Fréttatíminn - 09.01.2015, Blaðsíða 38
námskeið Helgin 9.-11. janúar 201538
WASHINGTON flug f rá
WOW hei l sársflug f rá maí 2015!
18.999 kr.
LONDON flug f rá
Við verðum á ferð og flug i a l l t á r ið !
9.999 kr.
Frístundastyrkir gjaldgengir á tækninámskeið
F lest sveitarfélög á höfuðborg-arsvæðinu styrkja íbúa sína á aldrinum 5-18 ára til íþrótta-
eða tómstundaiðkunar af einhverju
tagi. Menntafyrirtækið Skema er
með samning við sveitarfélögin um
ráðstöfun á frístundastyrknum til
tækninámskeiða á vegum fyrirtæk-
isins. Þannig geta foreldrar barna á
aldrinum 6-16 ára nýtt styrkinn sem
stóran hluta af greiðslu á tíu vikna
námskeiðum sem haldin eru í fjöl-
mörgum grunnskólum á svæðinu
yfir vetrartímann. Stór hópur for-
eldra hefur verið að nýta frístunda-
styrkina sem greiðslu en þó eru þó
fjölmargir sem gera sér ekki grein
fyrir þessum möguleika.
Tæknikennsla í nýju tækni-
setri og fjölda grunnskóla
Skema verður með tíu vikna for-
ritunarkennslu á átta mismunandi
stöðum á vorönn 2015 og fara þau
fram víðs vegar á höfuðborgarsvæð-
inu. Auk þess verður fjöldi styttra
og lengri námskeiða í boði í nýja
tæknisetri Skema að Síðumúla 23.
„Með því að færa forritunarkennsl-
una einnig út í hverfin viljum við
koma til móts við fleiri foreldra og
börn og gera stærri hópi kleift að
sækja námskeiðin okkar. Áhugi og
frábært samstarf við grunnskóla
hefur gert okkur þetta mögulegt,“
segir Árdís Ármannsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Skema.
Skemmtileg námskeið í for-
ritun og appþróun
Dæmi um námskeið sem í boði verða
eru byrjendanámskeið í forritun og
appþróun (Kodu GameLab, Alice og
GameSalad), tækjaforritun, Minec-
raft og forritun fyrir lengra komna
(Unity 3D og vefsmíði). „Á námskeið-
unum snýst lífið hins vegar ekki bara
um tölvurnar heldur ekki síður um
skapandi hugsun og samveru með
öðrum sem deila sömu áhugamál-
um og leik,“ segir Árdís. Hjá Skema
er jafnframt mikið lagt upp úr net-
öryggi og ábyrgri tölvunotkun.
Hér má sjá hluta af leiðbeinendahópi og starfsmönnum Skema sem kemur til með
að sjá um tæknikennslu næstu annar. Leiðbeinendur Skema eru fimmtán talsins og
aðstoðarkennarar á aldrinum 7-19 ára í kringum tuttugu.
Lífið á námskeiðunum snýst ekki bara um tölvurnar heldur ekki síður um skapandi
hugsun, samveru með krökkum sem deila sömu áhugamálum og leik.
V ið Háskólasetrið sjál f t starfa um tíu manns auk lausráðinna kennara. Í
húsnæði Háskólaseturs starfa í
heild yfir 50 manns við rannsókn-
ir, kennslu og þjónustu hjá ýmsum
stofnunum og fyrirtækjum. Há-
skólasetrið er fjarnámssetur sem
þjónustar um 100 fjarnema, það
starfrækir meistaranám í haf- og
strandsvæðastjórnun og meistara-
nám í sjávartengdri nýsköpun fyrir
um 50 meistaranema auk þess að
bjóða upp á margs konar sumar-
námskeið.
Nýsköpun í fiskeldi
Á þessari önn mun Háskólasetrið
bjóða upp á opin vettvangsnám-
skeið sem eru hluti af meistara-
námi í sjávartengdri nýsköpun, en
það er hagnýtt, einstaklingsmiðað
meistaranám um gæði hafsins. Það
að námskeiðin séu opin merkir að
þátttakendur úr atvinnulífinu og
nemendum sem hafa lokið bakkal-
árprófi eða eru komnir vel áleiðis
í námi sínu er einnig velkomið að
sækja námskeiðin.
Í ár munu vettvangsnámskeiðin
fara fram í fyrsta skipti fyrir utan
Ísafjörð og segir Peter Weiss, for-
stöðumaður Háskólasetursins, það
vera mikið gleðiefni. „Tálknafjörður
er staðurinn þar sem hlutirnir ger-
ast þessa dagana á Vestfjörðum, í
nánd við þau fyrirtæki sem eru þar
að byggja upp mikið fiskeldi.“
Nýting hafsins – nýsköpun og
sjálfbærni
Á síðara námskeiði er fjallað ítarlega
um notkun sjávargróðurs, þangs og
þara. Námskeiðið fer fram í Reyk-
hólasveit, en þar starfa einmitt fyr-
irtæki sem nýta þörunga, svo sem
Þörungaverksmiðjan og Sjávar-
smiðjan/Þaraböð, en þar á svæð-
inu fer líka fram saltframleiðsla.
„Það má huga að fleiri möguleikum
þegar kemur að þörungum, en þá
má til dæmis nota í mat, fóður og
bætiefni,“ segir Peter, en á nám-
skeiðunum er einmitt farið yfir þá
möguleika sem afurðir hafsins hafa
upp á að bjóða.
„Ætlunin er að vera ekki bara
með fyrirtækjaheimsóknir, heldur
viljum við einnig fá reynslubolta á
vettvangi til að heyra þeirra reynslu
og sýn og hver möguleg úrlausnar-
efni eru, enda gætu þau verið upp-
spretta nýsköpunar,“ segir Peter.
Mælt er með því að nemendur
þekki megin forsendur viðkomandi
greinar áður en námskeið hefst.
Námið felst svo í að finna helstu
úrlausnarefni núverandi starfsemi
sem og að gera sér grein fyrir fram-
tíðarmöguleikum starfseminnar,
þar er gneisti að nýsköpun. Nem-
endur velja sér svo nýsköpunar-
verkefni og vinna úr því samkvæmt
ákveðinni aðferðafræði í samvinnu
við kennara og samnemendur. Nám-
skeiðinu lýkur svo með því að nem-
endur kynna verkefni sín.
Reyndir kennarar
Kennarar eru dr. Peter Krost og
María Maack. Peter Krost er dokt-
or í sjávarvistfræði og hefur sinnt
rannsóknum í nokkrum löndum,
meðal annars í Ísrael, en aðallega
við Eystrasaltið. Árið 1995 stofnaði
hann ráðgjafafyrirtækið Coastal
Research and Management, sem
sérhæfir sig í umhverfismati sjávar,
sjálfbæru fiskeldi og „affitun“ sjáv-
ar, sem felst í því að draga næring-
arefni úr sjó. Auk þess hefur hann
séð um rekstur þörungaframleiðslu
frá 1998 og skeldýraframleiðslu frá
2010. María Maack vinnur að dokt-
orsritgerð í visthagfræði. Hún hefur
unnið fyrir Íslenska nýorku og hef-
ur ríka reynslu á að leiða nýsköp-
unarverkefni og á sviði nýsköpunar-
ferla.
Námsleiðin í sjávartengdri ný-
sköpun er í samstarfi við Háskól-
ann á Akureyri og Nýsköpunarmið-
stöð Íslands. Skráningargjaldi er
haldið í lágmarki og frítt er fyrir
nemendur innan samstarfsnets
opinberra háskóla. Allar nánari
upplýsingar má nálgast á heima-
síðu Háskólasetursins: www.uw.is
Þar má til dæmis finna upplýsingar
um fjöldann allan af lotunámskeið-
um hjá Háskólasetri Vestfjarða, en
þau henta til dæmis vel til endur-
menntunar. Öll námskeiðin hafa
þverfaglega nálgun og höfða því til
fólks með ólíkan bakgrunn og úr
mörgum starfsstéttum.
Unnið í samstarfi við
Háskólasetur Vestfjarða
Háskólasetur Vestfjarða er
lítil stofnun á háskólastigi sem
hefur starfað frá árinu 2006.
Háskólasetur Vestfjarða býður
upp á opin vettvangsnámskeið
Dr. Peter Krost, fyrir miðju, ásamt nemendum í vettvangsferð í fiskeldisnámskeiði, vorið 2013.