Fréttatíminn


Fréttatíminn - 09.01.2015, Síða 4

Fréttatíminn - 09.01.2015, Síða 4
Túrmalín, silfur og gull veður Föstudagur laugardagur sunnudagur Éljagangur eða snjókoma s- og V-lands, en þurrt og kólnandi na-til. HöfuðborgarsVæðið: Snjókoma um tíma, einkum framan af degi. Víðast Hægur Vindur. Él eða snjókoma. aðeins á stöku stað. HöfuðborgarsVæðið: Smáél og Síðar úrkomulauSt. kólnandi. snjóar um sunannVert landið, en síður n-til. Vaxandi a-Vindur. HöfuðborgarsVæðið: meira og minna Snjókoma eða éljagangur. snjóar sunnan- og vestantil um helgina um þetta leyti árs er hávetur á norðurhveli jarðar og lægðirnar verða að hálfgerðum tröllskessum eins og við höfum séð að undanförnu. Þó flokkast hún til smá- lægðar sú sem spáð er á föstudag undan SV-landi og með snjókomu. aðgerðarlítið veður á laugardag og kólnar nokkuð. norður- og austurland sleppa að mestu við ofankomu að sinni, en nýr snjókomubakki kemur úr suðri á sunnudag ef marka má spár. -1 -2 -5 -6 -1 -5 -3 -9 -10 -5 -3 -6 -11 -13 -4 einar sveinbjörnsson vedurvaktin@vedurvaktin.is  vikan sem var samið í læknadeilu Skrifað var undir kjarasamning lækna á Landspítalanum aðfaranótt miðvikudags. Skurðlæknar fylgdu svo í kjölfarið sólarhring síðar. alls var 586 aðgerðum á Land spít­ al an um frestað vegna verk fallsaðgerða lækna og skurðlækna síðan 27. októ ber. auk þess er áætlað að 786 aðgerðir hafi fallið niður vegna verk falls ins. Aukin velta á fasteignamarkaði Heildarveltan á íslenska fasteigna- markaðinum á síðasta ári var nærri 300 milljarðar króna, en árið á undan var veltan 250 milljarðar. Þinglýstir kaupsamningar voru um 9.400 og fjölgaði um nærri 700 á árinu. Númerið hjá Saffran? Hátt í 100 milljónir síðuflettinga eru framkvæmdar á já.is árlega. 230 þúsund stakar heimsóknir eru á vefinn í hverri viku. Meðal vinsæl- ustu leitarorða á síðunni voru 365, domus medica, lyfja og Heilsugæslan. Já­appið nýtur sömuleiðis mikilla vinsælda. mest er hringt í veitingastað- inn Saffran úr appinu. Notendur sækja sér vegvísun úr appinu á staði á borð við dýragarðinn í Slakka, kringluna og Bogfimisetrið. 37.000 manns hafa staðfest höfuðstólslækkun húsnæðislána. Það eru um 43% af þeim 86 þúsund sem fengu samþykkta umsókn sína. Sviptingar á fjölmiðlamarkaði Þórunn elísabet Bogadóttir hefur verið ráðin aðstoðarritstjóri Kjarnans. Hún starfaði síðast á Viðskiptablaðinu en lauk nýverið meistaranámi í alþjóð- legum og evrópskum stjórnmálum frá edingborgarháskóla. Þórunn er dóttir hins kunna fréttamanns Boga Ágústs- sonar. Þá hafa nokkrir fyrrum starfsmenn dV stofnað fjölmiðilinn Stundina og í vikunni náðust áform um fimm milljón króna fjármögnun í gegnum karol- ina fund. v ið erum að skoða þetta mál. Mögulega er ekkert sem stendur tæknilega í vegi fyrir því að þetta sé fyrirkomulagið en mín tilfinning er sú að líklega væri betra að útfæra þetta öðruvísi,“ segir Þór- gnýr Thoroddsen, formaður Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur, um fyrirkomulag dósa- og jólatrjáasöfn- unar ungmenna í íþróttafélaginu Val. „Mögulega er þarna verið að mismuna börnum eftir stöðu og efnahag foreldra,“ segir hann. Foreldrar barna- og ungmenna í Val fengu nýverið bréf vegna söfnunarinnar. Þar segir að ágóðinn af söfn- uninni renni til barnanna eftir ákveðnu punktakerfi. Þannig fáist 1 punktur fyrir mætingu barns, 1 punktur fyrir hvert foreldri sem mætir í flokkun og/eða á bíl. „Fyrir bíl sem lagt er til við söfnun fæst ½ punktur og ½ punktur fyrir kerru. Þannig fær barn sem mætir með báða foreldra (eða forráðamenn) og annað þeirra er á bíl með kerru en hitt vinnur við flokkun, 4 punkta. Á hinum skalanum ef barn mættir aðeins eitt, fæst aðeins 1 punktur,“ segir í bréfinu. Ólafur Örn Ólafsson, foreldri unglings í Val, gerir málið að umtalsefni á Facebo- ok-síðu sinni þar sem hann segir: „Börn sem eiga bara eitt foreldri sem aðhyllist bíl- lausan lífsstíl, nú eða hefur ekki ráð á að reka bíl getur aldrei haft jafn mikið upp úr krafsinu og börnin sem koma frá lánsamari heimilum sem eiga nógu stóran bíl til að geta dregið kerru og bæði foreldri búa á.“ Fjöldi fólks hefur tekið þátt í umræðu um málið og eru skiptar skoðanir um ágæti þessa fyrirkomulags. Þá bendir formaður ÍTR á að sumir kjósi bíllausan lífsstíl og þeir hafi því ekki möguleika á að safna fleiri punktum fyrir söfnun barnanna sinna. Söfnunin er skipu- lögð af Fálkum, félagi feðra sem vinna að því í sjálfboða- vinnu að styrkja barna- og ung- lingastarf Vals. Formað- ur félags- ins, Benóný Valur Jakobsson, segir þetta fyrir- komulag hafa verið við lýði undanfarin fjögur ár og segist ekki hafa fengið athugasemdir við það. „Þetta snýst allt um vinnuframlag,“ segir hann og spurður hvort þarna sé um mismun- un að ræða vegna stöðu og efnahag foreldra spurði hann á móti: „Væri það ekki mis- munun að þeir sem mæta með sex vinnandi hendur, bíl, kerru og útlagðan bensínkostnað fengju jafn mikið og þeir sem mæta einir?“ Benóný bendir á að jólatjáasöfnunin væri ekki möguleg nema til kæmu foreldrar á bíl með kerru. „Þetta væri ekki hægt öðru- vísi. Eitt barn og eitt for- eldri fá minna en eitt barn með tvö foreldri og bíl en það er algjörlega í sam- ræmi við vinnu- framlag,“ segir hann.  Félagsmál Félag Feðra barna í val skipuleggja söFnun Börnin fá borgað eftir vinnuframlagi foreldra íþrótta- og tómstundaráð reykjavíkur hefur til skoðunar fyrirkomulag jólatrjáa- og dósasöfnunar ungmenna í íþróttafélaginu Val. Söfnunin er skipulögð af feðrafélagi barna­ og unglinga í Val og fá ungmennin greitt eftir því hvort annað eða bæði foreldri mæta, og meira ef foreldri mætir á bíl með kerru. formaður ítr segir að mögulega sé verið að mismuna börnum eftir stöðu og efna- hag foreldra. Þórgnýr thoroddsen, formaður íþrótta- og tómstundaráðs reykjavíkur. Barn sem mætir með báða foreldra í söfnunina þar sem annað þeirra er á bíl með kerru en hitt vinnur við flokkun fær 4 punkta. Barn sem mætir einsamalt fær 1 punkt. erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is 4 fréttir Helgin 9.­11. janúar 2015
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.