Fréttatíminn


Fréttatíminn - 09.01.2015, Side 62

Fréttatíminn - 09.01.2015, Side 62
heilsa Helgin 9.-11. janúar 20152 Berocca® Performance inniheldur öll B vítamínin í ríkulegu magni en einnig C vítamín, magnesíum og zínk. Bættu frammistöðu þína með Berocca - rannsóknir hafa sýnt að það ber árangur. uPP á þitt Besta!ÞÚ Sykur lauSt 5 hollráð Júlíu sem bæta heilsuna: 1. Auktu vatnsinntöku. Ég veit þetta hollráð gæti hljómað eins og biluð plata því þú hefur líklega heyrt það svo oft, en sannleikurinn er sá að vatn er eitt það nauðsynlegasta sem við getum gefið líkama okkar þar sem það flytur næringu milli líffæra og styður við losun eiturefna. Byrjaðu á að drekka 1-2 stór vatnsglös strax á morgnana og alveg upp í 2 lítra af vatni yfir daginn. 2. Bættu við meira af ávöxtum og grænmeti. Epli, jarðarber, bananar, sætar kartöflur eða rófur eru góð dæmi um fæðu sem getur hjálpað við að minnka sykur- þörf eftir hátíðirnar þar sem þessar fæðutegundir hafa náttúrulega sætu og trefjar. Að fá þér ávexti og grænmeti sem millimál yfir daginn er góð byrjun á heilsusamlegra mataræði. 3. Taktu inn magnesíum. Magnesíumskortur getur leitt til sykurlöngunar. Svo er magnesíum mjög hreinsandi fyrir líkamann og nauðsynlegt fyrir taugastarfsemi og vellíðan. Hægt er að taka inn magnesíum t.d. í duftformi til að blanda við vatn. Gott að drekka að kvöldi til. 4. Bættu við hollri fitu. Holl fita er nauðsynleg fyrir þyngdartap og eðlilega starfsemi hormóna og orku. Holl fita rík af omega fitusýrum hjálpar til við að halda blóðsykursjafnvægi í líkam- anum og eykur seddu. Gott getur verið að auka holla fitu í mataræði t.d. með því að bæta við avókadó eða kókosolíu út í boozt drykkinn(uppskriftin hér að neðan inniheldur einmitt avókadó). 5. Hreinsaðu sykur algerlega úr líkamanum. Sykur er ávanabindandi og tekur að meðaltali 2-3 vikur að hreinsast úr líkam- anum! Hvort sem þú vilt taka sykur alveg út eða treystir þér aðeins að taka hann út að hluta geturðu byrjað á að bæta við einni sykurlausri uppskrift á dag sem hjálpar þér að slá á sykurlöngun.  Heilsa sykur er ávanabindandi og skaðlegur Heilsunni Sykurlaus nýársáskorun Júlía Magnúsdóttir heilsumarkþjálfi segir Íslendinga neyta gríðarlegs magns af sykri og stendur hún fyrir sykurlausri áskorun sem hefst 19. janúar. Rannsóknir sýna að sykur er enn skaðlegri en áður var talið og sumir sem jafnvel upplifa hann jafn ávanabindandi og fíkniefni. e f stefna þín fyrir 2015 er að léttast, auka orkuna eða bæta þol og kraft, þá er stórt skref í rétta átt að minnka sykur“, segir Júlía Magnúsdóttir, heilsumark- þjálfi og næringar-og lífsstílsráð- gjafi Lifðu til fulls. „Íslendingar eru einna mestu neytendur sykurs meðal Norðurlandabúa og koma rétt á eftir Bandaríkjamönnum þegar kemur að sykurneyslu. Það þarf vart að minn- ast á skaðsemi sykurs en viðbættur sykur orsakar til dæmis fitumyndum og hefur skaðleg áhrif á skammtíma og langtíma heilsu okkar,“ segir hún. Júlía heldur nú 21 dags sykurleysis áskorun þar sem hún gefur fríar upp- skriftir, innkaupalista og hollráð fyr- ir sykurlausan lífsstíl. Áskorunin er ókeypis, hefst 19. janúar og eru yfir 9000 Íslendingar búsettir hérlendis og erlendis þegar skráðir. Skráning í áskorunina fer fram á www.lifdutil- fulls.is en hér deilir hún nokkrum hollráðum og uppskrift af sykurlaus- um boozt. Júlía Magnúsdóttir, stofnandi Lifðu til fulls, segir að margar konur sem hún vinnur með sem heilsumarkþjálfi tali um að þeim finnist erfitt að halda sig frá sykri. Dásamlegur og sykurlaus – boozt Uppskrift fyrir 2 1/2 avókadó 1/2 banani 2 tsk acai duft 4 handfylli af spínati* Handfylli kakónibbur eða hrátt lífrænt kakó 3 msk hreinar kasjúhnetur 4 dropar stevia 1 bolli bláber 1 1/2 bolli kalt vatn og nokkrir klakar *Fyrir þá sem eru með vanvirkan skjald- kirtil; notið lambhagasalat í stað spínats. Blandið öllu saman þangað til booztinn verður mjúkur og kekkjalaus og njótið strax. Önnur skemmtileg leið að njóta booztsins er í skál með skeið og þá toppaður með ferskum berjum og/eða uppáhalds múslíinu þínu (gott er þá að hafa hann í þykkari kantinum). Boozt með avókadó, bláberjum og spínati.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.