Fréttatíminn


Fréttatíminn - 09.01.2015, Síða 68

Fréttatíminn - 09.01.2015, Síða 68
Helgin 9.-11. janúar 20158 S ú staðreynd að hreyfing bæti lífið eru engar nýjar fréttir árið 2015. Fyrsti mánuður ársins 2015 er genginn í garð og hafa eflaust margir sett sé ný mark- mið fyrir árið. Ég gerði það en aðal- markmiðið er að allt sem ég geri á að vera gaman og ég ætla að njóta þess. Allir vita að hreyfing er góð og að stóllinn drepur. Líkamsræktar- stöðvarnar eru um það bil að fyll- ast og ákafinn skín úr hverju and- liti. Það strengdu örugglega margir nýársheit um ára- mót og ætla sér að taka ábyrgð á eig- in heilsu og gera eitthvað gott fyrir líkama og sál. En það eru ekki allir sem geta stígið út fyrir þæginda- hringinn og bætt hreyfingu inn í líf sitt. Fyrir því eru margar ástæður; ekki tími, lítil börn á heimili, mikil vinna og hreinlega of stuttur sólar- hringur. Ég þekki sjálf dæmi um fyrirmyndar fólk sem hefur keyrt heilsu sína á bólakaf vegna „tíma- skorts“ eða rangrar forgangs- röðunnar. En þetta þarf ekki að vera flókið eða gerast í átaki eða einhverskonar áhlaupi. Hreyfing á að vera skemmtileg og jafnvel notaleg. Fyrir margar mömmur er hreyfistundin hvíld þar sem batt- eríin eru endurhlaðin. Hver vill ekki eiga mömmu sem er stútfull af orku og gleði eftir gönguferð eða jógatíma? Sú staðreynd að meðalaldur sjúklinga sem eru í endurhæfingu á Reykjalundi er 48 ár segir okkur að það tekur ekki langan tíma að rústa einum líkama en endurhæf- ingin getur tekið óralangan tíma. Þetta er fólk á besta aldri sem hefur lent í slysi eða áfalli eða bara gleymt sér og þá fer sem fer. Þess vegna er talað um hreyfingu sem forvarnir og forvarnir eru fyrirhyggjusemi. Við erum að verja okkur fyrir veik- indum, bæði andlegum og líkam- legum. Líkamann á hreyfingu árið 2015 Kolbrún G. Þorsteinsdóttir lýðheilsufræð- ingur Fyrir þá sem eiga erfitt með að koma sé af stað þá eru hér nokkrar staðreyndir um hvað 30 mínútna gönguferð daglega gerir líkamanum gott: Heilinn: Minnkar hættuna á að fá heila- blóðfall. Minnið: Bætir minni og styrkir heilann. Skapið: Hálftíma gönguferð á dag getur komið í veg fyrir þunglyndi og kvíða. Heilsan: 30 mínútna gönguferð á dag getur komið í veg fyrir sykursýki. Langlífi: Bætir a.m.k tveimur góðum árum við lífið. Þyngdin: Kemur í veg fyrir ofþyngd og offitu. Hjartað: Minnkar hættuna á hjartasjúk- dómum. Beinin: 30 mínútna gönguferð á dag kemur í veg fyrir beinþynningu og mja- ðamavandamál. Þetta er ekki spurning, farðu í góða skó og farðu út að ganga með hundinn jafn- vel þótt þú eigir engan. O rðið yoga á rætur sínar að rekja til orðsins yuj úr sans-krít, en það þýðir meðal annars að sameina. Til eru margar gerðir af yoga og er engin þeirra réttari en önnur, þú einfaldlega finnur þá tegund sem hentar þér. Yogastöðin Yoga Shala er staðsett við Engjateig í Reykjavík. Stöðin var stofnuð af Ingibjörgu Stefáns- dóttur, yogakennara og leikara, árið 2005 og fagnar því 10 ára afmæli á þessu ári. „Við erum stolt af þess- um tímamótum. Við höfum stækkað og þroskast jafnt og þétt í takt við stöðina og fram undan eru nýir og spennandi tímar,“ segir Ingibjörg. Yoga í notalegu umhverfi Yoga Shala býður upp á hefðbundið Ashtanga vinyasa yoga frá Ashtanga Yoga Institute í Mysore á Indlandi, en Ingibjörg lærði einmitt þar hjá hinum þekkta Ashtanga yoga Gúrú Sri. K. Pattabhi Jois og er hún eini Íslendingurinn sem hefur lært hjá honum. Í Yoga Shala er einn- ig að finna fjölbreytilega tíma líkt og Yogaflæði, Yogastyrk og mjúkt flæði. Áhersla er lögð á að bjóða upp á notalegt og gefandi andrúmsloft í fallegu, hlýju umhverfi. Námskeið og opnir tímar Í Yoga Shala eru haldin ótal mörg námskeið. „Við erum ávallt með okk- ar vinsælu byrjendanámskeið í yoga. Þar er farið í helstu undirstöður As- htanga vinyasa yoga,“ segir Ingibjörg. Þetta námskeið er góður grunnur fyr- ir alla tíma hjá okkur. Kennt er tvisvar í viku, fjórar vikur í senn. Næstu nám- skeið hefjast 12. janúar og 20. janúar . Námskeiðin eru haldin í hverjum mánuði og meðan á þeim stendur er nemendum frjálst að mæta í alla opna tíma í Yoga Shala. Kennarar í Yoga Shala hafa sjálfir góða reynslu sem yogaiðkenndur. „Kennarahópurinn er alveg dásamlegur. Þau eru bæði búin að læra hjá mér hérna heima og úti. Ég hvet þau sérstaklega til að fara eitthvert út því það er svo margt hægt að læra í þessum fræðum. Síðan erum við svo lánsöm að fá til okkar er- lenda gestakennara í heimsókn reglu- lega,“ segir Ingibjörg. Yogaiðkun kvölds og morgna Aðspurð hvernig til standi að halda upp á 10 ára afmæli stöðvarinnar segir Ingibjörg að auka eigi fjöl- breytnina innan stöðvarinnar. „Við höfum til dæmis verið að bæta við tímum eins og fyrir 60 ára og eldri. Við bjóðum einnig upp á svokallaða mjúka tíma, en þeir henta vel þeim sem hafa glímt við veikindi eða lent í meiðslum.“ Um miðjan febrúar verð- ur svo boðið upp á framhaldsnám- skeið. „Það er tilvalið fyrir þá sem hafa lokið byrjendanámskeiði en vilja halda áfram í námskeiðsform- inu,“ segir Ingibjörg. Hún vill einnig vekja athygli á morguntímum sem eru í boði. „Við vitum að fólk flykkist í ræktina á morgnana og við viljum innleiða þetta hjá okkur. Fólk heldur að þetta séu svo rólegir tímar en það er ekki raunin. Þeir sem komast upp á lagið með að mæta á morgn- ana elska það. Yoga styrkur eru til dæmis tímar sem við bjóðum upp á að morgni dags og þar ætti fólk að svitna vel,“ segir Ingibjörg. Yoga Shala hyggst flytja sig um set á komandi misserum. „Það er nokkuð ljóst að núverandi húsnæði hentar ekki lengur undir starfsemi okkar,“ segir Ingibjörg. Nánari upp- lýsingar um starfsemi Yoga Shala og námskeiðin má finna á heimasíðu stöðvarinnar: www.yogashala.is og í síma 553 0203. Unnið í samstarfi við Yoga Shala Uppbyggjandi og jákvæð efling fyrir líkama og sál Yogastöðin Yoga Shala fagnar 10 ára afmæli „Shala er úr sanskrít og merkir staður og Yoga Shala merkir í raun staðinn þar sem þú iðkar þitt yoga,“ segir Ingibjörg Stefánsdóttir, eigandi og stofnandi Yoga Shala. Mynd Hari UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 897-2896 OG Á WWW.BAKLEIKFIMI.IS Auktu þol og styrk Fjörugir tímar undir leiðsögn sjúkraþjálfara. Mánudaga kl. 17.45 og miðvikudaga kl. 18.00 í Grensáslaug AQUA FITNESS Ultra Cranberry Trönuberjahylki – sterk blanda Fyrirbyggjandi gegn þvagfærasýkingu Inniheldur ekki C-vítamín 1 - 2 töflur á dag Fæst í apótekum TENNIS er skemmtileg hreyfing Nú er rétti tíminn til að panta fastan tíma í tennis. Eigum nokkra tíma lausa. Skemmtilegu byrjendanámskeiðin fyrir fullorðna eru að hefjast. Skráning og upplýsingar í síma 564 4030 eða á tennishollin.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.