Fréttatíminn - 09.01.2015, Blaðsíða 66
heilsa Helgin 9.-11. janúar 20156
Óskar Jón Helgason, forstöðumaður heilbrigðisþjónustu og hjúkrunarfræðingarnir Maríanna Csillag og Hildur Ýr Guðmunds-
dóttir, starfsmenn Heilsuskóla Heilsuborgar. Mynd/Hari
Að læra á sjálfan sig
H eilsuskólinn í Heilsuborg er að fara af stað um þessar mundir og þar ríkir mikil
eftirvænting að byrja nýja önn. „Það
eru talsverðar breytingar að eiga
sér stað hjá okkur og við erum mjög
spennt að sjá hvernig þær koma út,“
segir Óskar Jón Helgason, skóla-
stjóri Heilsuskólans. „Það má segja
að við séum að breyta úr bekkja-
kerfi í áfangakerfi. Nú er hægt að
velja um að vera í fullu námi eða
velja stök námskeið.“ Hægt er taka
bara á hreyfingunni en þá býðst að
vera í æfingahópi sem æfir á föstum
tíma þrisvar í viku. Einnig er hægt
að velja einungis fræðsluhlutann og
læra þar svolítið á sjálfan sig. Hvert
fræðslunámskeið tekur átta vikur.
Á þeim er meðal annars farið mark-
visst í gegnum hvaða breytingar
er æskilegt að gera á mataræði og
neyslumynstri og þátttakendur eru
síðan leiddir í gegnum innleiðingu
á þessum breytingum. Auk þess
býður Heilsuborg upp á námskeið
um eldamennsku, svefn, núvitund,
streitu og sjálfstyrkingu.
Fullt nám
„Þeir sem eru í „fullu námi“, fara
á námskeið sem kallast Heilsu-
lausnir. Það er ársprógram og í því
felst meðal annars hreyfing þrisvar
í viku auk fimm heilsunámskeiða
sem eru átta vikur hver. Tvö þessara
námskeiða, Borðum betur og Nær-
umst betur, eru svokölluð skyldu-
fög sem allir fara á en á seinni hluta
námskeiðsins getur svo hver á
einn valið sjálfur á hvaða námskeið
hann vill fara á, allt eftir því hvaða
heilsufarsþætti menn velja að leggja
áherslu á,“ segir Óskar. Hjúkrunar-
fræðingar hitta auk þess meðlimi
skólans reglulega og hjálpa þeim að
innleiða þær breytingar sem nauð-
synlegar eru. Óskar segir að um sé
að ræða námskeið fyrir venjulegt
fólk en venjulegt fólk er því miður
oft að borða vitlaust, hreyfa sig lítið
eða sofa illa. Á námskeiðinu gefst
tækifæri til að laga þetta og hafa
svolítið gaman af því í leiðinni.
Fjölbreytt námskeið fyrir alla
Auk Heilsulausnanámskeiðsins
býður heilsuskóli Heilsuborgar
meðal annars upp á námskeiðin
Offitulausnir fyrir fólk í mikilli of-
þyngd, Orkulausnir fyrir fólk sem
þarf að fara rólega af stað, Stoð-
kerfislausnir fyrir fólk með stoð-
kerfisvandamál og Hugarlausnir
fyrir fólk sem glímir við þunglyndi,
kvíða og/eða streitu. Nánari upp-
lýsingar um starfsemi Heilsuborg-
ar má finna á heimasíðunni www.
heilsuborg.is
Unnið í samstarfi við
Heilsuborg
Rau
ðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
• Mylur alla ávexti, grænmeti
klaka og nánast hvað sem er
• Hnoðar deig
• Býr til heita súpu og ís
• Uppskriftarbók og
DVD diskur
fylgja með
Lífstíðareign!
Tilboðsverð kr. 105.622
Með fylgir Vitamix sleif
drykkjarmál og svunta
Fullt verð kr. 124.262
Meira en bara
blandari!
Hreyfing
hægir á
öldrun
Regluleg hreyfing getur verið
lykillinn að eilífri æsku bæði
fyrir mýs og menn.
Vísindamenn við McMaster há-
skólann í Kanada komust að því að
æfingar sem styrkja þolið hægðu
á öldrun hjá hópi músa sem höfðu
verið erfðabreyttar til að eldast
hraðar. Mýsnar voru látnar hlaupa á
hlaupabretti í nokkrar mánuði sem
virtist koma í veg fyrir öldrun í líf-
færum músanna. Vísindamennirnir
sögðu að líkamsræktarprógramið
veitti næstum hundrað prósent
vörn gegn gránandi feldi, hárlosi,
heila- og vöðvarýrnum og fleira.
Góðu fréttirnar eru þær,
að mati þeirra sem fram-
kvæmdu rannsóknina,
að það aldrei of seint að
byrja að hreyfa sig og
þeir sem hafa stund-
að kyrrsetu alla æfi
geta notið góðs af
hreyfingu, ver-
ið orkumeiri,
bætt liðleika
og styrkt innri
líffæri.