Fréttatíminn


Fréttatíminn - 09.01.2015, Side 56

Fréttatíminn - 09.01.2015, Side 56
 Í takt við tÍmann arnar Freyr Frostason Dáist að kynþokkafullri dulúð Mads Mikkelsens Arnar Freyr Frostason er 26 ára Sauðkrækingur og rappari í hljómsveitinni Úlfur Úlfur. Hann er auk þess nemi á lokaári í viðskiptafræði í HÍ. Úlfur Úlfur sendir frá sér aðra plötu sína á næstunni en þangað til reynir Arnar að þyngja sig með lyftingum og hafragrautsáti. Staðalbúnaður Ég bind mig ekki við nein merki eða búðir þegar ég kaupi föt, ég reyni bara að ganga í einhverju sem mér finnst nett. Þeir hlutir koma alls staðar að. Og litrófið er allt frá hvítu yfir í grátt og yfir í svart. Hugbúnaður Ég reyni að mæta í World Class 4-5 sinnum í viku og svo æfi ég körfubolta einu sinni í viku með félögum mínum. Vonandi fer draumurinn um að við keppum í utandeildinni að rætast, ég held að við séum tilbúnir. Ég djamma minna í bænum nú en áður en þegar ég fer í bæ- inn fer ég á Prikið og Dollý. Þar eru vinir mínir og allir sem mér þykir vænt um. Á barnum panta ég mér bjór, helst sem dekkstan og þykkastan. Ég horfi á gam- anþætti eins og 30 Rock, Always Sunny og Workaholics og svo var ég að byrja að horfa á Hannibal með kærustunni. Mads Mikkelsen er náttúrlega fallegasti maður á plánetunni, það er kynþokkafull dulúð yfir honum. Litla leyndarmálið mitt er svo hvað ég horfi mikið á teiknimyndir, ég gæti talað í allan dag um þær en við skulum sleppa því í þessu viðtali. Vélbúnaður Ég á bæði iPhone og Macbook Air. Ég á í haltu mér-slepptu mér sambandi við sam- skiptamiðla. Ég er þarna, á Facebook, In- stagram og Snapchat, en það eina sem ég fíla í botn þessa dagana er Twitter. Ég hef gaman af að dunda mér við að lesa eitt- hvað sniðugt sem fólk skrifar þar. Aukabúnaður Ég er fínn kokkur. Það var eitt það fyrsta sem ég tamdi mér þegar ég flutti að heiman, að elda sjálfur. Ég hef bæði gam- an af því að elda og svo er ákveðið hag- ræði að kaupa ekki skyndibita of oft. Ég geri alveg geggjaðan hafragraut. Þetta er „unreal“ hafragrautur, eins asnalega og það hljómar. Hann er soðinn upp úr möndlumjólk, og er með rosalegu hnetu- smjöri og stöppuðum banana. Grautur- inn hentar mér vel því ég er að reyna að þyngja mig, ég vil lyfta þungu og vera feitur og sterkur. Ég keyri um á Peugeot 206, 99 árgerð. Hann er rosalega ljótur en kemur mér oftast frá a til ö. Þegar ég útskrifast vonast ég samt til að geta keyrt hann fram af klettum og keypt mér nýjan og flottan bíl. Lj ós m yn d/ H ar i Norski spennusagna- höfundurinn Jo Nesbø hefur skrifað tíu bækur um lögreglumanninn Harry Hole. Níunda bókin kemur út á íslensku í lok mánaðar- ins. Ljósmynd/NordicPho- tos/GettyImages  Bækur Löng Bið krimmaaðdáenda senn á enda Aðdáendur norska spennusagnahöfundarins Jo Nesbø hafa þurft að bíða lengi eftir nýrri bók eftir hann á íslensku. Tvö ár eru síðan Bryn- hjarta kom út hjá Uppheimum en það bóka- félag hefur lognast út af. Á þeim tíma hafa þrjár bækur um Harry Hole verið gefnar út um allan heim, tvær nýjar og önnur bókin í seríunni endurútgefin. Auk þess kom á síðasta ári út bókin Sonurinn, spennusaga þar sem Hole er víðs fjarri. Nú hefur Forlagið tryggt sér útgáfuréttinn að bókum Jo Nesbø og kemur fyrsta bókin út í lok þessa mánaðar. Hún kallast Afturgangan, Gen- gångare á frummálinu og Phantom upp á ensku. Þetta er níunda bókin um Harry Hole en í henni hefur söguhetjan komið sér fyrir í Hong Kong og gefið upp á bátinn starf sitt sem lögreglumaður í Osló. Hann snýr aftur á heimaslóðir þegar Oleg, fyrrum fóstursonur hans, er handtekinn fyrir morð. Í hönd fer æsispennandi atburðarás þar sem Harry reynir að leysa morðgát- una um leið og hann kynnist nýjum veruleika í eiturlyfjaheimi Osló. Bækur Jo Nesbø hafa notið mikilla vinsælda hér á landi og um heim allan. Alls hafa yfir 23 milljónir eintaka af bókum hans selst í heim- inum og þær hafa verið þýddar á yfir 40 tungu- mál. „Við bindum að sjálfsögðu vonir við þetta enda hann í gríðarmiklum metum hjá íslensk- um lesendum,“ segir Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Forlagsins, um þann feng að tryggja sér útgáfuréttinn að bókum Nesbø. -hdm Jo Nesbø kemur aftur út á íslensku Rekstrarvörur til fjáröflunar – safnaðu peningum með sölu á fjáröflunarvörum frá RV FÓ TB O LT I BA D M IN TO N SU N D H A N D BO LT I KÖ RF UB O LT I Rekstrarvörur - vinna með þér Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665 sala@rv.is • www.rv.is RV 1113 Er æfingaferð, keppnisferð, útskriftarferð eða önnur kostnaðarsöm verkefni framundan? Síðustu 30 árin hafa félagar í íþróttafélögum, kórum og öðrum félagasamtökum aflað sér fjár á einfaldan hátt með sölu á WC pappír, eldhúsrúllum, þvottadufti og öðrum fjáröflunarvörum frá RV. 56 dægurmál Helgin 9.-11. janúar 2015

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.