta vikur
Námskeiðið kostar 27.000 krónur og innifalið í verðinu er eitt einstaklingsviðtal sem tekið
er áður en námskeiðið hefst, námsgögn og kaveitingar.
Fyrsta námskeið ársins 2015 hefst 27. janúar
og er skráning han.
Hægt er að panta viðtal og/eða skrá sig á námskeið í síma
694-7997 eða senda tölvupóst á: astakro@ismennt.is
Ásta Kristrún Ólafsdótttir
Ráðgja og sálfræðingur.
Einstaklings-hjóna-og ölskylduráðgjöf.
Fyrirlestrar, námskeið og hópar.