Fréttatíminn - 09.01.2015, Qupperneq 26
26 fjölskyldan Helgin 9.-11. janúar 2015
Samvera með börnum eftir skilnað eða sambandsslit
Ó hætt er að fullyrða að aðal áhyggjuefni foreldra við skilnað og sambands-slit snúa að börnum þeirra. Hvernig megi lágmarka áhrif skilnaðarins á líðan barnanna er þeim ofarlega í huga. Góð samskipti foreldra og regluleg samvera
foreldra og barna skiptir þar öllu máli. Í sumum tilvikum verða samskiptin hinsvegar
mjög lítil, jafnvel engin um lengri tíma. Óútskýrð fjarvera foreldra veldur börnum sorg
og þau upplifa höfnun. Að auki hafa þau tilhneigingu til að kenna sér um hluti sem þau
hafa ekkert með að gera eins og skilnað eða drykkju foreldra og því hætta á að bagginn
verði enn þungbærari fái þau ekki viðunandi skýringu á framferðinu.
Ýmsar ástæður eru fyrir því að foreldri hverfi, til lengri eða skemmri tíma úr lífi
barns. Í sumum tilvikum er ástæðan erfið samskipti foreldra sem verður til þess að ann-
að foreldrið gefst upp. Oftast er það faðirinn sem gefst upp á að reyna að vera í sam-
bandi við barnið sökum erfiðrar hegðunar móður eða það er móðirin sem gefst upp
á að reyna fá föður til að sinna barni sínu. Hvort heldur sem er, er það barnið sem
tapar. Í deilum er auðvelt að kenna hinum aðilanum um hvernig málum er háttað og
telja sér trú um að það sé aðeins hann sem þarf að breytast en ekki maður sjálfur,
eigi að bæta samskiptin. Sjálfsagt á það við í einhverjum tilvikum, en oft er það nú
svo að báðir aðilar eiga sinn þátt. Endalaust nudd um að foreldrið sé ekki að standa
sig, þöggun eða sýna yfirlæti og hroka, að standa ekki við það sem lofað er eða leyfa
hinum aðilanum aldrei að njóta vafans er allt hegðun sem er í valdi hvers og eins að
takast á við hjá sjálfum sér og hefur ekkert með hinn aðilann að gera. Við berum
ábyrgð á okkar eigin framkomu.
Fleiri ástæður geta að sjálfsögðu legið að baki fjarveru foreldris eins og alvarlegir
geðrænir erfiðleikar, misnotkun áfengis, fíkniefnanotkun eða fangelsisvist. Hver
svo sem ástæðan er þurfa börn viðeigandi skýringu á fjarveru og eða erfiðri hegðun
foreldris. Börn skilja oft meira en fullorðnir gera sér grein fyrir. Þó foreldri hafi ekki
tök á vera í reglulegum samskiptum við börn sín er ekki ástæða til að sleppa þeim
alveg. Hægt er að sýna barni ást og umhyggju á margvíslegan máta. Að eiga stutta
stund á kaffihúsi með foreldri eða heima hjá ættingjum skiptir barn máli sé ekki
annað mögulegt að sinni. Foreldri getur hringt eða lesið bækur inn á disk eða sent
slóð sem spila má fyrir háttinn, póstkort og tölvupóstur duga líka vel. Nú, svo mega
börn líka heimsækja foreldra á sjúkrahús og í fangelsi að ákveðnum reglum uppfylltum.
Það er aldrei of seint að bæta samskipti eða taka upp þráðinn, hafi hann slitnað. Í
þeim tilvikum sem foreldrar hafa glatað trausti barna sinna og hins foreldrisins, t.d.
vegna áfengisneyslu eða neyslu vímuefna er mikilvægt að sýna því skilning að það geti
tekið tíma að byggja upp traust að nýju og stundum þarf hjálp utanaðkomandi aðila.
Sé hægt að vera í beinu sambandið við geimstöðvar á tunglinu og fá reglulega myndir
frá Mars, ætti að vera hægt að finna leið til að láta barn vita að mamma eða pabbi elski
það og það skipti máli, jafnvel þó svo foreldrið hafi ekki tök á að hitta það í eigin pers-
ónu. Ert þú búin/n að láta heyra í þér?
Góð samskipti foreldra og regluleg samvera foreldra
og barna skiptir þar öllu máli.
Hefur þú heyrt í barninu þínu?
Valgerður
Halldórs-
dóttir
félagsráðgjafi
og kennari
heimur barna
Það er aldrei
of seint að
bæta samskipti
eða taka upp
þráðinn, hafi
hann slitnað.
Börn þurfa að hreyfa sig
Eftir mikil hátíðahöld er fullorðna fólkið
með hugann við ræktina svo það er ekki
úr vegi að minna það á hversu mikilvæg
dagleg hreyfing er börnum jafnt sem
fullorðnum. Það er til mikils að vinna
því hreyfing barna skapar tækifæri til að
þjálfa hreyfifærni, bæta líkamshreysti,
eignast vini, auka félagslega færni og efla
sjálfstraust. Hreyfing er börnum nauð-
synleg fyrir eðlilegan vöxt, þroska og
andlega vellíðan.
Mikilvægt er að kyrrseta barna sé tak-
mörkuð og venjulega er talað um að það
sé börnum hollast að hreyfa sig rösklega í
minnst 60 mínútur daglega. Börn eru jafn
misjöfn og þau eru mörg en þau sem eru
frekar róleg í tíðinni ættu að fá hvatningu
frá foreldrum til að hreyfa sig. Á vef land-
læknisembættisins er að finna mörg góð
ráð varðandi hreyfingu barna. Þar eru
foreldrar hvattir til að takmarka kyrrsetu
barna sinna með því að minnka notkun
tölvuleikja og takmarka sjónvarpsáhorf
og hvetja þess í stað barnið til frjálsra
leikja og mögulega til þátttöku í skipu-
lögðu tómstundastarfi sem felur í sér
hreyfingu.
Ein besta leiðin til að auka hreyfingu í
daglegu lífi, barna jafnt sem fullorðinna,
er að nota eigin orku til að ferðast á milli
staða en svo er sund eða skíði góð hreyf-
ing sem fjölskyldan getur stundað og átt
saman tíma sem er annar mikilvægur
þáttur í að efla heilsu barna.
DÜSSELDORF flug f rá
14.999 kr.
F l júgðu með f rá jún í t i l ágúst – fyrst og fre
mst
– fyrst og fre
mst
ódýr!
Blandaðu í kassann 24 stk. af þínum uppáhalds bragðtegundum!
3299kr.kassinn
Verð áður 4416 kr. kass
inn
Hámark próteindrykkur
með súkkulaði-,
jarðarberja- eða kaffi-
og karamellubragði,
24x250 ml
25%afsláttur Meðan birgðir endast!
Laugavegi 53 Sími 552 3737 opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17
Iana Reykjavík
Haust/Vetur 2014 ÚTSALAN
er han
40-50%
afsláttur