Fréttatíminn


Fréttatíminn - 09.01.2015, Síða 40

Fréttatíminn - 09.01.2015, Síða 40
námskeið Helgin 9.-11. janúar 201540 Menntaáætlun Nordplus Auglýst eftir styrkumsóknum til menntasamvinnu á Norðurlöndum og Eystrarsaltslöndum Nordplus, menntaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar, býður kennurum og öðrum sem starfa við menntamál að sækja um styrki til samstarfs og þróunar í menntamálum. Heildarupphæð styrkja til úthlutunar á árinu 2015 er um 9 miljónir evra, eða tæplega 1,4 milljarður íslenskra króna. Umsóknarfrestur er til 2. mars 2015 Umsóknir eru opnar öllum þeim sem vinna að kennslu eða menntamálum og styrkir eru veittir til ýmis konar námsheimsókna, samstarfsverkefna og samstarfsneta. Farið er fram á samstarf á milli menntastofnanna og/eða annarra þátttakenda í Danmörku, Finnlandi, Færeyjum, Grænlandi, Íslandi, Lettlandi, Litháen, Noregi, Svíþjóð eða Álandseyjum. Nánari upplýsingar á www.nordplus.is H N O T S K Ó G U R g ra fí sk h ön nu n Nemum í alþjóðlegum fagháskólum gefst einstakt tækifæri til að kynnast suðupotti hugmynda, með stefnum og straumum víða að úr heiminum. Nám erlendis opnar einnig möguleika á að hitta „rétta“ fólkið og komast áfram á alþjóðlegum markaði. LYON flug f rá F l júgðu með f rá jún í t i l ágúst 24.999 kr. E gils saga varð fyrir valinu vegna þess að hún er vel þekkt, áhugaverð og hent- aði nýjum kennarahópi vel,“ segir Ármann, en hann segir jafnframt að Egill Skalla-Grímsson hafi mjög höfðað til Íslendinga alla tíð eins og rækilega verður fjallað um í nám- skeiðinu. Námskeiðið er staðarnám- skeið eingöngu og hægt er að taka við allt að 300 nemendum. „Nám- skeiðið er ætlað alls konar fólki, bæði kennurum, leiðsögumönnum, listamönnum, bókavörðum, þeim sem vinna við söfn og öðrum sem vinna með íslenskan menningararf en einnig öllum almenningi,“ segir Ármann. Endurmenntunarstofnun hefur staðið fyrir menningarnám- skeiðum um Íslendingasögur og aðrar miðaldabókmenntir í hartnær 30 ár. Í þetta sinn er viðfangsefnið Egils saga sem áður hefur verið kennd en fyrir alllöngu. Ármann Jakobsson, prófessor í íslenskum bók- menntum fyrri alda, sér um kennslu. Námskeið um Egils sögu á vegum Endurmenntunar HÍ nýtur mikilli vinsælda Ármann Jakobsson tekur við keflinu af Magnúsi Jónssyni og kennir nú námskeið í Íslendingasögum við Háskóla Íslands. Kafa djúpt í efnið Í Egils sögu er ekki aðeins rakin ævi aðalpersónunnar heldur eru sagðar sögur af fjölda áhugaverðra persóna og greint frá merkum við- burðum á borð við ofríki Haralds hárfagra, landnám Íslands og orust- una á Vínheiði. Ferðalög eru tíð og sögusviðið því fjölbreytt. Enn frem- ur er Egill talinn til stórskálda fyrri alda og sagan er rík af kveðskap. Markmið námskeiðsins er að kafa dýpra í meginpersónur og atburði sögunnar í því augnamiði að setja hana í víðara samhengi. Textinn verður skýrður, athygli vakin á ýms- um rannsóknum tengdum sögunni og reynt að varpa ljósi á viðfangs- efni sögunnar með ýmsum hætti. Dæmi um að fyrrverandi ráð- herrar sitji námskeiðið Námskeið af þessu tagi hafa notið mikilla vinsælda um árabil. Sumir sækja námskeiðið með skýrt mark- mið í huga en aðrir eru fyrst og fremst að sækja sér fróðleik og skemmtun. „Tímarnir á miðvikudags- morgnum hafa verið mjög vinsælir af eftirlaunafólki með margs konar bakgrunn og þar má meðal annars sjá lækna, verkfræðinga, kennara og fyrrverandi ráðherra,“ segir Ármann. Magnús Jónsson hefur annast þessi námskeið með stakri prýði í rúman áratug en vildi nú láta af störfum. „Ég tók við keflinu vegna þess að mér finnst mikilvægt að starfsmenn Háskóla Íslands taki þátt í miðlun fræðanna og það var auðvitað mikil áskorun að hitta fyrir svona stóran hóp í einu,“ segir Ármann. Námskeiðið hefst 20. janúar. Kennt er einu sinni í viku, á þriðju- dögum milli klukkan 19.30 og 21.30. Skráning fer fram á heima- síðu Endurmenntunar, www.endur- menntun.is. Ásamt Ármanni munu þær Kolfinna Jónatansdóttir og Þór- dís Edda Jóhannesdóttir, doktors- nemar í íslenskum bókmenntum, aðstoða við kennsluna.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.