Fréttatíminn - 09.01.2015, Blaðsíða 18
Á þessum tíma
leit ég ekki
á þetta sem
einhverskonar
heimkomu í
Breiðablik. Það
skipti mig engu
hvort eitthvert
annað lið var
tilbúið að borga
100 þúsund
kalli meira í
laun eða slíkt.
Ég er uppalinn
Bliki og þetta
var bara aug-
ljóst.
A
rnar Grétarsson fór ungur til útlanda
í atvinnumennsku. Fyrst til Skot-
lands í eitt ár, svo til Grikklands í 3
ár og svo til Belgíu í 6 ár sem leik-
maður. Hann kláraði svo sinn feril
sem leikmaður þegar hann kom heim í Kópavoginn
þar sem hann spilaði í 3 ár, en fluttist svo aftur til
Grikklands árið 2010 þar sem hann var ráðinn yfir-
maður knattspyrnumála hjá gríska stórliðinu AEK
í Aþenu. Árið 2013 flutti hann svo til Belgíu til þess
að gegna sömu stöðu hjá Club Brugge. Hann segir
Breiðablik hafa haft samband og hann hafi strax
orðið áhugasamur.
„Við tókum þessa ákvörðun í sameiningu og
erum öll bara ánægð og spennt,“ segir Arnar þar
sem hann er staddur í Smáranum, félagsheimili
Breiðabliks. „Ég er að fara í nýjan kafla, þar sem
ég hef undanfarin ár verið mest í því hlutverki að
semja við leikmenn og mynda stefnur fyrir þau
félög sem ég hef verið að vinna fyrir. Núna er ég
kominn í miðjuhringinn í knattspyrnunni, í starfið
sem allt snýst um,“ segir Arnar og er ekki hræddur
við starfið. „Þetta virkar þannig að ef þú nærð ekki
árangri á vellinum þá verður allt í kringum félagið
erfiðara,“ segir Arnar. „Um leið og árangur næst,
verður allt annað auðveldara. Þegar ég fór til Grikk-
lands 2010 var markmiðið að halda áfram að spila
í einhvern tíma í viðbót, og það var rosalega erfitt
fyrstu tvö árin að vera hættur. Ég finn það núna
að ég fæ rosalega mikið út úr því að vera kominn
aftur á völlinn,“ segir Arnar. „Þó ég sé ekki að spila
sjálfur, en engu að síður í nánd við það sem er að
gerast. Ég hef saknað þess mikið.“
Arnar var spilandi aðstoðarþjálfari fyrstu ár
Ólafs Kristjánssonar hjá Breiðablik og var með
þegar liðið vann sinn fyrsta stóra titil þegar það
varð bikarmeistari árið 2009.
Hamingjan mikilvægari en laun
Í haust þegar Arnar tók þá ákvörðun að koma heim
var hann nýhættur starfi sínu hjá Brugge, en var þó
að leita sér að öðru starfi í Belgíu.
„Ég hætti í haust hjá Club Brugge þrátt fyrir að
vera með samning til ársins 2017,“ segir Arnar.
„Skipulagið breyttist hjá félaginu. Staða mín, sem
yfirmaður íþróttafélaga, átti nú að heyra undir
þjálfarann og mitt starf færi meira í það að finna
nýja leikmenn og bæta samskiptanetið við önnur
félög. Þetta er fyrirkomulag sem þekkist víða, eins
og á Englandi. Ég var þó ekki alveg tilbúinn í þessa
breytingu þar sem ég var ráðinn í annað, svo ég
hætti.
Ný áskorun á
gamla heima-
vellinum
Knattspyrnumaðurinn Arnar Grétarsson flutti heim til Íslands
í haust eftir farsælan feril erlendis, bæði sem leikmaður og
síðustu ár sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Club Brugge
í Belgíu. Arnar er kominn til starfa hjá uppeldisfélagi sínu,
Breiðablik í Kópavogi, og er ánægður að vera kominn heim.
Hann segir þetta vera nýtt upphaf fyrir sig og fjölskyldu sína
og segist aldrei horfa í baksýnisspegilinn.
Það er
meira en
að segja
það að taka
ákvörðun
um að
flytja á milli
landa. Ljós-
mynd/Hari
Ég var búinn að heyra þá af áhuga frá Breiðabliki og
eftir smá umhugsunarfrest hjá mér og fjölskyldunni
ákváðum við að slá til. Vissulega þurftum við að hugsa
það, því það er meira en að segja það að flytja allt sitt á
milli landa, segir Arnar. Hann er giftur Sigrúnu Hebu
Ómarsdóttur og eiga þau tvö börn, Sigurð Örn sem er
23 ára og Sögu Lind 15 ára. Ég varð að hlusta á það sem
hjartað vildi. Það er ekki aðalatriðið að fá vel borgað ef
maður er ekki hamingjusamur með það sem maður er
að gera.“
Belgar óútreiknanlegir
Hvað segja drengirnir í liðinu um nýja þjálfarann?
„Þeir þora ekki annað en að segja allt gott fyrir framan
hann,“ segir Arnar. „Ég held að þeir séu bara sáttir. Það
er gott að koma snemma inn í þetta undirbúningstímabil
sem er mjög langt á Íslandi. Við erum með 6 mánuði á
meðan önnur lönd eru með 6 vikur.“
Arnar var atvinnumaður í knattspyrnu í 10 ár og
kláraði sinn feril með Breiðabliki fyrir 5 árum síðan. Stóð
aldrei annað til en að spila með Breiðablik?
„Nei í rauninni ekki,“ segir Arnar. „Ég talaði bara við
Breiðablik. Á þessum tíma leit ég ekki á þetta sem ein-
hverskonar heimkomu í Breiðablik. Það skipti mig engu
hvort eitthvert annað lið var tilbúið að borga 100 þúsund
kalli meira í laun eða slíkt. Ég er uppalinn Bliki og þetta
var bara augljóst,“ segir Arnar. „Maður þarf ekkert að
lifa með þeim ákvörðunum sem maður tekur eða horfa í
baksýnisspegilinn.“
Arnar fór svo aftur til Grikklands þar sem hann kann
vel við sig. „Mér líkar vel við Grikkina. Innviðirnir eru
samt ekki nógu góður þar, þ.e.a.s. fjárhagslega. Það eru
miklir peningar á Grikklandi, en þeir eru á fárra hönd-
um,“ segir Arnar. „Þess vegna á ríkið enga peninga og
staðan er eins og hún er. Okkur fannst þetta frábær tími
og ég átti mjög góðan tíma sem leikmaður hjá AEK. Við
unnum einn bikar og náðum langt í Evrópukeppninni.
Við höfum farið oft í frí til Grikklands og ég þekki marga
þarna. Það er sárt að sjá hvernig fór fyrir landinu í kjölfar
hrunsins,“ segir Arnar.
Arnar spilaði í 6 ár í Belgíu og segir hann Belgíu líka
Grikklandi að mörgu leyti. „Belgía er svona litla Grikk-
land,“ segir Arnar. „Þar er hægt að fara endalaust í
kringum hlutina og smákóngar í hverju umdæmi sem
vilja sýna hvað þeir eru flottir. Það er hár „lifistandard“ í
Belgíu og mjög háir skattar. Gott skólakerfi og góð heil-
brigðisþjónusta. Hugarfar Belga er þó mjög frábrugðið
því sem gerist hjá okkur Íslendingum. Belgar fara mikið
í kringum hlutina og eru óútreiknanlegir á margan hátt,“
segir Arnar.
Hugarfar stærsti kostur Íslendinga
Á undanförnum árum hefur belgískum fótbolta mikið
verið hampað og það eru fjölmargir Belgar sem spila í
öllum bestu liðum heims. Arnar segist ekki geta bent
á neitt sérstakt þegar hann er spurður út í þennan upp-
gang. Hann segir ákvarðanirnar í kringum uppganginn
á Íslandi vera miklu skýrari en í Belgíu. „Stundum er það
nú þannig að það koma bara góðir árgangar upp, en ég
veit ekki til þess að Belgar hafi gert nokkurra naflaskoð-
un eins og ég vil meina að hafi verið gerð hér heima,“
segir Arnar. „Ég tel að ráðning Sigurðar Ragnars Eyj-
ólfssonar hjá KSÍ á sínum tíma hafi haft mikið að segja.
Hann setti ákveðin standard með þjálfaranámskeiðum
sem gerði það að verkum að hlutirnir bötnuðu mjög
mikið, ásamt því að fá öll húsin að sjálfsögðu. Þetta hefur
haft áhrif í öllum flokkum. Belgar hafa vissulega tekið
í gegn sínar akademíur, en að mestu leyti er þetta bara
kynslóðatengt,“ segir Arnar. „Belgar hafa að vísu verið
duglegir að leyfa mjög ungum strákum að spila með
aðalliðunum sem skilar sér oft í góðum knattspyrnu-
mönnum fyrr en ella.
Hugarfarið er líka mjög mikilvægt og á Íslandi er
meirihluti leikmanna með frábært hugarfar, sem sést
best á árangri landsliðsins. Við erum ekki endilega með
bestu leikmennina, en liðsheildin er frábær.“
Engin ein leið rétt
Hvenær varstu bestur?
„Það er nú það. Ég átti frábært tímabil í Grikklandi
þar sem við áttum að fara í undanúrslitin í Evrópukeppni
bikarhafa og töpuðum á grátlegan hátt gegn Lokomtiv
Moskvu. Þetta var 1998. Svo átti ég frábært tímabil
með Lokeren þegar ég skoraði rúm tuttugu mörk sem
miðjumaður og við enduðum í þriðja sæti,“ segir Arnar.
„Þetta var 2003 og var mjög gott tímabil, eins og þau öll
í Belgíu.“
Arnar segist ekki vera vanur því að horfa til baka með
eftirsjá en hann segist þó sjá á eftir einu tækifæri sem
hann fékk ekki. „1998 frekar en 1999 fékk AEK tilboð
í mig frá Paris Saint Germain sem þá var risaklúbbur,“
segir Arnar. „Þeir buðu 1 milljón dollara en AEK vildi 3
milljónir, sem var alltof mikið. Þeir fóru ekki í neinar við-
ræður við PSG, því miður, því ég er viss um að það hefði
verið hægt að semja um þetta,“ segir Arnar. „Það hefði
verið magnað að fá tækifæri hjá PSG á þessum tíma.“
Arnar segist vera búinn undir alla þá gagnrýni sem
þjálfararnir í Pepsi-deildinni fá yfir sumartímann. „Ég
hlakka til, segir hann. „Þetta er allsstaðar eins. Gagn-
rýnin er í öllum löndum. Það eru rosalega margir með
skoðanir á öllu og það þarf að virða þær, en ég tek þær
ákvarðanir sem ég tel bestar með mitt lið. Það eru marg-
ir þjálfarar í stúkunni og það er það sem gerir þennan
leik skemmtilegan. Það er engin ein leið rétt í fótbolta,“
segir Arnar Grétarsson.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
DUBLIN flug f rá
WOW hei l sársflug f rá jún í 2015!
12.999 kr.
18 viðtal Helgin 9.-11. janúar 2015