Fréttatíminn


Fréttatíminn - 09.01.2015, Side 46

Fréttatíminn - 09.01.2015, Side 46
46 heimili Helgin 9.-11. janúar 2015 1. Fylgihlutir Með því að skipta út sturtu- hengi, setja nýja baðmottu eða handklæði er hægt að koma með nýja liti á bað- herbergið sem gera rýmið frísklegra. Sama er hægt að segja um tannburstaglös og litlar krukkur eða skálar undir smáhluti á baðherginu sem geta gert það huggulegra. 2. Þrífðu burt allan kísil Gott er að þrífa kísil sem gæti hafa safnast fyrir í bað- karinu, í sturtubotninum eða í vaskinum. Það er mikið úrval af góðum efnum sem vinna verkið vel og án þess að skaða umhverfið. Best er að þrífa kísilinn reglulega svo hann safnist ekki upp. Vel þrifið baðkar getur litið út eins og nýtt. 3. Pottaplöntur Plöntur geta fegrað og frískað upp á allt rými og er baðher- bergið engin undantekning. Fáðu ráðleggingar í blóma- verslun um hvaða plöntur henta best á baðherbergi. 4. Myndir og listaverk Sniðugt er að hengja upp myndir á baðherbergisveggina eða listaverk, en þau verða að þola raka. Landakort eða annað slíkt sem gaman er að skoða þegar setið er á kló- settinu henta vel. 5. Málning Einfaldasta leiðin til að fríska upp á herbergi er að mála það. Það eru engar reglur sem segja til um að baðherbergi eigi alltaf að vera hvít eða grá. Hægt er að gerbreyta veggjum, skápum og jafnvel flísum og baðkerum með nýrri málningu. Fimm atriði sem fríska upp á baðherbergið Baðherbergið er ekki endilega sá staður sem við eyðum löngum stundum, nema kannski þeir sem njóta þess að liggja lengi í baði. Það er þó engin ástæða til þess að vanrækja baðher- bergið. Hér eru nokkur góð ráð til að gera bað- herbergið huggulegra án þess þó að rífa allt út úr því og endurnýja. Húsgögnin máluð Málmur málaður Það er hægt að mála húsgögn úr málmi en fyrst þarf að bera grunnmálningu á málminn. Best er að leita ráða í málningarverslun um hvaða grunnur hentar best. Grunnur Það þarf ekki alltaf að grunna húsgögnin sem á að mála. Stundum er nóg að þrífa þau vel og pússa með sandpappír. Það er alltaf góð hugmynd að leita ráða hjá fagmanni í málningarverslun um hvort það þurfi að grunna. En það mikilvæg- asta við að mála húsgögn er að tryggja að málningin nái að festast og það sé ekkert sem valdi því að hún flagni. Sandpappír Góð tækni með sandpappírinn skiptir heilmiklu máli. Oftar en ekki er betra að verða sér úti um lítinn handhægan rafdrifinn slípara. Þá er hægt að leigja hjá byggingarvöruverslunum. Hinsvegar ef húsgögnin eru með slétt yfirborð þá getur verið nóg að nota bara hendurnar til að slípa með sandpappír. Aðalmálið er að fara jafnt og vel yfir allan flötinn og ná vel í öll horn til að ná gamalli málningu eða lakki af. Ekki má þó slípa of mikið og fletta meira en efsta laginu af viðnum. Vandvirkni Til að ná sem bestum árangri er mikil- vægt að vera vandvirkur og nákvæmur og fjarlæga til dæmis höldur og annað sem skrúfað er fast við húsgögnin og mála undir þær. Þetta eru svæði sem verða fyrir mestu hnjaski og því líklegt að málningin geti flagnað af. Það kostar smá aukavinnu og tíma en er vel þess virði. Málning Að finna réttu málninguna er mikilvægt en það þarf ekki endilega að þýða að dýrasta málningin sé sú besta. Ágætt er að fá prufur og mála lítinn hluta til að sjá útkomuna. Um leið of rétta málningin er fundin er hægt að blanda hana í hvaða lit sem er. Ágætt að hafa í huga hvort það þurfi að vera auðvelt að þrífa húsgagnið eða hvort það muni verða fyrir miklum ágangi. Bursti Góður bursti getur skipt sköpum því það getur eyðilagt áferðina þegar burstinn skilur eftir hár í málningunni. Góður bursti er dýrari en hann getur enst í mörg ár ef hann er skolaður vel og þrifinn eftir notkun. Þolinmæði Málningin þarf að þorna vel á milli um- ferða því skiptir máli að sýna þolinmæði. Þumalputtareglan er að láta 24 tíma líða á milli umferða en því meiri tími sem líður því betra. Ef málningin er ekki alveg þurr áður en hafist er handa við næstu umferð getur hún flagnað af. Gleði Mestu skiptir að hafa gaman af verk- efninu og leika sér með liti. Það er alveg víst að útkoman er misjöfn og óttinn við að gera mistök ætti ekki að stoppa neinn. Gömul húsgögn sem eru á leiðinni á haugana geta reynst mesta gersemi og það eina sem til þarf er ný yfirferð af málningu til að gefa þeim nýtt líf. Hvort sem málað er með einum lit eða fleirum þá eru góður undirbúningur lykillinn að góðum árangri. Hér eru nokkur ráð um hvernig á að gefa gömlum húsmunum nýtt líf með málningu. 10-70% afsláttur af völdum vörum Barskápar Glerskápar Skenkar Speglar Sófaborð Bókahillur Púðar Sófasett Tungusófar Hornsófar Stakir sófar Borðstofuborð Sjónvarpsskápar Fjarstýringavasar Sjónvarpsskápur Salsa Stól á hjólum Meubar Verð áður 44.900 kr. 15.900 kr. *Verð á dýnu Verð með botni 99.000 kr. 69.900 kr. Dýnustærð 193x200 Barnarúm stærð 106x213 Verð 221.900 kr. 155.330 kr. Skenkur 216,5x55x84 cm Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is Opið virka daga kl. 10-18 laugard. 11-16 ÚTSALA Þú sparar 34.900 kr. 5.000 kr. *Verð án dýnu Verð áður 284.900 kr. 139.900 kr. Verð áður 83.900 kr. 7.500 kr.frá Verð áður 40.900 kr. 19.900 kr. frá Borð

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.