Fréttatíminn - 13.02.2015, Page 42
42 matur & vín Helgin 13.-15. febrúar 2015
Reykjavik BaR Summit
Flottustu barir í heimi heimsækja Ísland
Reykjavik Bar Summit verður haldið í fyrsta sinn dagana 23.-26. febrúar næstkomandi og verður hér eftir árlegur við-
burður. Fimmtán barir frá Bandaríkjunum og Evrópu hafa boðað komu sína hingað til lands og munu tveir barþjónar
frá hverjum stað keppa sín í milli. Ási á Slippbarnum og hans fólk sér um skipulagningu viðburðarins. Fréttatíminn
kynnti sér hvaða barir senda fulltrúa hingað og hér kíkjum við á helming þeirra.
the Worship Street
Whistling Shop
Umtalaður staður í hinu
vinsæla Shoreditch-hverfi
í London. Þarna eru
menn ekki hræddir við
að gera tilraunir, drykkir
eru geymdir á tunnu og
hægt er að panta sér
drykk sem borinn er
fram í eggi. Auk frábærra
kokteila er gott úrval
af flottu gini, sum yfir
hundrað ára gömul.
Barþjónar: Jess Robert
Cheeseman og Thomas
James Aske.
www.whistlingshop.com
Broken
Shaker
Frábær kokteilbar á Free-
hand-hostelinu á Miami.
Einn af skemmtilegri
kokteilum á staðnum er
Mel’s Gibson. Í honum
er Bombay gin með
laukblönduðu Dolin Dry
vermút, rósmaríni og
Lemon Bitters.
Barþjónar: Randall Gertz
Perez og Gui Jaroschy.
www.Thefreehand.com/
venues/the-broken-
shaker
Ström
Kaupmannahöfn, Art
deco staður í Kaup-
mannahöfn sem Nilsson
bræðurnir eiga. Bar-
þjónar af Ström hafa
áður komið til landsins
og gerðu þeir þá kokteila
og voru með námskeið
á Slippbarnum. Þeir eru
tíðir gestir í virtustu
kokteilkeppnum heims.
Barþjónar: Mikael
Roland Nilsson og Jonas
Brandenborg Andersen.
www.strombar.dk
Candelaria
Þessi bar er falinn í
bakherbergi inn af litlum
skemmtilegum taco veit-
ingastað í París. Þarna er
boðið upp á kokteila sem
byggjast aðallega upp á
Mezcal og Tequila. Einn
flottasti staður Parísar
og er á listum yfir bestu
kokteilbari heims.
Barþjónar: Carlos Olivier
Madriz Ardila og Jenifer
Myriam Joséphe Foulard.
http://www.candelariap-
aris.com/
Corner
Club
Tveir margverðlaunaðir
barþjónar reka kokteil-
staðinn Corner Club í
Stokkhólmi en hann
þjónustar bæði Frantzen,
tveggja stjörnu Michelin-
stað, og Flying Elk. Þess
má til gamans geta að
Flying Elk mun taka yfir
eldhúsið á Slippbarnum á
Food & Fun.
Barþjónar: Johan Evers
og Oskar Karl Johansson.
www.cornerclub.s
Door 74
Bar í anda bannáranna í
Amsterdam, svokallaður
Speakeasy-bar, sem er
falinn vegfarendum. Sá
fyrsti sinnar tegundar
í Hollandi. Hefur verið
valinn á lista yfir flott-
ustu kokteilbari í heimi
mörg ár í röð. Bannað
er að tala í símann inni á
Door 74.
Barþjónar: Timo Arthur
Janse-de Vries og Tess
July Posthumus.
www.door-74.com
employees
Only
Einn af frægustu
kokteilbörum í heimi.
Stofnaður árið 2004 fyrir
fólk í barbransanum í
New York. Staðurinn var
viðfangsefni kvikmyndar-
innar Hey Bartender. Í
dag er staðurinn áfanga-
staður kokteil pílagríma
og er röð þar fyrir utan
áður en staðurinn opnar
alla daga ársins.
Barþjónar: Dev William
Johnson og Milos Zica.
www.employeesonlynyc.com