Fréttatíminn


Fréttatíminn - 09.01.2015, Blaðsíða 71

Fréttatíminn - 09.01.2015, Blaðsíða 71
heilsaHelgin 9.-11. janúar 2015 11 Ég er stöðugt að re yna að forðast öll a ukaefni í því sem ég læt of an í mig. Terranova uppfyllir þau skilyrði og got t betur. Þau eru ek ki einungis laus við öll bindi- o g fylliefni heldur inn ihalda þau líka lífrænar fr ostþurrkaðar plönt ur og lækningajurtir sem auka virknina og t ryggja góða upptöku. Ég nota sjálf og mæ li eindregið með Terranova. Hrönn H. Probiotic Complex Ég tek alltaf inn góða gerla en góð melting og heilbrigður ristill er undirstaða þess að okkur líði vel á líkama og sál og að við séum heilsuhraust. Terranova stendur fyrir gæði, hreinleika og hámarks virkni. Inniheldur engin fylliefni, bindiefni eða önnur aukaefni. Terranova bætiefnin sem virka. Heilsumarkþjálfi Avena Sativa & Tart Cherry Það er ekkert sem kemur í staðin fyrir góðan svefn og þar sem ég á það til að sofa mjög laust er magnað að geta notað svona náttúruafurð til að ná betri svefni. Hér eru á ferðinni græn hafrafræ og kirsuberjavínsteinn sem hefur góð áhrif á taugakerfið og inniheldur náttúrulegt melatónín. Full Spectrum Multivitamin Það er mælt með því að við tökum eina fjölvítamín daglega og því tek ég Multivitamin full spectrum. Þar má finna öll þau vítamín og steinefni sem við þurfum á að halda ásamt ýmsum kraftmiklum jurtum. Calsium Magnesium Complex Magnesíum hef ég tekið inn í áraraðir og blandan frá Terranova er algjör snilld. Calsium Magnesium Complex er einstaklega vel samsett blanda sem hentar fullkomlega. Í henni er m.a. nettlulauf sem inniheldur öll réttu efnin til að auka upptökuna og þar á meðal er t.d. boron, zink, K og D vítamín. Þetta bætiefni inniheldur einnig klóelftingu sem eykur virknina enn frekar og svo engifer og alfaalfa til að auka upptökuna enn meir. TERRANOVA VÍTAMÍN HREINLEIKI-GÆÐI-VIRKNI Heilsuhúsið | Lifandi Markaður | Gló Fákafeni | Blómaval, Lyfja Smáralind | Lyfja Smáratorg | Lyfja Laugavegi | Lyfja Lágmúla | Lyfja Keflavík Nánar á facebook - Terranova Heilsa V olgt sítrónuvatn á fastandi maga virðist allra meina bót. Kolbrún Björnsdóttir grasalænir hefur drukkið sítrónu- vatn á morgnana í áratug og telur það ástæðuna fyrir því að hún fær aldrei kvef. Sítrónuvatnið hreinsar meltingarveginn, það hefur vírus- drepandi og bólgueyðandi áhrif. Kolbrún segist ráðleggja öllum sem til hennar leita að drekka sítrónu- vatn á morgnana til heilsubótar. „Það fyrsta sem ég fæ mér á morgnana er sítrónuvatn. Ég hef gert það í mörg ár,“ segir Kolbrún Björnsdóttir, grasalæknir og eig- andi Jurtaapóteksins. „Sítrónur innihalda mikið af virkum efnum og hafa marga heilnæma eigin- leika. Þær eru bakteríudrepandi, vírusdrepandi og bólgueyðandi. Ég ráðlegg öllum sem leita til mín að drekka sítrónuvatn á morgnana. Þetta gerir öllum gott,“ segir hún. Á hverjum morgni setur Kolbrún kalt vatn í bolla og blandar sam- an við það soðnu vatni þannig að vatnið sé volgt. Út í það bætir hún nýkreistum safa úr hálfri lífrænni sítrónu og drekkur. Þetta er það al- fyrsta sem hún gerir alla morgna og hefur gert reglulega í um áratug. „Þetta hreinsar algjörlega melting- arveginn eftir nóttina. Ég tel mér líka trú um að þetta sé ástæðan fyrir því að ég fæ aldrei kvef,“ segir hún. Kolbrún gerir síðan jógaæfing- ar, fer í bað og borðar um hálftíma eftir að drekka sítrónuvatnið en al- mennt er ráðlagt að bíða í minnst korter þar til matar er neytt. Mikil- vægt er að bursta tennurnar þar á eftir þar sem sítrónusafinn getur skemmt glerung tannanna. „Ég er komin upp í vana með að drekka þetta þannig að það snertir tenn- urnar lítið. Sumum finnst líka gott að drekka sítrónuvatnið með röri,“ segir Kolbrún. Hún leggur áherslu á að safi úr nýkreistum sítrónum sé það albesta. Sumum vex þó í augum að kreista sítrónusafa nývaknaðir á hverjum morgni. „Sumir vilja ekki það besta og þá er hægt að notast við það næstbesta. Yfirleitt er búið að bæta óæskilegum aukaefnum út í tilbúinn sítrónusafa en það er hægt að fá góðan sítrónusafa, til dæmis frá Sollu hjá Himneskt, sem hægt er að blanda út í vatn á morgnana. Ég mæli frekar með því að fólk noti góðan sítrónusafa úr flösku en að drekka þetta alls ekki,“ segir hún. Þar sem bragðið af sítrónu er súrt halda margir að neysla þeirra hafi súr áhrif á líkamann en í raun hef- ur sítróna basísk áhrif á blóðið. „Sí- trónuvatn minnkar þannig brjóst- Sítrónuvatn minnkar brjóstsviða. Sítrónuvatn alla morgna sviða og það hjálpar lifrinni að framleiða gall sem meltingin þarf á að halda,“ segir Kolbrún. Annað sem tengt er við reglulega neyslu á sítrónuvatni er sterkt ónæmis- kerfi, geislandi húð og góða skapið. „Lyktin af sítrónu er svo frískandi að maður verður eiginlega bara svolítið kátur að finna hana,“ segir hún. Kolbrún bendir á að í alfræði- orðabókum um lækningajurtir sé sérstaklega fjallað um sítrónur. „Þær hafa marga heilnæma eigin- leika. Appelsínum er ekki hampað á þennan hátt heldur eru sítrónur alveg sérstakar.“ Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Kolbrún Björnsdóttir, eigandi Jurta- apóteksins, hefur drukkið sítrónuvatn á fastandi maga í áratug og finnst það mikilvægur hluti af daglegu lífi til heilsubótar. Mynd/Hari Best er að nota nýkreistan safa úr líf- rænni sítrónu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.