Fréttatíminn - 09.01.2015, Blaðsíða 37
námskeiðHelgin 9.-11. janúar 2015 37
Enskuskóli Erlu Ara býður upp á
námsferðir til Englands fyrir 13-16 ára
sumarið 2015.
Gítarkennsla
á netinu
Fyrirtækið Guitarparty býður upp
á gítar- og bassakennslu á heima-
síðunni www.guitarparty.com. Gít-
arkennslan hentar byrjendum sem
og lengra komnum. Þorgils Björg-
vinsson, gítarleikari í Sniglaband-
inu og gítarkennari til 20 ára, kenn-
ir uppbyggingu hvers lags fyrir
sig, hljómana í laginu, ásláttinn og
hvernig skipta skal á milli einstakra
kafla í hverju lagi fyrir sig. Einnig
kennir hann undirstöðuatriðin í gít-
arleik, tækniatriði eins og tónfræði,
tónstiga og ýmis „trikk“ sem hjálpa
til og gera gítarleikinn einfaldari og
ekki síst skemmtilegri.
GuitarParty.com er vefur þar sem
þú getur sótt lagatexta og gítargrip
fyrir öll uppáhalds lögin þín, búið
til söngbækur og fengið leiðbein-
ingar um hvernig eigi að spila öll
vinsælustu lögin á gítar. Allt þetta
getur þú gert á þínum tíma, þegar
þér hentar, hvort sem það er heima,
á hótelherbergi eða í æfingapláss-
inu í skúrnum. Á síðunni fer Þor-
gils yfir grip og skiptingar í yfir 200
myndböndum og hægt er að nálgast
hljóma og söngtexta fyrir bæði gít-
ar og ukulele. Allar upplýsingar má
finna um áskriftarleiðir á síðunni
www.guitarparty.com
munandi þjóðernum vinna saman.
Þegar kennslu lýkur á daginn taka
nemendur þátt í dagskrá á vegum
skólans. Afþreyingin er af ýmsum
toga, svo sem leiklist, tónlist, tenn-
is, blak, fótbolti, keila, sund, dans,
föndur og körfubolti. Á kvöldin er
hægt að fara á diskótek, hlöðuball,
sund, bíóferð og karokí.
Nemendur dvelja hjá fjölskyld-
um þar sem þeir fá morgunmat og
kvöldverð alla virka daga en allar
þrjár máltíðir um helgar. Nemand-
inn dvelur í tveggja manna her-
bergi og ef annar nemandi er í her-
berginu er hann af öðru þjóðerni.
Lögð er áhersla á að tveir nemend-
ur af sama þjóðerni dvelji ekki hjá
sömu fjölskyldunni nema þess sé
sérstaklega óskað og skal
tekið fram að það hefur
reynst vel. Íslenskir hóp-
stjórar fylgja nemendum út
og heim aftur til Íslands auk
þess að vera til staðar allan
tímann. Nánari upplýsingar
um námsferðina og verð má
finna á heimasíðu skólans:
www.enskafyriralla.is
Enskunám í Hafnarfirði fyrir
35 ára og eldri
Enskuskóli Erlu Ara býður einnig
upp á 10 vikna námskeið sem haldin
eru í húsnæði skólans í Hafnarfirði.
Kennsla hefst 12. janúar næstkom-
andi. Kennsla fer fram einu sinni í
viku. Í boði eru 10 getustig, frá byrj-
endum upp í framhaldshópa og er
lögð áhersla á tal í öllum hópum.
Einnig er boðið upp á námsferð til
Englands fyrir þau sem þess óska.
Nánari upplýsingar fást hjá Erlu í
síma 891 7576 eða með því að senda
tölvupóst á netfangið erlaara@gma-
il.com.
Unnið í samstarfi við
Enskuskóla Erlu Ara
Enskuskóli
Erlu ArA
kynnir:
Námsferðir til
Englands fyrir
13-16 ára.