Fréttatíminn - 13.02.2015, Blaðsíða 48
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Miklu meira, en bara ódýrt
frá 1.495
Snjósköfur
margar gerðir
Dráttartóg,
ýmsar gerðir
Bensínbrúsar
Plast/Blikk
5, 10, 20L
Vasaljós og lugtir,
yfir 30 gerðirÍseyðir-spray á
hélaðar rúður
frá 125
frá 1.495
frá 495
Strekkibönd
Bílrúðusköfur
frábært úrval
Snjóskóflur
margar gerðir
frá 1.999
frá 1.495
Startkaplar
48 sprengidagur Helgin 13.-15. febrúar 2015
Sprengidagur
eða „skvetta
vatni dagur“?
S prengidagur er þriðjudagur í föstuinngangi fyrir lönguföstu, sjö vikum fyrir páska. Elsta heimild um íslenska heiti dagsins tengist matarveislu fyrir
föstuna og er að finna í íslensk-latnesku orðasafni Jóns
Ólafssonar Grunnvíkings frá því kringum 1735. Þar tal-
ar hann að vísu um sprengikvöld en ekki dag og vísar í
mikilfenglega átveislu með allskonar meðlæti. Líklegt er
að kjötátið sem tengist þessum degi eigi rætur að rekja
til kaþólskra siða, en fasta kaþólskra hefst daginn eftir
og þá borða þeir ekki kjöt fram að páskum.
Íslenska heitið, sprengidagur, er þekkt frá átjándu
öld. Það tengist sjálfsagt kappsfullu áti í huga margra en
líklegt er að sú hugmynd sé alþýðuskýring. Hitt er lík-
legra að nafnið beri að rekja til þeirrar kaþólsku venju að
skvetta vatni á kirkjugesti þennan dag. Dagar sem slíkur
siður fylgir heita á þýsku „Sprengtag“ og hefði það heiti
getað borist til Íslands með þýskum biskupum eða kaup-
mönnum á síðmiðöldum.
Saltkjötsveisla snæðingsins á sprengidag
Víkin – kaffihús er
ein besta geymda
perla borgarinnar.
Kaffihúsið er stað-
sett í miðju Sjó-
minjasafninu með
frábæru útsýni yfir
höfnina. Snorri
Birgir Snorrason,
eigandi og kokkur á
Víkinni, heldur fast
í íslenskar hefðir og
mun, ásamt félaga
sínum Bjarna snæð-
ingi, efna til heljar-
innar saltkjötsveislu
á sprengidag.
Bjarni snæðingur
og Snorri Birgir
standa fyrir salt-
kjötshlaðborði á
sprengidaginn.
Ljósmynd / Hari.
É g er búinn að vera hérna í fjögur ár og það hefur verið virkilega skemmtilegt að
fylgjast með uppbyggingunni á
Grandanum, sem er á hraðri upp-
leið,“ segir Snorri. Það er orðið
glæsilegt um að lítast í Granda-
garðinum, en margir staðir bjóða
upp á glæsilega verönd þar sem
hægt er að sitja og snæða úti þeg-
ar veður leyfir. Í Víkinni er boðið
upp á léttar veitingar, kaffi, kökur,
smurbrauð, fisk og súpur ásamt
fleiru.
Saltkjöt og baunir, en enginn
túkall
Í tilefni sprengidagsins mun Snorri
bjóða upp á sérstakt saltkjötshlað-
borð í hádeginu næstkomandi þriðju-
dag, á sprengidaginn sjálfan. „Við
Bjarni félagi minn höfum verið að
tala aðeins um það að upphefja ís-
lenskar hefðir,“ segir Snorri, og á
þá við Bjarna snæðing, sem er einna
þekktastur fyrir að hafa boðið upp á
sviðakjamma með öllu í lúgusjopp-
unni á BSÍ um árabil. Þeir félagar
hafa áður boðið upp á allsherjar
sviðaveislu og skötuveislu, og nú er
komið að saltkjötinu. „Ég veit ekki
til þess að boðið hafi verið upp á salt-
kjötshlaðborð áður, þannig þetta er
skemmtilegt nýjung.“ Á hlaðborðinu
verður ekki einungis hægt að fá hefð-
bundið saltkjöt, einnig verður boðið
upp á saltaða svínasíðu, reykta svína-
síðu og saltfiskragú. „Við erum byrj-
aðir að taka við bókunum og greini-
legt er að áhugi fólks er til staðar.
Það er nefnilega tilvalið að fá sér salt-
kjöt í hádeginu, en eins og menn vita
þá geta næturnar orðið ansi erfiðar
eftir mikið saltkjötsát. Það er því um
að gera að borða það í hádeginu og
fá sér svo eitthvað létt um kvöldið,“
segir Snorri.
Líkt og áður segir fer hlaðborðið
fram í hádeginu á sprengidag, næst-
komandi þriðjudag og kostar litlar
2.990 kr. „Snæðingurinn mun stjórna
öllu eins og herforingi, enda hokinn
af reynslu þegar kemur að íslenskum
matarvenjum,“ segir Snorri, sem er
spenntur fyrir hlaðborðinu. Þeir fé-
lagar leggja mikið upp úr því að hrá-
efnið sé fyrsta flokks og kemur allt
kjötið frá Kjarnafæði. „Þeir vinna allt
af alúð og kjötið er án allra aukaefna,
eins og við viljum hafa það.“
Ekta íslenskt kaffihlaðborð á
sunnudögum
Það er nóg um að vera í Víkinni
þessa dagana, en Snorri hefur
ákveðið að endurvekja kaffihlaðborð
á sunnudögum. „Þetta er svona eins
og það var í gamla daga og minnir
á gott fermingarhlaðborð. Á boð-
stólum verða ýmsar hnallþórur,
marengs, pönnukökur, kleinur, flat-
kökur með hangikjöti og hinni heil-
ögu rækjubrauðtertu,“ segir Snorri.
Kaffiboðið verður alla sunnudaga
á milli klukkan 14 og 17 og hvetur
Snorri allar fjölskyldur til að gera
sér ferð í Sjóminjasafnið og Víkina
að Grandagarði 8 og eiga þar nota-
lega stund.
Unnið í samstarfi við
Víkina